Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 13
13FÖSTUDAGUR 28. mars 2003
TJÓN Síldarvinnslan hyggst hefja
endurbyggingu á gamla hrað-
frystihúsinu í Neskaupstað, sem
varð fyrir miklum skemmdum í
eldsvoða fyrir rúmum tveimur
árum þegar verið var að taka upp
kvikmyndina Hafið.
Síldarvinnslan stefndi kvik-
myndafélaginu Sögn ehf. og
Tryggingamiðstöðinni vegna
tjónsins, en það hefur verið met-
ið á 76 milljónir króna. Málið hef-
ur ekki verið útkljáð fyrir dómi,
en þrátt fyrir það hyggst Síldar-
vinnslan hefja endurbyggingu
hússins.
Talsverðar breytingar verða
gerðar á húsinu. Það verður
lækkað og sett nýtt þak á það. Þá
verður húsið klætt að utan með
stálklæðningu. Efri hæð hússins
skemmdist aðallega í eldinum, en
neðri hæð þess hefur verið nýtt
undir tilraunir með hlýraeldi. ■
Neskaupstaður:
Hraðfrysti-
húsið
endurbyggt
BRANN Í DESEMBER 2001
Hraðfrystihúsið varð fyrir miklum skemmd-
um fyrir rúmum tveimur árum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
VORVERKIN
Þrátt fyrir rysjótta tíð er farið að sinna vorverkum víða, þar á meðal í Kirkjugarðinum
við Suðurgötu.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILEH
LM