Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 16
16 25. apríl 2003 LAUGARDAGUR
Fyrsti fótboltaleikur ársins ágrasi fór fram í dymbilviku
þegar Afturelding og Akranes
léku á Tungubakkavelli. Á sunnu-
dag mætast KR og HB á KR-velli
í fyrsta stórleik ársins á grasvelli
þegar liðin keppa um Atlantic bik-
arinn.
Endurbætur tókust vel
Vallarstjórar eru sammmála
um að grasvellir séu í mjög góðu
ástandi eftir mildan vetur. Vals-
menn þurftu að skipta um gras á
hluta vallarins og keppnissvæðis-
ins í fyrra og höfðu fyrirvara á
því hvort fyrstu leikir færu fram
að Hlíðarenda. Þeir sótt um að
leika í Laugdalnum en fengu synj-
un og var útlit fyrir að þeir þyrftu
að leika í Egilshöll. Sveinn Stef-
ánsson segir ástand Valsvallar
nokkuð gott. Valsmenn könnuðu
stöðuna á þriðjudag og eru mjög
bjartsýnir ef tíðarfarið í vor verð-
ur eins og það hefur verið að und-
anförnu. Sveinn á von á að æfing-
ar á grasi hefjist um viku fyrir
mót og að fyrsti heimaleikur Vals,
gegn ÍBV 24. maí, verði á Vals-
velli.
Fjórir leikir í Símadeildinni
fyrir fyrsta landsleikinn
Jóhann G. Kristinsson, vallar-
stjóri Laugardalsvallar, segir
ástand vallarins mjög gott miðað
við árstíma. Fjórir leikir í Síma-
deildinni fara fram á Laugardals-
velli fyrir fyrsta landsleikinn 7.
júní. Ekki þurfti að að taka völlinn
upp í vetur engin bleyta er í vell-
inum enda þurrkar hann sig ágæt-
lega.
Jóhann segir að kuldi í maí geti
farið illa með grasvelli því þá nær
grasið ekki að gróa milli leikja.
Sama vandamál er með staka leiki
sem fara fram seint á haustin.
Leikurinn við Skotland í fyrra,
sem fór auk þess fram í bleytu,
var á við þrjá til fjóra leiki yfir
sumarið.
Hásteinsvöllur betri en í
fyrra
Hásteinsvöllur í Vestmanna-
eyjum kemur nokkuð vel undan
vetri að sögn Birgis Stefánssonar,
framkvæmdastjóra knattspyrnu-
deildar ÍBV. Hann segir að völlur-
inn sé betri nú en á sama tíma í
fyrra. Engar æfingar hafa þó far-
ið þar fram og ekki heldur á
Helgafellsvelli. Þar gætu æfingar
hugsanlega hafist eftir viku.
Skagamenn og Grindvíking-
ar byrjaðir að æfa á grasi
Skagamenn byrjuðu að æfa á
grasi í dymbilvikunni og Grind-
Vallarstjórar eru sammála um að grasvellirnir sem notaðir
verða á Íslandsmótinu í fótbolta séu í góðu ásigkomulagi eftir veturinn.
Fótboltavellir aldrei betri
LAUGARDALSVÖLLUR
Ástand þjóðarleikvangsins er gott. Fyrsti landsleikurinn fer fram 7. júní en áður verða
leiknir fjórir leikir í Símadeildinni á Laugardalsvelli.
AKRANESVÖLLUR
Iðagrænn Akranesvöllur í apríl. Völlurinn hefur í raun og veru verið grænn í allan vetur.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
■ FÓTBOLTI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T