Fréttablaðið - 17.04.2003, Side 34
Á FÖSTUDAGINN LANGA
Kristin kirkja reynir hvað hún getur að
halda lífi í föstudeginum langa í ljóshraða-
samfélagi nútímans.
Stemningin
lifir enn
Föstudagurinn langi hefurlöngum haft yfir sér drunga-
legan blæ sem margir vilja ólmir
vera lausir við. Sérstaklega þeir
yngri vilja geta notað þennan frí-
dag til þess að skemmta sér. Aðr-
ir forða sér úr bænum.
Margir skemmtistaðir eru
hins vegar farnir að notfæra sér
óspart rýmkaðar reglur um opn-
unartíma á páskum og bjóða
gestum í djammið strax eftir
miðnætti á föstudaginn langa.
Á hinn bóginn hefur dregið
verulega úr tónleikahaldi yfir
páskana. Ekki er langt síðan tölu-
vert var um flutning á stórum
kórverkum, óratoríum og passí-
um, sem mikið var lagt í. En tón-
leikahaldarar virðast margir
vera að gefast upp á því. Fólk vill
frekar hvíla sig og fara út úr
bænum frekar en að fara á tón-
leika, og það á ekki síður við um
tónlistarfólkið.
„Þrátt fyrir alla nútímavæð-
ingu heldur föstudagurinn langi
samt ákveðinni sérstöðu og hef-
ur yfir sér vissa stemningu.
Þessi mikli áhugi sem er fyrir
lestri Passíusálmanna bendir
eindregið til þess,“ segir Hörður
Áskelsson, organisti í Hallgríms-
kirkju. „Okkur sem lifum og
hrærumst í kirkjutónlist þætti
líka agalegt ef ekki gæfist lengur
tækifæri til að flytja þau ógrynni
af tónlist sem er samin sérstak-
lega fyrir þennan dag.“ ■
34 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
Þetta er orðin löng hefð hjá okk-ur að lesa Passíusálmana á
föstudaginn langa,“ segir Hörður
Áskelsson, organisti í Hallgríms-
kirkju. „Ég hef ekki tölu á því
hvað það eru mörg ár síðan þetta
byrjaði. Það var Eyvindur Er-
lendsson leikari sem byrjaði á
þessu. Þá var þetta mikil nýjung,
en hann hafði reyndar byrjað á
þessu á Selfossi áður. En það hafa
ýmis form verið á lestrinum. Eitt
árið sáu til dæmis eingöngu af-
komendur Hallgríms Péturssonar
um lesturinn. Í annað skiptið voru
það bara prestar.“
Þetta árið var ákveðið að láta
bæði fyrrverandi og núverandi
meðlimi Mótettukórs Hallgríms-
kirkju sjá um lesturinn. Ástæðan
er sú að kórinn á tuttugu ára
starfsafmæli.
„Ég fæ meira að segja að lesa
núna. Mér finnst það alveg gríðar-
lega spennandi og mjög ábyrgðar-
fullt. Maður vonar bara að maður
standi undir því.“
Um kvöldið verða svo tónleikar
í kirkjunni, sem einnig er orðin
löng hefð fyrir.
„Við höfum stundum flutt stór
verk með kórunum okkar og
stórri hljómsveit. En núna er það
litli kórinn okkar sem verður með
tónleika hér í kirkjunni. Þetta er
miklu hljóðlátari framkvæmd.“
Flutt verður tónlist eftir
barokktónskáldin Scarlatti og
Lotti. Einnig verða flutt tvö róm-
antísk verk eftir Bruckner og
Brahms.
„Eftir Scarlatti flytjum við
Stabat mater, sem er mjög gríp-
andi verk og fallegt. Textinn er
mjög sorglegur og fjallar um Mar-
íu sem grætur örlög sonar síns við
krossinn. Túlkunin á textanum er
mjög andrík og víða eru mjög
áhrifamiklir hápunktar í verkinu.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ FÖSTUDAGURINN LANGI■ FÖSTUDAGURINN LANGI
Rótgrónar hefðir
í Hallgrímskirkju
Við prestarnir erum stöðugt aðglíma við þann vanda að finna
tengingarmöguleika við samtím-
ann. Við þurfum alltaf að reyna að
finna hinn lifandi boðskap í
trúnni, þannig að hann felist ekki
bara í því að tala um eitthvað sem
er löngu liðið,“ segir séra Örn
Bárður Jónsson, prestur í Nes-
kirkju.
Séra Örn Bárður ætlar að gera
nýstárlega tilraun í kirkju sinni á
föstudaginn langa. Þar verður
efnt til fjölbreyttrar dagskrár um
þjáningu og lausn. Meðal annars
verður kynnt starfsemi Hjálpar-
starfs kirkjunnar og Amnesty
International. Sýnd verða stutt
skeið úr kvikmynd um ævi Jesú
Krists og lesið verður úr Passíu-
sálmum séra Hallgríms Péturs-
sonar.
„Föstudagurinn langi er sá dag-
ur þegar maður íhugar þjáningu
Jesú Krists. Um leið bendum við á
að enn er hér í heimi fólk sem býr
við þjáningar. Þessi dagskrá er til-
raun til að brjóta upp þessa hefð-
bundnu nálgun kirkjunnar á föstu-
daginn langa sem er að hafa guðs-
þjónustu með passíusálmalestri.“
Að lokinni þessari dagskrá
flytja þeir Martin Frewer fiðlu-
leikari, Dean Ferrell bassaleikari
og Steingrímur Þórhallsson orgel-
leikari sónötur eftir Biber, sem
var tónskáld á 17. öld.
