Fréttablaðið - 26.04.2003, Page 12

Fréttablaðið - 26.04.2003, Page 12
12 26. apríl 2003 LAUGARDAGUR Spænski kylfingurinn Sergio Garcia sveiflar kylfunni í fyrstu umferð Opna spænska meistaramótsins í golfi sem hófst á Kanarí- eyjum í fyrradag. Garcia, sem á titil að verja, hefur átt afleita byrjun á mótinu. Hann er átta höggum á eftir Englending- unum Paul Casey og Mike Tunnicliff sem eru efstir eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Golf hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 APRÍL Laugardagur Enski boltinn: Arsenal getur náð efsta sætinu FÓTBOLTI Baráttan í enska boltanum heldur áfram um helgina. Arsenal, sem er í öðru sæti deildarinnar, get- ur komist í toppsætið með sigri gegn Bolton á heimavelli sínum Highbury. David Seaman kemur að öllum líkindum aftur inn í lið Arsenal eft- ir veikindi. Fyrirliðinn Patrick Vieira og Edu verða hins vegar fjar- verandi vegna meiðsla. Guðni Bergsson og félagar í Bolton eru í harðri fallbaráttu. Tapi þeir leikn- um í dag gefa þeir West Ham mögu- leika á minnka stigamun liðanna niður í eitt stig, en West Ham sækir Manchester City heim á morgun. Chelsea, Newcastle og Liver- pool, sem öll leika í dag, eiga í harðri baráttu um tvö laus sæti í Meistaradeild Evrópu. Chelsea tek- ur á móti Fulham í miklum ná- grannaslag. Newcastle sækir Sund- erland heim og Liverpool, sem hef- ur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum, mætir WBA á útivelli. Efsta liðið, Manchester United, leikur við Tottenham á útivelli á morgun. Paul Scholes og Gary Neville koma aftur inn í liðið eftir að hafa verið í banni gegn Real Ma- drid. ■ Á BEKKNUM David Beckham kom inn á sem varamaður gegn Real Madrid og skoraði tvö mörk í 4:3 sigri United. Real komst hins vegar áfram á samanlagðri markatölu. David Beckham til Real? Orðrómur magnast FÓTBOLTI Orðrómur um félaga- skipti David Beckham úr Manchester United til Real Ma- drid fyrir um 3,5 milljarða króna hefur haldið áfram að magnast eftir að United féll úr leik gegn Real í Meistaradeildinni sl. mið- vikudag. Mörg ensk blöð héldu því fram eftir leikinn að Beckham hafi þeg- ar farið fram á félagaskiptin, en hann byrjaði á varamannabekkn- um í leiknum. Þegar hann kom inn á skoraði hann tvö af fjórum mörkum United. Beckham var einnig varamað- ur í mikilvægum deildarleikjum gegn Arsenal og Liverpool. ■ Heimsmeistarakeppnin í íshokkí: 67. keppnin hefst um helgina ÍSHOKKÍ Heimsmeistarakeppnin í íshokkí hefst í Finnlandi í dag. Tit- ilvörn heimsmeistara Slóvaka verður ekki auðvelt verkefni því þeir verða í riðli með gestgjöfum Finna, Svíum og Rússum sem þeir unnu 4:3 í úrslitaleik í fyrra. Þess- ar þjóðir keppa í Helsinki: Þýskaland, Bandaríkin, Kanada og Tékkland keppa í Tampere og Úkraína, Sviss, Lett- land og Austurríki í Turku. Japan, Danmörk, Hvíta-Rússland og Sló- venía keppa í Tampere og Helsinki. Árangur Tékka og Slóvaka í Heimsmeistarakeppni er athygl- isverður. Þjóðirnar hafa unnið helming keppnanna frá því Tékkóslóvakíu var skipt í Tékk- land og Slóvakíu árið 1993. Tékk- ar unnu árið 1996 og þrjú ár í röð frá 1999 til 2001. Fjögur fyrrum lýðveldi Sovét- ríkjanna taka þátt í keppninni. Sovétríkin voru afar