Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 28.03.2003, Qupperneq 12
12 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR REYKJAVÍKURHÖFN Það var nóg að gera hjá mönnum í Reykjavíkurhöfn í gær. ALÞJÓÐASAMNINGAR EFTA-ríkin og Chile hafa áritað samning um frí- verslun í viðskiptum með iðnaðar- vörur og sjávarafurðir sem gefur íslenskum framleiðendum mikil- væg tækifæri til að sækja á ný mið. Chile er mikilvægur og vax- andi markaður fyrir ýmsar ís- lenskar vörur, m.a. veiðarfæri og tæki til vinnslu matvæla. Ísland flutti inn vörur fyrir 3,8 milljarða króna frá Chile árið 2001 og hefur innflutningurinn vaxið gríðarlega undanfarin ár því árið 1997 flutti Ísland inn vörur fyrir 53 milljónir. Árið 2001 flutti Ísland út vörur fyrir 345 milljónir króna til Chile. Fríverslunarsamningurinn fjallar enn fremur um þjónustu- viðskipti og stofnsetningarrétt. Þá hefur hvert EFTA-ríki gert tví- hliða samning við Chile um við- skipti með landbúnaðarvörur og tengjast þeir samningar fríversl- unarsamningnum. Chile fær sam- bærilegan aðgang og Evrópusam- bandið fyrir tilteknar landbúnað- arvörur og í staðinn fær Ísland tollfrjálsan aðgang fyrir útflutn- ingsvörur sínar, þ. á m. lambakjöt og hross á fæti. Aðalsamningamaður og tals- maður EFTA-ríkjanna var Bene- dikt Jónsson, sendiherra, en hann stýrði einnig samningaviðræðum EFTA-ríkjanna við Mexíkó. Er stefnt að því að undirrita samn- inginn á ráðherrafundi EFTA- ríkjanna í lok júní. ■ SJÁVARÚTVEGUR „Þó við myndum mæla með auknum þorskveiðum, sem ég er alls ekki að segja að við munum gera, þá myndi slík aukn- ing aldrei koma til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi á næsta fisk- veiðiári,“ segir Jóhann Sigurjóns- son forstjóri Hafrannsóknastofn- unar. Hann vill alls ekki staðfesta að þorskstofninn sé stærri núna en undanfarin ár. „Miðað við úttekt okkar á síðasta ári er verkefnið frekar að draga úr sókn en auka hana svo að upp- vaxandi árgangar fái að skila sér.“ Kristinn Péturs- son, fiskverkandi á Bakkafirði, vill að þorskkvóti fisk- veiðiársins sé auk- inn nú þegar um 25 þúsund tonn. Krist- inn hefur tekið saman afla fjög- urra togara sem tóku þátt í togar- arallinu 1.-20. mars og borið sam- an við afla sömu togara frá í fyrra. Niðurstöður hans sýna að þorskafli hafi aukist um 17% og ýsuafli um heil 70%. Frá þessu greinir í Morgunblaðinu. „Þetta er einfaldlega ekki praktískt úrlausnarefni á þessu stigi,“ segir Árni Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra. „Ekki eru tekn- ar ákvarðanir um þorskkvótann eingöngu á niðurstöðum togara- rallsins.“ Glaðbeittir útgerðar- menn verða að bíða aukins kvóta enn um sinn. Í gær voru niðurstöður úr tog- ararallinu loksins kynntar og þar kemur í ljós að nokkuð meira afl- aðist af þorski en árið 2002 og hækkaði heildarvísitala þorsks um 9% frá fyrra ári. Lengdardreifing þorsksins staðfestir að árgangur 2001 sé mjög lélegur en árgangur 2002 virðist vera meðalárgangur. Stofnvísitala ýsu jókst um 70% frá árinu 2002 en þá var hún sú hæsta frá upphafi stofnmælingarinnar. Þessi aukning skýrist af 3 sterkum árgöngum, frá árunum 1998-2000. Kristinn virðist því ekki hafa ver- ið fjarri lagi með sínar áætlanir. „Lokaúttekt á niðurstöðum og tillögur Hafrannsóknastofnunar- innar um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár verða kynntar í byrjun júní,“ segir Jóhann en hlutverk Hafrannsóknastofnunar segir Árni að reikna út eftir bestu getu stofnstærð og sú stærð sé til grundvallar. „Og síðan auðvitað að gefa út hver óvissumörkin eru eins og þeir hafa verið að gera eft- ir að ofmatið kom í ljós árið 2000 og 2001.“ jakob@frettabladid.is nettrúm: Nettur að utan en rúmgóður að innan. Talar þú Micra? F í t o n / S Í A SPRENGING Í VERKSMIÐJU Þrír létu lífið og eins er saknað eftir sprengingu sem varð í sprengi- efnaverksmiðju í Pas-de-Calais héraði í Frakklandi. OF LANGT GENGIÐ Mannréttinda- hópar í Bretlandi gagnrýna laga- frumvarp sem veitir lögreglu heimild til að safna fingraförum og DNA-upplýsingum allra sem eru grunaðir um glæpi. Gagn- rýnendur segja að þetta leiði af sér glæpagagnagrunn sem geymi upplýsingar um marga saklausa einstaklinga. BORGIÐ SEKTINA Þýskur hægriöfgamaður sem lofaði þá sem stóðu að árásunum á World Trade Center í New York hefur tapað áfrýjun sinni gegn sekt sem honum var gert að greiða. Dómari staðfesti jafnframt að hann ætti ekki að sæta