Í kirkjunni verður einnig kom-
ið upp íhugunarstöðvum þar sem
verða tól og tæki sem minna á
þjáningu og valdbeitingu. Einnig
verður í kirkjunni verk eftir Har-
ald Jónsson myndlistarmann sem
varpar sérstæðum blæ á alla at-
höfnina.
„Þegar fólk gengur inn í kirkj-
una lendir á því rauður ljósgeisli
úr slidesmyndavél með myndum
sem teknar eru af blóði í smásjá.
Þannig að fólk gengur bókstaflega
inn í blóðið.“ ■
■ FÖSTUDAGURINN LANGI
Nýstárleg dagskrá í Neskirkju
SCHOLA CANTORUM MEÐ HERÐI ÁSKELSSYNI ORGANISTA
Lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar hefst í Hallgrímskirkju klukkan ellefu að morgni
og stendur fram undir klukkan sjö. Um kvöldið verður svo flutt tónlist frá barokktímanum
og rómantíska tímanum.
SÉRA ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON
Bryddar upp á nýjungum í kirkju sinni á
föstudaginn langa.
Kvöldtónleikar í
Reykjahlíðarkirkju
Þetta er í sjötta sinn sem viðhöldum tónleika þarna í kring-
um páskana“, segir Laufey Sig-
urðardóttir fiðluleikari, en hún
ætlar að leggja land undir fót
ásamt þeim Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur, Þórunni Ósk Marinósdótt-
ur, Bryndísi Björgvinsdóttur, Há-
vari Tryggvasyni, Kjartani Óskar-
syni, Brjáni Ingasyni og Þorkatli
Jóelssyni og leika á tvennum tón-
leikum í Mývatnssveit á föstudag
og laugardag.
„Við spilum í Reykjahlíðar-
kirkju klukkan níu að kvöldi
föstudagsins langa og í Skjól-
brekku klukkan tvö á laugardeg-
inum. Við erum með tvær ólíkar
efnisskrár. Kirkjuleg tónlist verð-
ur vitaskuld ráðandi á föstudegin-
um en á laugardeginum verðum
við með hefðbundna kammertón-
leika. Við leikum líka margar
þekktar aríur og íslensk sönglög
sem Kjartan Óskarsson hefur út-
sett.“
Laufey segir heimamenn hafa
sótt tónleikana afskaplega vel í
gegnum árin. „Við lítum líka á
þessa tónleikahefð sem lið í menn-
ingartengdri ferðaþjónustu og
gerum þetta í samstarfi við Skútu-
staðahrepp og njótum stuðning
Hótels Reynihlíðar.“ ■
HÓPURINN Á ÆFINGU
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari segist líta á tónleikana sem ákveðinn valkost til hliðar við
útivistarafþreyingu sem fólk sækist eftir um páskana.
■ TÓNLIST
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
er lokað yfir páskana.
Gleðilega páska!
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
OPIÐ ALLA PÁSKANA
HAFNARHÚS
Sovésk veggspjöld, Penetration, Erró
Leiðsögn annan í páskum kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
10-17- Helgi Þorgils, Mobiler, Kjarval
Leiðsögn annan í páskum kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
13-16
Eygló Harðardóttir, Ásmundur Sveinsson
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið
er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og
föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hóp-
um eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í
síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Þetta vil ég sjá!
Ingibjörg Sólrún velur verk
á sýninguna.
Ríkarður Long Ingibergsson sýnir
tréskurð í Félagsstarfi Gerðubergs.
Leiðsögn um sýningu
Ríkarðs um helgar.
Ath. síðasta sýningarhelgi.
Tónleikar með Gunnari Kvaran og Elsu
Waage sumardaginn fyrsta.
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.bokasafn.is
BORGARBÓKASAFN
80 ÁRA
Afmælishátíð í Grófarhúsi
á sumardaginn fyrsta
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009
STÓRA SVIÐ
ÖFUGU MEGIN UPPÍ
e. Derek Benfield
Forsýning fi 24/4 kl 20 - Kr. 1.000
FRUMSÝNING su 27/4 - UPPSELT
Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 1/5 kl 20 - 1. maí tilboð kr. 1.800
Fö 2/5 kl 20
Lau 10/5 kl 20
PUNTILA OG MATTI
e. Bertolt Brecht
Lau 26/4 kl 20
Su 4/5 kl 20
Su 11/5 kl 20
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 25/4 kl 20
Lau 3/5 kl 20
Fö 9/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í vor
DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR
Dark side of the Moon
Mi 23/4 kl 20
Mi 23/4 kl 22:30
NÝJA SVIÐ
SUMARÆVINTÝRI
e. Shakespeare og leikhópinn
Mi 23/4 kl 20
Lau 26/4 kl 20
Su 27/4 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 25/4 kl 20
Fi 1/5 kl 20
KVETCH
eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 24/4 kl 20
Lau 3/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
15:15 TÓNLEIKAR - BERGMÁL FINNLANDS I
Ferðalög - Poulenc-hópurinn
Lau 26/4 kl 15:15
GESTURINN
e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 11/5 kl 20
Su 18/11 kl 20
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR
eftir Eve Ensler
Lau 3/5 kl 20
Su 11/5 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LITLA SVIÐ
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 26/4 kl 14
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Fö 25/4 kl 20
Lau 27/4 kl 20
Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT
Fö 2/5 kl 20
Miðasalan, sími 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is