sigursæl á sjöunda, áttunda og níunda ára- tugnum en eftir að ríkið liðaðist í sundur hafa aðeins Rússar náð að verða heimsmeistarar. Þeir sigr- uðu árið 1993 en silfrið í fyrra voru fyrstu verðlaun þeirra síðan þá. ■ Úrslit Meistaradeildarinnar: Gunnar og Stefán dæma HANDBOLTI Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson dæma fyrri úr- slitaleik Meistaradeildarinnar milli San Antonio Portland og Montpelli- er. Frami Stefáns og Gunnars bygg- ir án efa á fremmistöðu þeirra í Heimsmeistarakeppninni í Portúgal í vetur. Þar fengu þeir afburða góða einkunn fyrir frammistöðu í leikj- um og stóðust þrekpróf og skrifleg próf með betri einkunn en önnur dómarapör í keppninni. Danirnir Jan Boye og Bjarne Munk Jensen dæma seinni úrslita- leik Meistaradeildarinnar en þeir dæmdu úrslitaleik Króata og Þjóð- verja um heimsmeistaratitilinn í Portúgal í vetur. ■  11.15 Sýn Enski boltinn. Bein útsending frá leik Bolton Wanderers og Arsenal.  13.45 Stöð 2 Enski boltinn. Bein útsending frá leik í ensku úrvalsdeildinni.  16.00 Vestmannaeyjar Eyjastúlkur mæta Haukastúlkum í úr- slitum Esso deildar kvenna í handbolta.  16.30 Sýn Fastrax 2002. Vélasport.  17.00 Sýn Toppleikir. Sýnt frá leik Aston Villa og Birmingham.  19.20 Sýn Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Sevilla og Real Madrid.  23.10 Sýn Útsending frá hnefaleikakeppni í Las Ve- gas. Á meðal þeirra sem mættust voru fjaðurvigtarkapparnir Marco Antonio Barrera og Kevin Kelley.  10.45 Sýn Skoski boltinn. Bein útsending frá leik Rangers og Celtic.  12.55 Sýn Enski boltinn. Bein útsending frá leik Manchester City og West Ham United.  15.00 Sýn Enski boltinn. Bein útsending frá leik Tottenham Hotspur og Manchester United.  16.15 Austurberg ÍR-ingar og Valsmenn eigast við í und- anúrslitum Esso deildar karla í hand- bolta. ÍR vann fyrsta leik liðanna.  16.15 KA-heimilið KA-menn taka á móti Haukum í und- anúrslitum Esso deildar karla í hand- bolta. Haukar unnu fyrsta leik liðanna.  17.00 KR-völlur KR-ingar taka á móti færeysku meistur- unum HB í leik um Atlantic bikarinn.  17.00 Sýn Meistaradeild Evrópu. Farið er yfir leiki síðustu umferðar.  18.00 Sýn Golfmót í evrópsku PGA-mótaröðinni.  19.00 Sýn NBA. Bein útsending frá leik L.A. Lakers og Minnesota í úrslitakeppninni.  21.30 Sýn Golfmót í bandarísku PGA-mótaröðinni.  22.30 Sýn Bein útsending frá leik í úrslitakeppni NBA.  23.45 Rúv Markaregn. Mörkin úr þýska boltanum. hvað?hvar?hvenær? 24 25 26 27 28 29 30 APRÍL Sunnudagur ÍSHOKKÍ Rússinn Vladimir Antipov og Tékkinn Jan Hlavac í vináttuleik þjóðanna í Ceske Bu- dejovice á sunnudag. Antipov skoraði fyrra mark Rússa í 2:1 sigri en leikurinn var lið- ur í undirbúningi þjóðanna fyrir Heims- meistarakeppnina sem hefst í dag. HEIMSMEISTARAR 1910-2002 Rússland/Sovétríkin 23 Kanada 21 Svíþjóð 7 Tékkóslóvakía 6 Tékkland 4 Bandaríkin, Bæheimur og Bretland 2 Belgía, Finnland og Slóvakía 1 Bæheimur sigraði í keppnunum í Berlín árin 1911 og 1914 en landið var þar sem Tékkland er nú. STAÐAN L S 1. Manchester United 35 74 2. Arsenal 34 71 3. Chelsea 35 63 4. Newcastle 35 62 5. Liverpool 35 61 6. Everton 35 56 7. Blackburn 35 53 8. Tottenham 35 50 9. Southampton 34 48 