Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 39
39FÖSTUDAGUR 28. mars 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10
THE HUNTED 5.50, 8, 10.15 og 12.20
THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.15 og 12.15 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 10.15 og 12.20
FRIDA b.i. 12 kl. 5.30 og 8 THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20
GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Umfjöllunkvikmynd
Skemmtilegt
feigðarflan
Unglingahrollurinn Final Dest-ination var ekki neitt sérstak-
lega eftirminnileg mynd en þar
sagði frá vinahópi sem slapp fyrir
tilviljun við það að farast í flug-
slysi. Það þýddi þó ekki að þeirra
biði björt framtíð þar sem Dauðinn
sjálfur er víst með einhverja risa-
áætlun í gangi. Þeir sem eru eyrna-
merktir honum eiga engrar undan-
komu auðið og því kallaði hann
krakkana til sín í undarlegum slys-
um í sömu röð og þeir áttu að deyja
í flugvélinni.
Í fljótu bragði sér maður ekki
hvernig nokkrum manni datt í hug
að gera framhald af myndinni og
þess vegna kemur Final Dest-
ination 2 skemmtilega á óvart. Hún
er nefnilega þrælspennandi og nær,
á köflum, upp góðum hrolli. Dauð-
inn er einstaklega hugmyndaríkur
þegar kemur að því að koma þeim
persónum myndarinnar í hel sem
sluppu við skelfilegt bílslys, og við
fáum hæfilegan skammt af subbu-
legum og eftirminnilegum dauðs-
föllum.
Tengingarnar við fyrri myndina
eru sterkar og margar og virðast í
upphafi ætla að vera hallærislegar
en þar sem myndin tekur sig mátu-
lega alvarlega tekst þetta ágætlega
og útkoman er því hinn hressileg-
asta unglingahrollvekja sem ætti að
fullnægja öllum þeim sem á annað
borð kunna að meta slíkar myndir.
Þórarinn Þórarinsson
Óskarsverðlaunahafinn Eminemkaus frekar að vera heima en
að mæta á verðlaunahátíðina.
Ástæðan var rifrildi við Gil Cates,
sem krafðist þess að rapparinn rit-
skoðaði texta lagsins „Lose Your-
self“ ef hann kæmi fram á hátíð-
inni. Eminem virðist ekki hafa
verið mjög spenntur yfir tilnefn-
ingu sinni því hann kaus að sofa
frekar en að horfa á hátíðina í
sjónvarpinu. Fyrstu skilaboðin
sem biðu hans þegar hann vaknaði
daginn eftir voru að hann væri
kominn í hóp verðlaunahafa. Ætli
honum hafi ekki bara verið alveg
sama?
Tónlistarmaðurinn LennyKravitz hljóðritaði á dögunum
lag með vinsælasta
tónlistarmanni
Íraka. Sá heitir
Kadim Al Sahir og
gerðu þeir saman
lagið „We Want
Peace“ til þess að
mótmæla stríðs-
átökum í Írak. Lag-
ið var gefið út á Netinu á heima-
síðunni „Rock the Vote“, sem hvet-
ur ungt fólk til þess að skipta sér
af stjórnmálum.
FINAL DESTINATION 2
Leikstjóri: David R. Ellis
Aðalhlutverk: Ali Larter, A.J. Cook.