Fréttablaðið - 28.03.2003, Síða 22

Fréttablaðið - 28.03.2003, Síða 22
Í Fréttablaðinu í dag er birt nið-urstaða skoðanakönnunar þar sem fólk var spurt hvort það borgaði hærra hlutfall tekna sinna í skatta og opinber gjöld nú en fyrir tíu árum. Niðurstaðan er nokkuð klár: 58 prósent segjast borga meira, 21 prósent segist ekki borga meira og 21 prósent er ekki viss. Ef aðeins eru teknir þeir sem segja af eða á eru hlut- föllin þannig að 74 prósent segj- ast borga meira í skatta og opin- ber gjöld en 26 prósent minna. Sem kunnugt er hafa ríkis- stjórnarflokkarnir – og þá eink- um Sjálfstæðisflokkur, sem ber ábyrgð á fjármálaráðuneytinu – lagt mikið undir í að sannfæra fólk um að skattar hafi lækkað á Íslandi. Miðað við niðurstöður þessarar könnunar mun þetta reynast sjálfstæðismönnum erfitt. Þótt fræin þeirra kunni að vea góð og gild þá er jarðvegur- inn ekki frjór. Umræðan um skattana hefur verið dálítið kostuleg. Sjálfstæð- ismenn segja að skattbyrði hafi hækkað vegna þess að kaupmátt- ur hafi aukist. Til að finnast það gott og gilt þarf fólk að sam- þykkja að það sé eðlilegt að ríkið taki æ stærri sneið af kökunni eftir því sem hún stækkar. Ef al- menningur bætir kjör sín um 10 prósent þá eykur ríkið tekjur sín- ar um 13 prósent. Ég hef ekki trú á að fyrir þessu sé almenn sátt hjá þjóðinni. Jafnvel þveröfugt. Ég hugsa að fleiri séu á þeirri skoðun að ríkið eigi að beita að- haldi í eigin rekstri og gæta þess að auka ekki útgjöld umfram verðlagsþróun. Ef sú væri raunin hefði hagur ríkisins staðið í stað en hagur almennings batnað enn frekar. Hin hliðin á rökstuðningi sjálfstæðismanna er nefnilega sú að kaupmáttur almennings hefði vaxið enn meir ef ríkið hefði ekki stækkað sneið sína af kökunni. Annar galli á rökstuðningi sjálfstæðismanna er sá að hann byggir á þeirri kenningu að ríkis- stjórnin hafi aukið kaupmáttinn. Það er ekki rétt. Það var atvinnu- lífið í landinu – fyrirtækin og starfsfólk þess – sem stóð undir auknum kaupmætti. Það sem rík- isstjórnin gerði var að auka hlut ríkisins í sameiginlegum tekjum þjóðarinnar. Það er rétt hjá sjálfstæðis- mönnum að þeir hafa lækkað skattprósentur bæði á einstak- linga og fyrirtæki. Deilan snýst hins vegar um hvort nóg hafi ver- ið að gert. Það er ekki hægt að kalla lækkun skattprósentu skattalækkun ef það dugir ekki til að draga úr hækkun skatta vegna kaupmáttaraukningar. Einn veikleiki enn í rökum sjálfstæðismanna er sá að fáir skattgreiðendur kannast við aukna þjónustu fyrir skattpen- inginn sinn. Þvert á móti hefur ríkið dregið mjög úr þjónustu sinni og aukið gjaldtöku. Það er því snúið að finna út hvað ríkið gerði við stærri sneiðina af stærri kökunni. ■ 22 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Það er fróðlegt að fylgjast meðþví hvernig kosningabarátta hinna tveggja turna er að þróast. Fyrr í vetur sáu menn fyrir sér mik- inn leðjuslag, þar sem allt snerist í kringum foringjana tvo sem virtust vera búnir að taka sér stöðu miðsviðs í íslenskri pólitík – þau Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Davíð Oddsson. Einvígi þeirra hef- ur enn sem komið er látið á sér standa og það er spá þess sem þetta ritar að kjósendur muni þurfa að bíða enn um sinn. Ástæðan er ein- faldlega sú að eftir dálítið fát og fum vegna góðs gengis Samfylking- ar í skoðanakönnunum og innreið Ingibjargar í landsmálapólitík virð- ast sjálfstæðismenn nú hafa komið sér niður á hernaðaráætlun. Í þeirri áætlun kemur það í hlut herforingja Davíðs – ekki hans sjálfs – að takast á við Ingibjörgu. Á meðan mun kon- ungurinn sjálfur einbeita sér að landsföðurhlutverkinu. Það hæfir nefnilega ekki slíkum landsföður að standa í pexi við bónapartískan leiðtoga Samfylking- arinnar – skipaðan en ekki kosinn – sem skaust inn í ættir landsins utan- veltu hjónabandsins, ef svo má segja. Það hæfir hins vegar lands- föður að halda hátíðarræður á landsfundi Sjálfstæðisflokksins undir risastórri mynd af fuglinum, stórsamkomu þar sem hirðin hyllir leiðtogann skilyrðislaust. Í slíku umhverfi er óhætt að láta nokkur hvassyrt ummæli falla án þess að í því felist að stígið sé niður af stall- inum góða. Þetta hlutverk þekkir Davíð vel og hann veit manna best hve kraft- mikil baráttuaðferð það getur verið að hefja sig upp yfir dægurþrasið, tala helst ekki nema á hátíðarstund- um og mæta í drottningarviðtöl. Öf- ugt við Ingibjörgu Sólrúnu, sem er orðin landlaus í embættum, hefur Davíð valdagrundvöllinn í þessa baráttuaðferð. Hann er óskoraður foringi Sjálfstæðisflokksins og sá forsætisráðherra lýðveldisins sem lengst hefur setið. En á meðan Davíð heldur sig utan (og ofan) við kosningakarpið heyrast stöðug frýjunarhróp úr hin- um turninum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lagði upp með það í sinni landsmálabaráttu að skora Davíð á hólm og lýsa því yfir að tímabært væri að koma honum frá. Spaug- stofan hefur nú gert ódauðlega setn- inguna þjóðkunnu: „Þetta byrjaði allt í Borgarnesi“. Og þó sannleikur- inn sé sá, að áskorun Ingibjargar hafi verið komin til löngu fyrir Borgarnes, þá var hún vissulega ítrekuð þá, rétt eins og hún hefur verið ítrekuð margoft síðan. Ásak- anir Ingibjargar um pólitísk af- skipti stjórnvalda af atvinnulífinu særðu raunar fram viðbrögð frá Davíð og þegar ásakanir um spill- ingu og rógburð náðu hámarki í kjölfar mánudagsmorgunhugvekju hans í Ríkisútvarpinu, áttu menn von á að einvígið milli turnbúanna væri að hefjast fyrir alvöru. Vissu- lega skorti rödd Davíðs sinn venju- lega myndugleik á meðan hann var í þessum mútum, en hann er nú óðum að ná sér og var orðinn sjálf- um sér líkur á landsfundinum í gær. Hann hefur hins vegar einu sinni enn lært þá lexíu að það getur verið hættulegt ímyndinni að stíga af stallinum og lenda í deilum um for- gengilega hluti eins og hver annar dauðlegur pólitíkus. Þess vegna er ólíklegt að Davíð muni aftur bregðast við hrópum og ögrunum úr turni Ingibjargar með því að „stíga af stallinum“ og mæta Ingibjörgu Sólrúnu í kappræðum um skattamál, svo notað sé orðalag sem ættað er frá Ingibjörgu sjálfri. Hún mun því geta tekið undir með flokksbróður sínum Helga Pé og Ríó: „Ekkert svar, ekkert svar.“ Hins vegar er greinilegt að ögrunum og tilraunum Ingibjargar til að særa Davíð niður úr hásæti sínu hefur engu að síður verið svar- að. En í staðinn fyrir Davíð fær hún Geir. Geir tekur að sér þessa glímu. Fyrst gerir hann það sem fjármála- ráðherra og ber til baka ásakanir stjórnarandstöðunnar og Ingibjarg- ar Sólrúnar um skattahækkun ríkis- stjórnarinnar. Skattalækkun er skattalækkun, hét það hjá Geir. Og í fyrrakvöld fengu kjósendur að sjá allt annað sjónvarpseinvígi í Kast- ljósi Sjónvarps en þeir áttu von á fyrir nokkrum vikum. Það var boðið upp á einvígi Geirs og Ingibjargar Sólrúnar, en ekki Ingibjargar og Davíðs. Varla skoðast slíkt nema hálfur sigur í herbúðum Ingibjarg- ar, þó vissulega sé það viðurkenning að hafa knúið Geir í umræður við sig um skattamálin. Enn er of snemmt að spá því hvort landsföðurtaktík Davíðs dug- ar honum í enn einar kosningar, eða hvort breyttar pólitískar kringum- stæður hafa gert hana úrelta. Það mun skýrast í næstu þáttum þessar- ar turnóperu, sem kennd er við kosningabaráttuna. ■ Um daginnog veginn BIRGIR GUÐMUNDSSON ■ stjórnmálafræðingur skrif- ar um nýja hernaðaráætl- un sjálfstæðismanna. