Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 38

Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 38
Breska hiphopsveitin TheStreets hefur bætt sér í hóp þeirra sveita sem koma fram á Hróarskelduhátíðinni í ár. Hátíðin er óðum að taka á sig mynd og áður hafa boðað koma sína Cold- play, Queens of the Stone Age, Metallica, Iron Maiden, Blur og óstaðfestar fregnir herma að Björk Guðmundsdóttir komi fram. Æskuheimili Bítilsins JohnLennon í Liverpool hefur nú verið opnað almenningi. Það var ekkja hans, Yoko Ono, sem stóð fyrir því. Lennon bjó í húsinu frá 5 ára aldri þar til að hann fluttist að heiman 23 ára gamall árið 1963. Ono keypti húsið fyrir mörgum árum og gaf bæjaryfirvöldum það fyrir skömmu í þeim tilgangi að opnað yrði þar safn. Hún segist vera himinlifandi yfir því að þetta sé nú orðið að veruleika. „Hann bjó til draum í svefnherberginu í þessu húsi og gerði þann draum að veruleika fyrir allan heiminn. Og hann breytti heiminum með þessum draumi,“ sagði hún í viðtali við BBC. 38 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3.40, 8 og 10.20 THE RING kl. 10.30 b.i. 16 ára SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8 TRAPPED b.i. 12 ára kl. 5.50, 8, 10.10 GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 4 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12 b.i. 12 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 8 Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 b.i. 14 ára kl. 6, 8 og 10 NÓI ALBINÓI kl. 5.50 og 8 8 FEMMES kl. 10.10ADAPTATION kl. 8 og 10.30NOWHERE IN AFRICA kl. 4.30HOUSE OF HEARTS MAN WITHOUT A PAST kl. 6 NORRÆNIR BÍÓDAGAR Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára THUNDERPANTS kl. 4 og 6 25th HOUR kl. 8 og 10.10 kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 6, 8 og 10.05 CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30 SOLARIS b.i. 12 kl. 5.50, 8 og 10.10 ■ MÚSÍKTILRAUNIRFréttiraf fólki Felix Bergsson var 19 ára gamallþegar Músíktilraunir breyttu lífi hans. Greifarnir sigruðu á fjórðu tilraununum, sem haldnar voru 1986. Þegar Felix steig fyrst á svið með Greifunum á undanúr- slitakvöldi tilraunanna hafði hann verið liðsmaður í rétt rúma viku. Hinir Greifarnir höfðu tekið þátt árið áður og undir öðru nafni og voru nú staðráðnir í því að sigra. Felix segist varla hafa þekkt hina liðsmennina með nafni á þeim tíma. „Greifarnir urðu frægir á einni nótt,“ rifjar Felix upp. „Það var ekki mikið af léttum sveitum á þessum tíma og það var eins og myndast hefði gat. Það vantaði eitt- hvert „Írafár“. Við fengum forsíð- ur á öllum blöðum og „Útihátíð“ fór mjög fljótlega í spilun í kjölfarið. Ég segi oft að sveitin hafi orðið að- eins of fræg, aðeins of snemma.“ Sveitin fékk hljóðverstíma í sig- urverðlaun og notaði þá vel til þess að hljóðrita fyrstu þröngskífuna, „Blátt blóð“, sem kom út um sum- arið. „Við spiluðum á tvennum stór- um tónleikum í Reykjavík sem gerðu mikið fyrir sveitina. Við spil- uðum á afmælishátíð Reykjavíkur- borgar og á 17. júní með Fine Young Cannibals og Madness í Laugardalshöll. Það voru stór og mikil gigg. Eftir það kýldum við á sveitaböllin. Vorum samt bara með 20 lög á dagskránni, spiluðum þau bara aftur og aftur.