Fréttablaðið - 28.03.2003, Side 14
14 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR
ÍRAK, AP Milli 30 og 40 bandarískir
hermenn særðust, tveir þeirra al-
varlega, þegar tveir hópar banda-
rískra hermanna hófu skothríð
hvor á annan nærri borginni An
Nasiriyah.
Hóparnir tveir höfðu verið
sendir á vettvang til að reka ír-
aska hersveit á brott að nætur-
lagi. Ekki vildi þó betur til en að
þegar hóparnir urðu á leið hvors
annars síðar um nóttina töldu
þeir sig hafa fundið Írakana. Þeir
hófu því skothríð með fyrrnefnd-
um afleiðingum.
Hermálayfirvöld hafa gert
ýmislegt til að reyna að koma í
veg fyrir að hermenn skjóti á
samherja sína fyrir mistök. Til að
mynda hafa verið útbúin sendi-
tæki sem eiga að sýna samherj-
um að um vini er að ræða en ekki
óvinahermenn. Þrátt fyrir það
hefur verið nokkuð um að bresk-
ir og bandarískir hermenn hafi
fallið fyrir hendi félaga sinna.
Ein bresk herþota var skotin nið-
ur af bandarísku flugskeyti og
tveir breskir hermenn voru
skotnir af samherjum. Reyndar
er það svo að af 22 breskum her-
mönnum sem hafa látist frá því
innrásin hófst hafa aðeins fjórir
fallið fyrir hendi Íraka. ■
Til í notkun
efnavopna
LONDON, AP Yfirmenn breska hers-
ins telja sig hafa fundið sannanir
fyrir því að Írakar séu reiðubúnir
að beita efnavopnum.
Breskir hermenn fundu um
hundrað varnarbúninga gegn
efnavopnaárás og öndunartæki í
stjórnstöð íraska hersins sem þeir
hertóku. Michael Boyce aðmíráll
segir að búningarnir hafi verið
fyllilega nothæfir þegar þeir
fundust. „Við hljótum að spyrja
okkur hvers vegna íröskum her-
foringjum þótti ástæða til að út-
búa hermenn á þessu svæði með
varnarbúnaði gegn efnavopnum.
ÍRAK, AP Vont veður sem hefur geng-
ið yfir suðurhluta Íraks undanfarna
daga hefur gert mönnum erfitt fyr-
ir að slökkva elda í olíubrunnum
sem íraskir hermenn kveiktu í.
Mun minna er reyndar um að
kveikt hafi verið í olíubrunnum en
búist hafði verið við. Kveikt var í
sjö brunnum, búið er að slökkva
elda í einum og í þremur þeirra
slokknaði eldur af sjálfu sér. Þrír
brunnar loga enn. Þegar Írakar
héldu frá Kúvæt kveiktu þeir í um
700 olíubrunnum. ■
MATVÆLAFLUTNINGUR TEFST Töf
verður á því að hægt verði að fly-
tja matvælabirgðir til Íraks með
skipum. Tundurdufl hafa fundist
úti fyrir höfninni í Umm Qasr. Yf-
irmaður breska flotans telur ekki
óhætt að sigla birgðaskipum, með
þúsundir tonna af birgðum, inn í
höfnina við þær aðstæður. Eina
leiðin til að flytja matvæli sé því
enn með bílalestum.
BLIX ÓSÁTTUR Hans Blix, yfir-
maður vopnaeftirlitssveita Sam-
einuðu þjóðanna, gagnrýnir
Bandaríkjamenn fyrir að hafa
ekki gefið eftirlitsmönnum tíma
til að ljúka verki sínu áður en
ráðist var inn í Írak. „Þeir skelltu
á okkur hurðinni,“ sagði Blix.
HÓTA AFTÖKUM Brian Burridge,
æðsti yfirmaður breska hersins
við Persaflóa, sakar íraskar
sveitir, hollar Saddam Hussein,
um að hóta því að taka íraska
menn og fjölskyldur þeirra af lífi
ef þeir berjast ekki við hersveitir
Breta og Bandaríkjamanna.
frugg:
Frískleg og tafarlaus svörun,
en um leið örugg.
Talar þú Micra?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Bandarískir hermenn fóru mannavillt í myrkri:
Skutu á samherja
BARIST Í MYRKRI
Fjöldi bandarískra hermanna særðist í inn-
byrðis bardögum þegar þeir héldu sig hafa
mætt Írökum.
Kveikt var í sjö olíubrunnum:
Barist við olíuelda
VÖRÐUR VIÐ
OLÍUBRUNNA
Bandarískir her-
menn standa
vörð við olíu-
brunna í sunnan-
verðu Írak.
■ Innrás í Írak/
Örfréttir
■ Innrás í Írak/
Efnavopn
SAKLAUS FÓRNARLÖMB STRÍÐS
Særð börn liggja á sjúkrahúsi í Bagdad. Þau eru meðal þeirra
sem særðust þegar sprengjur sprungu í íbúðahverfi í borginni
á miðvikudag.
HAFAST VIÐ ÚTI Í NÁTTÚRUNNI
Fjöldi Kúrda flúði heimili sín í Sulaymaniyah í norðanverðu Írak
vegna ótta við efnavopnaárásir Íraka. Þessar konur komu sér upp
bráðabirgðaaðstöðu til að geta hengt þvott sinn til þerris.
ÞÖGULL SJÓNVARPSFORSETI
Framleiðendur sjónvarpsþáttanna „Vestur-
álman“ óttast að andstaða Martin Sheen,
sem leikur Bandaríkjaforseta í þáttunum,
dragi úr áhorfi. Þeir hafa því lagt að hon-
um að hafa hljótt um sig.
SAMA ANDLIT EN NÝR HERVÖRÐUR
Breskur hermaður gengur um stræti Sibah,
suður af Basra. Að baki hans sýpur
Saddam Hussein vatn á málverki sem sett
var upp við höfuðstöðvar Baath-flokksins.