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um aukna skattbyrði á almenning. Ekkert svar, ekkert svar? ■ Bréf til blaðsins Hafa lofað fleiru Sjálfstæðisflokkurinn lofar nú að afnema með öllu tekjutengingu barnabóta ... Áætla má að það loforð eitt og sér kosti um 7 millj- arða króna. Þetta virkar auðvitað grátbroslegt þegar litið er til þess að þeir hafa skert barnabætur frá 1995 um 8-11 milljarða. JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Á ALTHINGI.IS/JOHANNA Fjöldamorð í Írak Sjálfstæðisflokkurinn er magnað- ur stjórnmálaflokkur. Hann geta allir stutt, sem eindregið eru samþykkir hinni nýju heims- valdastefnu Bush forseta og fjöldamorðum Bandaríkjanna á Írökum. JÓNAS KRISTJÁNSSON Á JONAS.IS ■ Af Netinu Orð skulu standa Valur Kristinsson skrifar: Ég taldi orðheldni mottó hjá yfir-mönnum Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Svo virtist ekki vera þegar loforð um starfslokasamn- inga við starfsmenn var slegið af og hreinlega svikið. Tilkynning barst í byrjun marsmánaðar að ekkert yrði úr starfslokasamningum og kom hún eins og köld vatnsgusa framan í fólk. Fólkið sem hlut á að máli var að hætta vegna aldurs og af heilsu- farsástæðum. Yfirmönnum þeirra hafði verið sagt að engir starfsloka- samningar yrðu gerðir 1. júní á þessu ári en að uppsögnum yrði skilað inn fyrir 1. maí. Annað kom á daginn. Engir starfslokasamningar verða gerðir við þetta fólk. Svona framkoma rýrir það traust og trún- að sem ríkir milli íslenskra starfs- manna Varnarliðsins og manna í efstu stjórnunarstörfum. ■ Í Fréttablaðinu í gær undir liðn-um Af Netinu gerðist þau mistök að tekin voru ummæli Gary Kasparov, fyrrv. heimsmeistara í skák, sem hann birti í The Wall Street Journal 22. mars sl., af vef- síðu Björns Bjarnasonar, alþingis- mann Sjálfstæðisflokksins. Mátti skilja sem svo að ummælin væru höfð eftir Birni. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. ■ ■ Leiðrétting Ríkið tók af mikið af aukningu kaupmáttar Andrés Sigmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokks: Gífurleg rógsherferð Það sem fram hefur komið í yfirlýsingu sem sautján bæjarfulltrúar sjálfstæðis- og framsóknarmanna skrif- uðu undir er hluti af gífurlegri rógsherferð gegn mér persónulega sem kemur úr herbúðum sjálfstæðismanna. Þetta gekk svo langt að eftir bæjarstjórnarfund um dag- inn var lögreglan send á eftir mér til þess að láta mig blása í blöðru. Þetta gerði og auðvitað var þar ekkert að finna. Ég ræddi við lögregluna og benti þeim á að þetta væri hluti af rógsherferð gegn mér. Þeir skildu það og sögðu einfaldlega þurfa að gera þetta vegna þess að ábending hafði borist. Ég vorkenni fólki sem telur sig þurfa grípa til slíkra hluta. Ég þakka mínu starfsfólki svo og fjölskyldu minni fyrir þann stuðning sem þau hafa sýnt mér. Hvað framhaldið varðar mun ég svara þessum ásökunum á viðeigandi stað og á viðeigandi hátt. Arnar Sigurmundsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks: Kom í opna skjöldu Samstarfið við Framsóknarflokkinn og óháðra gekk mjög vel. Þar var einungis á síðustu vikum að allur hóp- urinn varð var við að formaður bæjarráðs og eini bæj- arfulltrúi Framsóknar og óháðra sló orðið slöku við. Á þessu níu mánaða tímabili okkar koma aðeins upp eitt ágreiningsmál sem orð var á gerandi. Við náum góðri sátt um málefnasamning til fjögurra ára og réðum okk- ur góðan og ópólitískan bæjarstjóra. Þess vegna kom það okkur í opna skjöldu að Andrés tók sig út úr hópn- um og fór að draga sig til hliðar og semja við V-listann. Það sýnir hversu illa staddur hann er innan flokksins að hann fór niður í 12. sæti til að finna sér samstarfsmann. Hvað rógsherferð varðar vísa ég öllum ummælum Andrésar aftur til föðurhúsanna og tel slíkan málflutn- ing tilbúning. Átökin í Eyjum Skiptar skoðanir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.