Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 35
væri horfinn að eilífu yfir móð-
una miklu. Fyrir vikið urðu eftir-
lifandi liðsmenn meira en þyngd-
ar sinnar virði í gulli, sem sýndi
sig í gífurlegri aðsókn tónleika
McCartneys á rúntinum um
Bandaríkin í fyrra. Hann lék á 58
tónleikum í Bandaríkjunum,
Mexíkó og Japan fyrir rúmlega
eina milljón áhorfenda, sló öll
fyrri met sín og varð tekjuhæsti
listamaður síðasta árs fyrir vik-
ið.
Aftur í heiminum
Fyrir skemmstu gaf Paul
McCartney út tónleikaplötuna
„Back in the World“ til þess að
kynna væntanlega tónleikaferð
sína um heiminn. Platan fór beint í
fimmta sæti breska sölulistans í
fyrstu viku sinni.
Í raun er um áframhald tón-
leikaferðarinnar um Bandaríkin í
fyrra að ræða. Hljómsveitin er sú
sama og lék á síðustu breiðskífu
hans og í Bandaríkjaferðinni og
því ættu liðsmenn að vera orðnir
vel samstilltir. McCartney mun
koma fram á rúmlega 30 tónleik-
um um Evrópu, Ástralíu og Asíu á
næstu mánuðum.
Ferðin hófst í París á þriðjudag-
inn og voru tónleikarnir vel heppn-
aðir. McCartney er nú staddur á
Spáni og eftir það fer hann á
heimaslóðir og ferðast um Bret-
landseyjar fram undir lok apríl.
Þar á meðal leikur hann á fernum
tónleikum í Earl’s Court í London á
einni viku.
Eftir Bretlandsferðalagið fer
hann aftur á meginland Evrópu og
heldur tónleika í Þýskalandi og
Skandinavíu. McCartney mun
leika á stærstu tónleikum ferils
síns í Róm í maí sem haldnir verða
fyrir utan Colosseum-hringleika-
húsið. Tónleikarnir eru gjöf borg-
arstjórnarinnar til íbúa sinna og
búist er við því að 500 þúsund
manns mæti til þess að heyra Bítil-
inn syngja.
Því næst fer hann aftur til Bret-
landseyja og heldur meðal annars
sína fyrstu tónleika í Skotlandi í 13
ár. Það verða stærstu tónleikar
sem haldnir hafa verið í landinu
því McCartney er búinn að selja 60
þúsund miða á Celtic Park-leik-
vanginn í Glasgow.
Það telst svo til tíðinda að
McCartney heldur tónleika í
heimabæ sínum Liverpool 1. júní
næstkomandi. Tónleikarnir fara
fram í King’s Dock, sem er við
miðju borgarinnar. Hann hefur
ekki haldið tónleika í Bítlabænum
síðan árið 1999. Þá kom hann ein-
nig óvænt fram í hinum fræga
Cavern Club þar sem Bítlarnir
stigu sín fyrstu spor og íslenska
rokksveitin Mínus sprengdi hljóð-
kerfið í tónleikaferð sinni um Bret-
land.
Á tónleikadagskránni eru lög
af síðustu plötum McCartneys,
Wings-lög, vinsælustu lög sólófer-
ilsins og glás af Bítlalögum enda
segist hann gera sér fulla grein
fyrir því að skarinn mæti til þess
að heyra þau. McCartney hefur
ekki blandað sér í hóp stríðsand-
stæðinga og segir það ekki vera
hlutverk sitt.
„Þetta eru erfiðir tímar og
erfitt að átta sig á því hvað sé best
í stöðunni,“ sagði hann nýlega í
viðtali við BBC. „Ég er bara eins
og hver annar og fylgist grannt
með þróun mála. Það sem ég von-
ast til að geta gert í augnablikinu
er að ná að búa til gleði á þessum
dökku tímum, ekkert annað. Ég er
ekki stjórnmálamaður.“
Hann virðist því lifa eftir sín-
um gömlu fræðum, „allt sem við
þörfnumst er ást“.
biggi@frettabladid.is
35FÖSTUDAGUR 28. mars 2003
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
• N
M
0
9
0
6
2
/ S
IA
.IS
PAUL MCCARTNEY
Paul McCartney er 60 ára. „Ég hef oft sagt að ég ætli að halda þessu áfram þó að
þeir þurfi að renna mér inn á sviðið í hjólastól, níutíu ára gömlum,“ segir McCartney
í viðtali á heimasíðu sinni. „Þetta verða kannski hálfsorgleg örlög ef þetta rætist, en
ég geri það samt.“