fangelsis- vist. . HERÆFINGAR Í SUÐUR-KÓREU Sameiginleg heræfing Suður-Kóreuhers og Bandaríkjahers fer fram á sama tíma og mikil spenna er í samskiptum við Norður- Kóreu. Leita samkomulags: Tala við grannana SEÚL, AP Fjölþjóðleg áætlun um lausn kjarnorkuvopnadeilunnar á Kóreuskaga gæti orðið að veru- leika á næstu tveimur mánuðum, segir Yoon Young-kwan, utanrík- isráðherra Suður-Kóreu. Hann segir að ekki dugi að ræða aðeins um kjarnorkumál heldur verði einnig að taka á efnahags- og orkumálum til að ná samkomulagi við stjórnvöld í Pyongyang, höf- uðborg Norður-Kóreu. Bandaríska stjórnin vinnur að því ásamt nágrannaríkjum Norð- ur-Kóreu að finna friðsamlega og varanlega lausn á deilunni, sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og sagði unnið í ákveðnum atriðum. ■ ■ Evrópa SKÓLAMÁL Fræðsluráð Reykjavík- ur úthlutaði á dögunum 44 styrkj- um til að efla þróunarstarf og nýj- ungar í starfi grunnskóla borgar- innar. Samtals nema styrkirnir 38 milljónum króna. Styrkirnir eru veittir til einstakra verkefna í grunnskólum, sem stuðla að nýj- ungum og framförum, en að auki fá ýmsir aðilar rekstrarstyrki. Myndlistarskóli Reykjavíkur fær hæsta styrkinn, eða 10 milljónir króna, til reksturs. Við úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla Reykjavíkur undan- farin ár hefur áhersla verið lögð á styrki til svokallaðra móðurskóla. Þeir skólar hafa því hlutverki að gegna að vera frumkvöðlar á sínu sviði í uppbyggingu náms eða starfs og að vera ráðgefandi gagn- vart öðrum skólum. Þrír nýir móðurskólar bætast nú í hóp þeirra sem fyrir eru. Þetta eru Háteigsskóli og Hlíðaskóli, sem verða móðurskólar í list- og verk- greinum, og Hamraskóli, sem verður móðurskóli í samstarfi leik- og grunnskóla. ■ Fræðsluráð Reykjavíkur úthlutar 44 styrkjum upp á 38 milljónir: Myndlistarskólinn fær mest STYRKIR ÚR FRÆÐSLURÁÐI Fulltrúar 44 styrkþega Fræðsluráðs Reykjavíkur komu saman í Höfða á dögunum ásamt Stefáni Jóni Hafstein, formanni fræðsluráðs, og Þórólfi Árnasyni borgarstjóra Ýsu- og þorsk- stofninn sterkari Hafrannsóknastofnunin kynnir niðurstöður úr togararalli. Ekki tíma- bært að taka ákvörðun um aukningu kvóta segir sjávarútvegsráðherra. ÞORSKUR Hafrannsóknastofnun mun kynna niður- stöður rannsókna um ástand þorskstofns- ins í byrjun júní. ÁRNI MATHIESEN Engar niðurstöður fyrirliggjandi sem hægt er að byggja á ákvörðun um aukinn kvóta. ■ Og síðan auð- vitað að gefa út hver óvissu- mörkin eru ein- sog þeir hafa verið að gera eftir að ofmatið kom í ljós árið 2000 og 2001. Harmleikur í Wales: Faðir myrti syni sína WALES, AP Síðustu samverustund- um fjögurra ungra drengja með föður sínum lauk með því að faðir- inn myrti þá og framdi sjálfsmorð um leið. Drengirnir bjuggu hjá móður sinni eftir að foreldrarnir slitu samvistum. Faðir drengjanna, sem allir voru innan við tíu ára gamlir, fór með þá í bíltúr. Móðir drengjanna kallaði á lögreglu eft- ir að maðurinn hringdi í hana síðla kvölds. Lögregla fann bíl manns- ins skömmu síðar. Faðirinn og synirnir voru allir látnir. Svo virð- ist sem faðirinn hafi leitt útblást- ur bílsins inn í farþegarýmið og þannig banað þeim öllum. ■ HÉRAÐSDÓMUR NORÐURLANDS Dæmdi mann fyrir að aka undir áhrifum lyfja. 70 þúsund króna sekt og svipting ökuleyfis: Ók undir áhrifum deyfandi lyfja DÓMSMÁL Akureyringur var dæmdur fyrir að hafa ekið bif- reið ófær um að stjórna henni ör- ugglega vegna neyslu deyfandi lyfja í september árið 2002. Öku- ferð hans var frá Glerártorgi á Akureyri, um Þórunnarstræti, norður Glerárgötu og austur Tryggvabraut, þar sem hann ók aftan á bifreið sem var kyrrstæð á götunni við innkeyrsluna að bensínstöð Olís á Tryggvabraut. Hann var dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt í rík- issjóð, allan kostnað sakarinnar og var að auki sviptur ökurétti í 6 mánuði. ■ Ísland flytur inn vörur fyrir milljarða frá Chile : EFTA semur um fríverslun ÚTFLUTNINGUR TIL CHILE Milljónir króna 1997 306 1998 161 1999 182 2000 239 2001 345 INNFLUTNINGUR FRÁ CHILE Milljónir króna 1997 53 1998 84 1999 99 2000 1.560 2001 3.840 HEIMILD: VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA UTANRÍKISRÁÐUNEYTISINS GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Þetta mikla skip er meðal þess sem Ís- lendingar hafa keypt í Chile. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FRÉTTAB LAÐ IÐ /JAN U S FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.