10. Man. City 35 48 11. Middlesbrough 35 46 12. Charlton 35 46 13. Birmingham 35 44 14. Aston Villa 35 42 15. Leeds 35 41 16. Fulham 35 41 17. Bolton 35 39 18. West Ham 35 35 19. WBA 35 24 20. Sunderland 35 19 PIRES Robert Pires, leikmaður Arsenal, mun etja kappi við Guðna Bergsson og félaga í Bolton í dag. AP /M YN D APM YN D /G ARC IA HANDBOLTI “Það ætti ekki að koma á óvart þó viðureignin yrði fimm leikir eins og bikarúrslitaleikur- inn í vetur,” sagði Guðríður Guð- jónsdóttir, þjálfari Vals, þegar Fréttablaðið bað hana að spá í úr- slitaleiki ÍBV og Hauka. “Þarna mætast liðin sem hafa mestu og bestu umgjörðina. Ásvellir er sterkur heimavöllur og að koma til Eyja er ævintýri. Þar er mikill áhugi fyrir kvennaliðinu og um- gjörðin mjög góð. Ég á von á rosa- lega skemmtilegum leikjum og vona að svo verði handboltans vegna. Leikir þeirra í vetur hafa verið rosaleg barátta. ÍBV er sterkasta skyttulið landsins með öfluga leikmenn í öllum stöðum fyrir utan. Liðið hefur einnig mjög öflugan línu- mann, góðan markmann og horna- mennirnir, sem voru taldir veikasti hlekkurinn, hafa skilað sínu. Breiddin er meiri hjá ÍBV og það skiptir máli þegar leikið er þétt. Anna Perez var lykilmaður í fyrra en hún hefur lítið leikið í vetur. Birgit Engl spilar bara í vörninni en getur líka leikið í sókninni. Það skipti mestu máli fyrir ÍBV að ná góðum varnarleik. Haukarnir hafa mikla reynslu af úrslitakeppnum. Haukar hafa sterkann markmann, mjög sterk- ann línumann og Hönnu Stefáns- dóttur sem er besti hægri horna- maður deildarinnar og best í hraðaupphlaupum. Brynja Stein- sen kom inn í liðið um áramótin og hefur náð að rífa upp sóknar- leik liðsins. Veikasti hlekkurinn er hægri vængurinn vegna þess að þær hafa ekki örvhentan leik- mann. Harpa hefur leikið hægra megin og skilað því ágætlega. Nína hefur náð sér á strik í síð- ustu leikjum og Sonja hefur skil- að sínu í vinstra horninu. Aðall Hauka er vörnin og hraðaupp- hlaupin. Sandra Anulyté hefur leikið mjög vel í vörninni. Það er sama hvaða stöðu hún leikur í vörninni, hún skilar alltaf sínu. Viljinn í Haukaliðinu er gríðar- legur. Harpa er ósérhlífinn bar- áttumaður sem drífur liðið áfram. Gústaf Björnsson hefur mikla reynslu af úrslitakeppnum en Unnur Sigmarsdóttir, sem hefur staðið sig frábærlega með ÍBV í vetur, hefur ekki sömu reynslu. Reynsla þjálfara getur haft áhrif í úrslitakeppni. Þá skiptir ekki öllu máli hversu góður þjálfari þú ert heldur hvernig þú höndlar hlutina þegar þeir koma upp.” ■ ÍBV - HAUKAR Harpa Melsted fer fyrir Haukaliðinu í baráttunni við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn. LEIKIR ÍBV OG HAUKA Í VETUR Meistarakeppnin Haukar-ÍBV 23-24 ESSO deildin ÍBV-Haukar 27-22 ESSO deildin Haukar-ÍBV 27-25 SS Bikarinn Haukar-ÍBV 23-22 ESSO deildin ÍBV-Haukar 27-21 LEIKIR ÚRSLITAKEPPNINNAR 26.4. ÍBV - Haukar 16.00 29.4. Haukar - ÍBV 19.15 1.5. ÍBV - Haukar 19.30 3.5. Haukar - ÍBV 16.00 5.5. ÍBV - Haukar 19.15 Þrír sigrar tryggja titilinn en keppnin gæti orðið fimm leikir. Gæti orðið fimm leikja viðureign Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Vals, spáir jöfnu og spennandi einvígi ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.