Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 37

Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 37
FÖSTUDAGUR 28. mars 2003 TÓMAS R. EINARSSON Ég keypti kontrabassann minnárið 1988 af Jóni bassa Sigurðs- syni. Þar áður var hann í eigu Bjössa bassa, sem hét Sigurbjörn Ingþórsson. Þeir Jón bassi og Bjössi voru á tímabilinu frá 1950 fram til ‘70 eða ‘80 helstu bassa- leikarar landsins. Það er gaman að hafa eignast bassa sem þeir áttu báðir. Hljóðfærið kom hingað eftir seinni heimsstyrjöld. Þá kom töluvert af hljóðfærum frá Þýska- landi og ég held að hann hafi kom- ið þaðan. Hann er reyndar ekki með ættbók eins og hundarnir. En bakið á honum þykir vera til vitn- is um að hann sé smíðaður fyrir 1880. Og þegar ég spilaði í Buenos Aires fyrir fimm árum hitti ég þar argentískan kontrabassaleik- ara sem þóttist vera mikill sér- fræðingur og sagði að þessi bassi væri ekki yngri en frá 1810. En það er fullkomlega óstaðfest, ég hef engin skjöl því til sönnunar. Hljóðfærið er mikið sprungið, hefur oft þurft að fara í viðgerð. En það er gamalt og virðulegt.“ Hljóðfæriðmitt  Myndlistarmaðurinn Gunnar Örn sýnir í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41. Verkin á sýningunni nefnast Sálir og Skuggi.  Þór Magnús Kapor er með mynd- listarsýningu í Listasal Man, Skóla- vörðustíg 14.  Finnbogi Pétursson myndlistarmað- ur sýnir innsetningu í Kúlunni í Ás- mundarsafni þar sem hann myndgerir hljóð. Sýningunni lýkur um helgina  Í sal Íslenskrar grafíkur, sem er hafnarmegin í Hafnarhúsinu, sýnir Alistair Macintyre stór pappírsverk, sem unnin eru með ís og járnlitarefni.  Helgi Þorgils Friðjónsson er með einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann sýnir þar eingöngu ný málverk.  Í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir sýn- ing á áður ósýndum verkum listakon- unnar Louisu Matthíasdóttur.  Listamaðurinn Svandís Egilsdóttir er með myndlistarsýningu í Galleríi Sævar Karls. Á sýningunni eru olíumálverk og skúlptúr. Þetta er fyrsta einkasýning hennar í Reykjavík.  Í Arinstofu Listasafns ASÍ stendur yfir sýning á nokkrum konkretverkum frá sjötta áratug síðustu aldar. Á sýning- unni eiga verk listamennirnir Benedikt Gunnarsson, Hjörleifur Sigurðsson, Nína Tryggvadóttir, Valtýr Pétursson og Þorvaldur Skúlason. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.