Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 27
27FÖSTUDAGUR 28. mars 2003
Ólafsfjörður – Fimmtudagur 27. mars:
Fundur í Húsi félags eldri borgara, kl. 20.00.
FImmtudagur 27. mars
Akureyri – Föstudagur 28. mars:
Fundur á Fiðlaranum, kl. 20.00.
Föstudagur 28. mars
Kristján
Örlygur Hnefill
Lára
Fundir á Ólafsfirði og Akureyri um
pólitísk aðalatriði
Fundir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar
Skarphé›inssonar um landi› hafa veri› fjölsóttir og
líflegir. Á fimmtudaginn ver›ur fundur í Ólafsfir›i í Húsi
félags eldri borgara og á föstudaginn á Fi›laranum á
Akureyri. Á fundunum ver›ur hlusta› eftir sjónarmi›um
nor›lenskra kjósenda og fjalla› um flau pólitísku a›alatri›i
sem kosi› ver›ur um í vor.
Norska knattspyrnan:
Riddarinn
Nils Arne
Eggen
FÓTBOLTI Nils Arne Eggen, þjálfari
Rosenborgar til margra ára, verður
útnefndur riddari af reglu Ólafs
helga um miðjan maí. Eggen verður
útnefndur fyrir afrek sín hjá Ros-
enborg en undir stjórn hans sigraði
félagið ellefu sinnum í norsku
deildinni og fjórum sinnum í bikar-
keppninni og lék í Meistaradeild
Evrópu átta ár í röð. Eggen fær orð-
una afhenta í fæðingarbæ sínum
Orkdal á 100 ára afmæli íþróttafé-
lags bæjarins, Orkdal IL, sem hann
lék með í upphafi ferils síns. ■
HANDBOLTI Átta liða úrslit Esso-
deildar kvenna í handbolta hefjast
á morgun. Ragnar Hermannsson,
fyrrverandi þjálfari kvennaliðs
Hauka, spáir í spilin fyrir Frétta-
blaðið.
ÍBV-Fylkir/ÍR:„Þetta fer 2:0 fyrir
Vestmannaeyjar. Þetta verður
mjög létt fyrir ÍBV og ekki mikil
viðureign, ekki nema bara reynsla
fyrir stelpurnar í Fylki/ÍR.“
Haukar-Grótta KR: „Þetta fer 2:0
fyrir Hauka. Það verða meiri
slagsmál í þessum viðureignum en
getumunurinn á liðunum er mikill.
Haukarnir hafa verið vaxandi á
meðan Gróttu KR-liðið hefur verið
á niðurleið seinni partinn í vetur.“
Stjarnan-FH:„ Það er mjög erfitt
að spá um þessa viðureign. Til að
fylgja hefðinni þá spái ég Stjörn-
unni sigri 2:1 en það kæmi mér
ekkert á óvart ef FH ynni. Stjarn-
an hefur gríðarlega reynslu í þess-
ari keppni og mikla hefð en FH-
stelpurnar eiga enn eftir að standa
sig í svona keppni.“
Valur-Víkingur: „Valsmenn eru
heldur sigurstranglegri. Það fer
svolítið eftir því hvernig
meiðslaformið og dagsformið er á
þessum liðum. Þetta getur farið á
hvorn veginn sem er en ég spái 2:1
fyrir Val.“
Ragnar segir að Íslandsmótið í
vetur hafi verið þrískipt. Í efsta
þrepi hafi Haukar, ÍBV og Stjarn-
an verið, í öðru þrepi Valur, Vík-
ingur, FH og Grótta/KR, og síðustu
þrjú liðin í því neðsta. „Deildin í ár
hefur verið í meðallagi.Vest-
mannaeyjaliðið hefur sett ákveð-
inn klassa, sérstaklega framan af.
Það er virkilega gott lið en hefur
frekar verið að gefa eftir.“
Ragnar telur að Haukar og ÍBV
mætist í úrslitum Íslandsmótsins
ef ekkert óvænt kemur upp á. „Það
verður ofboðslegt einvígi. Það er
rosaleg reynsla og styrkur í þessu
Haukaliði og ÍBV þarf að spila bet-
ur en það hefur verið að gera eftir
jól til að landa því einvígi.“ ■
18.00 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.30 Egilshöll
Fram mætir KR í deildarbikarkeppni
karla í fótbolta.
18.30 Sýn
Football Week UK. Nýjustu fréttirnar úr
enska boltanum.
19.00 Sýn
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
19.15 Keflavík
Keflavík tekur á móti Njarðvík í úrslit-
keppni Intersport-deildar karla í körfu-
bolta.
19.30 Skotland
21 árs lið Skotlands og Íslands eigast
við í undankeppni EM í fótbolta.
20.30 Egilshöll
Þróttur R. og Fylkir eigast við í deildar-
bikarkeppni karla í fótbolta.
CARLOS
Roberto Carlos, leikmaður Real Madrid, er
góður vinur David Beckham. Vicente del
Bosque, þjálfari Real, segir Beckham vera
leikmann sem hvaða lið sem er myndi
vilja hafa innan sinna raða. „Ef Beckham
semur við okkur veit ég í hvaða stöðu ég
mun nota hann.“
Roberto Carlos:
Vill Beck-
ham til Real
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn
Roberto Carlos hefur hvatt David
Beckham, leikmann Manchester
United, til að ganga í raðir Real
Madrid.
„Beckham er þegar orðinn
landsliðsfyrirliði Englands en
hann yrði ennþá betur metinn
hérna,“ sagði Carlos í viðtali við
enska blaðið The Sun. „Mér er al-
veg sama hvar á vellinum Beck-
ham myndi leika í liði okkar. Allt
sem ég veit er að hann er vinur
minn og jafnframt einn af fimm
bestu knattspyrnumönnum
heimsins í dag.“ ■
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 31
MARS
Föstudagur
Átta liða úrslit Esso-deildar kvenna hefjast á morgun:
ÍBV og Haukar fara í úrslitin
LEIKIR Í 8 LIÐA ÚRSLITUM
ÍBV-Fylkir/ÍR
Haukar-Grótta/KR
Stjarnan-FH
Valur-Víkingur