Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 6
6 26. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
■ Asía
■ Asía
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.92 0,13%
Sterlingspund 120.65 0,84%
Dönsk króna 11.24 0,54%
Evra 83.41 0,47%
Gengisvístala krónu 119,19 0,43%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 288
Velta 3.097 milljónir
ICEX-15 1.403 -0,20%
Mestu viðskipti
Líf hf. 378.149.280
Bakkavör Group hf. 194.384.785
Landsbanki Íslands hf. 111.931.634
Mesta hækkun
Olíuverslun Íslands hf. 5,00%
Eskja hf. 1,91%
Pharmaco hf. 0,61%
Mesta lækkun
Flugleiðir hf. -4,44%
Íslandssími hf. -3,31%
Sölumiðstöð Hraðfr.húsanna hf. -0,98%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8303,2 -1,6%
Nasdaq*: 1436,3 -1,4%
FTSE: 3870,2 -0,7%
DAX: 2841,1 -1,8%
NIKKEI: 7699,5 -2,0%
S&P*: 900,9 -1,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Nýja Norræna kom til Seyðisfjarðar áþriðjudag. Hvað kostaði skipið og
hvað tekur það marga farþega?
2Heimsþekktur strengjakvartett ætlarað flytja lög íslensku sveitarinnar Sig-
ur Rósar á fyrirhugaðri tónleikaferð sinni
um Bandaríkin og Evrópu. Hvað heitir
kvartettinn?
3Fræg bandarísk djasssöngkona lést áheimili sínu í Frakklandi á mánudag.
Hvað hét söngkonan?
Svörin eru á bls. 46
FARALDUR Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin gaf um miðja viku út
tilkynningu þar sem fram kemur
að hún mælist til þess að allir
ferðamenn fresti ferðum sínum
til Peking og Shanxi-héraðs í Kína
og Toronto í Kanada nema brýna
ástæðu beri til ferða þangað.
Frá þessu er skýrt á heimasíðu
Landlæknisembættisins en til-
mæli Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar til ferðamanna
frá 2. apríl um að fresta ferðum
sínum til Hong Kong og Guang-
dong-héraðs í Suður-Kína eru enn
í fullu gildi. Þessi tímabundnu til-
mæli verða endurmetin í ljósi
þróunar bráðrar lungnabólgu á
þessum svæðum. Ef ástæða er til
gætu þessi tilmæli einnig beinst
að öðrum svæðum í heiminum
síðar.
Guðrún Sigmundsdóttir, sótt-
varnarlæknir hjá Landlæknis-
embættinu, segir að komið hafi
verið upp skiltum á Leifsstöð með
leiðbeiningum um hvernig bregð-
ast eigi við ef einkenna verði
vart. Embættið hefur einnig ósk-
að eftir því við Flugleiði að mið-
um verði í sama tilgangi dreift í
flugvélum fyrirtækisins.
Aðspurð um hvort ekki sé
ástæða til að banna ferðir til
sýktra svæða segir Guðrún svo
ekki vera að svo komnu máli.
Engin þjóð hafi brugðist svo hart
við enn sem komið er. ■
RÍKI OG KIRKJA „Því miður getum við
ekki annað sagt en það hafi verið
móðgandi að fá tilboð frá ríkinu
síðastliðið haust um 150 milljónir
sem lokagreiðslu. Á sama tíma var
ríkið að kaupa hús á Þingvöllum
fyrir hærri upphæð, Valhöll,“ seg-
ir séra Halldór Gunnarsson á
Holti, en hann er í samninganefnd
á vegum kirkjunnar.
Að sögn Halldórs hafa allar um-
leitanir um fundi og að sest verði
við samningaborð verið hunsaðar
af hálfu yfirvalda. Kirkjan fer
fram á arðgreiðslu af jörðum í
eigu kirkjunnar auk prestsetra
sem ríkið hefur tekið til sín og
selt. Þar er um miklar upphæðir
að ræða sem skipta milljörðum.
„Við höfum óskað eftir því að um
þessa upphæð sem út af stendur
verði gerður samningur um
ákveðnar arð-
greiðslur sem
nema 50 til 100
milljónum á ári
um ótilgreindan
tíma. Þessa fjár-
hæð hyggjumst
við nýta til þjón-
ustu við fólkið í
landinu og að
standa vörð um
það starf sem
kirkjan innir af
hendi; hjálpar-
og fjölskyldustarf. Við viljum ná
samkomulagi og komast hjá því,
vegna náinna tengsla ríkis og
kirkju, að setja fram ítrustu kröf-
ur sem skipta milljörðum.“
Halldór nefnir sem dæmi að
28. júlí 1992 gekk þáverandi land-
búnaðarráðherra frá kaupsamn-
ingi um sölu 12 jarða úr Garða-
kirkjueigninni 410 hektarar.
Kirkjan mótmælti og lét Ólafur
Skúlason biskup þinglýsa þeim
mótmælum. Ótvíræð lagaákvæði
voru þá í gildi um að Þjóðkirkjan
skyldi fá andvirði slíkra eigna, en
fyrir allt þetta land fékk kirkjan
rúmar 49 milljónir, greitt með 5,2
milljónum í útborgun og eftir-
stöðvar á skuldabréfi til 10 ára
með 2 prósent vöxtum á ári. Þetta
telur séra Halldór ótækt með öllu.
Engin áhöld séu um að söluand-
virði þessa lands átti að skila til
kristnisjóðs. Þá sé óuppgert hvað
á að gera gagnvart prestsetrinu á
Þingvöllum. Ríkið geti ekki tekið
það til sín án eignaupptöku.
