Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 47
Micra?
Frumsýning um helgina
BÖRNIN LÆRA LEIKI
Margir leikir sem allir kunnu fyrir
tuttugu árum eru nú alveg fallnir í
gleymsku. Styrk til að kenna börnum
gamla leiki er því vel varið.
HILARY SWANK
Mætir á frumsýningu hasarmyndarinnar
The Core í Los Angeles fyrr í vikunni.
Myndin segir frá æsilegum leiðangri inn í
iður jarðar til að afstýra heimsendi. Swank
leikur í myndinni ásamt Stanley Tucci, Del-
roy Lindo og fleira góðu fólki.
FÖSTUDAGUR 28. mars 2003
Styrkur til að kenna
börnum leiki:
Brennó,
fallin spýta
og snú snú
LEIKIR „Við ætlum okkur að fara í
skóla á höfuðborgarsvæðinu og
kenna alla þá gömlu leiki sem börn
hafa löngu týnt niður eða aldrei
lært,“ segir Valdimar Gunnarsson,
fræðslustjóri Ungmennafélags Ís-
lands sem fékk styrk frá Fræðslu-
ráð Reykjavíkur til þessa verkefnis.
Valdimar nefnir leiki eins og
brennibolta og fallna spýtu auk
boltaleiks sem sumir kalla tíu og
aðrir danskan. Auk þess má nefna
snú snú og alla þá leiki sem tengjast
sippubandinu. „Við ætlum að útbúa
tösku með öllu sem þarf til þessara
leikja og heimsækja skólana með
það að markmiði að börnunum verði
kenndir þessir leikir. Margir þeirra
eru kjörnir í frímínútum og halda
börnum við það að leika sér,“ segir
Valdimar.
Valdimar segir að margir þess-
ara leikja spretti upp annað kastið
og síðan gleymist þeir. Ef hins veg-
ar skólarnir eigi það sem til þarf til
að halda börnunum við efnið læri
nýjar kynslóðir og þau eldri kenni
þeim yngri. Þannig falli þessir leik-
ir ekki í gleymskunnar dá. ■