“ Felix minnist þess að Greifarnir kepptu á móti mörgum pönksveit- um á úrslitakvöldinu. Til dæmis nefnir hann Voice, sem síðar varð að Rauðum Fletum. Einnig segir hann að Guðmundur Pétursson gít- arleikari hafi stigið sín fyrstu spor á sömu tilraunum og þeir unnu. „Hinir í sveitinni hans voru ekkert svo góðir en hann spilaði gítarsóló með tönnunum, alveg á milljón. Það er alltaf mjög mikill ferskleiki og gredda í gangi þarna sem er mjög skemmtileg. Listamenn ná engum árangri fyrr en þeir prófa efni sitt á áhorfendum. Músíktilraunir eru frábær vettvangur til þess.“ Þær sveitir sem þegar höfðu tryggt sér keppnisrétt í úrslitum þegar blaðið fór í prentun voru Heimskir synir, Doctuz, Amos, Lokbrá, Dáðadrengir, Fendrix, Drain, Betlehem, Enn ein sólin, Danni & Dixieland-dvergarnir, Still not fallen og Amos. Gestasveitir í kvöld verða fyrr- um sigursveitirnar Búdrýgindi og Maus ásamt hollensku harðkjarna- sveitinni Instil. Úrslitin ráðast í Austurbæ við Snorrabraut og er húsið opnað kl. 18:00. Inngangseyrir er 800 kr. Rás 2 sendir beint út frá tilraun- unum. biggi@frettabladid.is Það kom kvikmyndaáhugamönn-um lítið á óvart að þýska kvik- myndin „Hvergi í Afríku“ skyldi hljóta Óskarsverðlaunin í ár sem „besta erlenda myndin“. Henni hafði verið spáð velgengni enda hafði henni gengið vel á kvik- myndahátíðum fram að hátíðinni. Leikstjóri myndarinnar, Caro- line Link, lét sig þó vanta á hátíðina til þess að lýsa yfir andstöðu sinni við beitingu hervalds í Írak. Myndin er gerð eftir bók Stef- anie Zweig, sem ritaði sögu Redrich fjölskyldunnar. Myndin hefst skömmu áður en seinni heimstyrjöldin skellur á. Þýsk gyðingafjölskylda ákveður að flýja land sitt og ofsóknir nasista og flytja til Kenýa. Þar ætlar fjöl- skyldan að hefja nýtt líf. Þau kaupa sér einangrað bóndabýli og ætla að lifa af búskap. Dóttirin er fimm ára og upp- götvar því undur Afríku í gegnum augu barnsins. Búskapurinn geng- ur ekki sem skyldi og foreldrarnir glíma við verulega fátækt og fyll- ast örvæntingu. Heimilisfaðirinn Walter á erfitt með að aðlagast hinum nýju aðstæðum sínum og saknar fyrrum þjóðar sinnar. Sökn- uðurinn heldur áfram þrátt fyrir að hann sannfærist um það að öll skyldmenni hans í Þýskalandi hafi verið drepin. Þegar stríðinu lýkur þarf fjöl- skyldan svo að ákveða hvort hún eigi að flytja aftur til Þýskalands. Mæðgurnar hafa vanist tilvist sinni í Kenýa en Walter vill ólmur fara. Myndin er sýnd af Film-undri í samvinnu við Ísl. Kvikmyndasam- steypuna. biggi@frettabladid.is HVERGI Í AFRÍKU Þýska Óskarsverðlaunamyndin „Nirgendwo in Afrika“ er drama sem segir frá gyðingafjöl- skyldu sem flýr Þýskaland nasista og flytur til Kenýa. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM: Internet Movie Database 8.0 / 10 Rottentomatoes.com 90% = Fresh Entertainment Weekly B Los Angeles Times 4 1/2 stjarna AÐRAR FRUMSÝNINGAR UM HELGINA: Omfavn mig måne (Faðmaðu mig, Máni) Cradle 2 the Grave National Security Gyðingar í Kenýa Í dag verður Óskarsverð- launamyndin „Hvergi í Afríku“, eða „Nirgendwo in Afrika“ eins og hún heitir á frummálinu, frumsýnd. ■ KVIKMYND GREIFARNIR Músíktilraunir Tónabæjar voru áður fyrr haldnar í Skaftahlíð 24, sem nú hýsir DV. Felix Bergsson hafði verið tíður gestur á Músíktilraunum áður en hann vann þær með hljómsveitinni Greifunum árið 1986. „Ég elti sveitir eins og D.R.O.N. á röndum. Þetta gerir tónlistarlífinu mjög gott. Mér finnst t.d. Búdrýgindi mjög skemmtileg.“ „Ferskleiki og gredda“ Í kvöld ræðst það hvaða sveit bætist í hóp þeirra 20 er hafa sigrað í Músíktilraunum. Greifarnir urðu landsfrægir er þeir unnu tilraunirnar árið 1986. Felix Bergsson rifj- ar upp þá daga þegar blátt blóð rann um æðar hans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.