Prestshúsið á Þingvöllum, þaðan
sem presti var úthýst, var byggt
að 2/3 úr kirkjujarðasjóði.
Halldór vill taka fram að ís-
lenska kirkjan hefur fengið það
sjálfstæði sem mest er á vestur-
löndum í tengslum kirkju og ríkis
með löggjöf sem heimilar kirkj-
unni að setja starfsreglur sem
hafa reglugerðarígildi um megin-
mál. Frekari aðskilnaður ríkis og
kirkju sé miklum mun flóknari en
margur hyggur. „Við náðum
samningum um kirkjujarðir árið
1997 en þær voru afhentar gegn
skuldbindingu ríkis um að greiða
laun presta og starfsmanna bisk-
ups. En prestsetrin standa út af
ásamt því sem þeim fylgir.“
jakob@frettabladid.is
LEITAÐ Í RÚSTUNUM
Slökkviliðsmenn leituðu fórnarlamba í
rústum verslunarmiðstöðvarinnar við afar
erfiðar aðstæður.
Sjö taldir af:
Gasspreng-
ing í verslun-
armiðstöð
TORONTO, AP Gassprenging jafnaði
við jörðu litla verslunarmiðstöð í
Toronto í Kanada. Sjö manns eru
taldir af en fjórir voru fluttir á
sjúkrahús með áverka.
Að sögn talsmanns slökkviliðs-
ins var verið að gera við gas-
leiðslu í byggingunni þegar atvik-
ið átti sér stað. Rúður sprungu
auk þess sem mikill eldur breidd-
ist út í kjölfar sprengingarinnar.
Töluverðar skemmdir urðu á nær-
liggjandi húsum. ■
SEX MYRTIR MEÐ KJÖTÖXUM Á
þriðja tug manna réðust að nætur-
lagi á þorp í norðvesturhluta
Bangladesh. Árásarmennirnir,
sem voru vopnaðir kjötöxum,
drógu þorpsbúa fram úr rúm-
unum og drápu sex menn á
hrottafenginn hátt, að sögn lög-
reglumanns á svæðinu. Talið er að
uppreisnarmenn úr röðum komm-
únista hafi staðið að árásinni.
SJÁVARHITI „Sjávarhiti hefur farið
hækkandi síðustu ár, en hann
sveiflast alltaf fram og til baka,“
segir Svend-Aage Malmberg hjá
Hafrannsóknastofnun.
Svend-Aage segir flæði
hlýsjávar að sunnan inn á íslensk
mið hafa aukist. Útbreiðsla hans
sé meiri en hún hefur verið í nokk-
uð langan tíma þar á undan. Þessi
hlýi sjór er angi af Norðaustur-
Atlantshafsstraumnum, svoköll-
uðum Golfstraum, en hefur ekki
áhrif á þann straum í heild. „Þessi
hækkun á hitastigi sjávar er innan
við eina gráðu í hlýja sjónum. Skil-
in á milli heita og kalda sjávarins
færast norður eða suður eftir at-
vikum. Munurinn þar er um fjórar
gráður eftir því hvaða sjógerð er á
svæðinu. Þessi skil liggja töluvert
fyrir norðan land þegar vel árar
en færast upp að landinu þegar
árar illa.“
Árið 1963 gerði vorhret sem
skemmdi út frá sér gróður og ann-
að. „Þó sjórinn sé hlýr eins og
hann var er lítil hætta á slíku vor-
hreti. Þá voru skilin á milli heita
og kalda sjósins mun nær landinu
og vindar voru kaldari. En nú
blása vindar að sunnan og skilin
mikið fjær landinu en þá var,“ seg-
ir Svend-Aage. ■
Hafrannsóknastofnun:
Hlýr sjór
umlykur landið
SJÁVARHITI HEFUR HÆKKAÐ
Lítil hætta á vorhreti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Lungnabólgufaraldurinn:
Miðum dreift í
flugvélum Flugleiða
DREIFT Í FLUGI
Til stendur að afhenda öllum farþegum
þessi spjöld í flugvélum á leið til landsins.
Þau eru með enskum texta á annarri hlið-
inni og íslenskum texta hinum megin.
HERÞYRLA FERST Í HIMALAYA-
FJÖLLUM Pakistönsk herþyrla
flaug á fjallshlíð í norðanverðu
Pakistan með þeim afleiðingum
að þrettán hermenn sem um borð
voru létu lífið. Talsmaður hersins
segir að um slys hafi verið að
ræða en vildi ekki veita nánari
upplýsingar um tildrög þess.
SPRENGING Í DÓMSHÚSI Þrír
létu lífið og 34 slösuðust þegar
öflug sprenging varð í dómshúsi í
bænum Pattan í Kasmír. Lögregl-
an telur að sprengju hafi verið
komið fyrir inni í byggingunni.
Einnig er talið hugsanlegt að
sprengju hafi verið kastað inni í
dómshúsið. Fórnarlömbin voru
öll óbreyttir borgarar.
Ríkið neitar kröf-
um kirkjunnar
Kirkjan gerir kröfu á hendur ríkinu um 50 til 100 milljóna arðgreiðslur
á ári vegna yfirtöku ríkisins á prestsetrum. Himinn og haf skilja á milli.
Móttilboð dóms- og kirkjumálaráðherra er beinlíns móðgandi.
SÉRA HALLDÓR GUNNARSSON
Vegna náinna tengsla ríkis og kirkju vill kirkjan ekki setja fram ítrustu kröfur
sem gætu numið milljörðum.
„Kirkjan fer
fram á arð-
greiðslur sem
nema 50 til
100 milljón-
um á ári um
ótilgreindan
tíma.