Fréttablaðið - 28.03.2003, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum, sem
er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við skammtímabankalán.
Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt
til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Stokkaðu upp fjármálin
– með hagstæðari lánum
Allt að 75%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
80
Óhappatala
Ástæðan fyrir því að við Íslend-ingar erum andlegt stórveldi
er sú að við höfum ræktað kraft-
miklar og snarráðar heilasellur
með mataræði okkar gegnum tíð-
ina. Við stöndum því fyllilega jafn-
fætis bæði selum og háhyrningum
gáfnafarslega séð, ef maður getur
þá talað um að standa þessum
hæfileikaríku dýrum „jafnfætis“
því að þau eru fótalaus – sem er
vitanlega heppilegt fyrir okkur því
að ef sjávarspendýrum hefðu vaxið
fætur til að ganga á land er hætt
við að mannkynið spilaði á aðra
fiðlu í sinfóníu allífsins.
FISKUR, soðinn, steiktur, saltað-
ur, þurrkaður, barinn, siginn, kæst-
ur og grafinn hefur verið undir-
stöðumatur þjóðarinnar allt frá því
er fyrstu landnemarnir flýðu hing-
að undan ofsóknum norsku skatta-
lögreglunnar til að fá að ala upp
börn sín í skattaparadís, og grunaði
ekki að afkomendur þeirra ættu
eftir að neyðast til að skrá fyrir-
tæki sín á Jómfrúreyjum.
NÚ ER VÁ fyrir dyrum því að
rannsóknir sýna að þjóðin er að
mestu leyti hætt að nærast á fisk-
meti. Þess í stað borðar fólk kind-
ur, kýr og jafnvel hesta og svín og
sumir ganga svo langt að þeir
leggjast á fiðurfé og borða hænsn-
fugla, rjúpur á jólum og varphæn-
ur eða unga á rúmhelgum dögum.
EF SVO FER FRAM sem horfir
mun greindarvísitala þjóðarinnar
hríðlækka á næstu árum í takt við
minnkandi fiskneyslu. Við þessu
þarf að sporna. Nú er svo komið að
kíló af roðflettum ýsuflökum kost-
ar 1262 krónur, þannig að almenn-
ingur hefur ekki efni á að neyta
þessarar hollu fæðu sem inniheld-
ur bæði alfa- og omegasýrur þær
sem veldi okkar byggist á. Hér
þarf að grípa til róttækra aðgerða
áður en þjóðin forheimskast af
fiskleysi. Stjórnvöld ættu að þjóð-
nýta fiskinn í sjónum umhverfis
landið og gera hann að eign al-
mennings. Þar fyrir utan ætti
Tryggingastofnun að opna fisk-
markað og afhenda hverju manns-
barni einn þorsk eða eina ýsu á
viku að eigin vali öllum að kostnað-
arlausu og gáfnafari okkar til upp-
byggingar. Talan 1262 er gömul
óhappatala í sögu þjóðarinnar og
veit aldrei á gott. ■
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg . i s