Fréttablaðið - 26.04.2003, Síða 20
20 26. apríl 2003 LAUGARDAGUR
Ég hef ekki haft tíma til aðvelta fyrir mér hvað mér
finnst um að vera ekki fram-
bjóðandi,“ segir Karl V. Matthí-
asson um að standa fyrir utan
mestu kosningabaráttuna.
„Ég reyndi að fá sæti en ég er
sáttur við mitt líf, hins vegar er
ég ekki hættur að hugsa um
stjórnmál. Ég veit það verður
kosið aftur í síðasta lagi eftir
fjögur ár og hef alveg eins
áhuga á að reyna aftur, ég fékk
mikinn stuðning flokksfélaga
minna og engin ástæða til að
gefast upp. Þó maður veiði ekki
einn daginn er ekki þar með sagt
að maður hætti á sjónum.“ Karl
segist vera hvorki meira né
minna en í heiðurssæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík
með Herdísi Þorvaldsdóttur og
Eddu Báru Sigfúsdóttur. Einnig
er hann kosningastjóri í Norð-
vesturkjördæmi ásamt vini sín-
um Þorsteini Óskarssyni. Hann
segir áhuga sinn á stjórnmálum
alls ekki hafa dvínað og er á
fullu í kosningabaráttunni með
sínum félögum, því hann vill
koma Samfylkingunni að.
Karl fékk leyfi frá prests-
störfum í Grundarfirði fram í
október, samkvæmt lögum um
leyfi fyrir alþingismenn. „Ég er
búinn að vera þingmaður í tvö
ár. Fyrsta árið var ég einn í
Reykjavík, sem var alveg
ómögulegt, en í haust komu kon-
an og börnin í bæinn sem breytir
mjög miklu.“
Það er af og frá að mig klæi ílófana að taka þátt í þeirri
kosningabaráttu sem nú er háð,“
segir Sverrir Hermannsson, al-
þingismaður Frjálslynda flokks-
ins, en sem kunnugt er hefur hann
ákveðið að draga sig í hlé frá
þingmannsstörfum. Hátt í fjöru-
tíu ár eru liðin síðan Sverrir sett-
ist fyrst inn á Alþingi. Árið 1964
varð hann varaþingmaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á Austur-
landi. Árið 1971 settist hann á
þing og sat sleitulaust á þingi til
ársins 1988 er hann ákvað að
segja af sér. Á þessu tímabili
gegndi Sverrir tveimur ráðherra-
embættum. Hann var iðnaðarráð-
herra frá 1983 til 1985 og síðan
menntamálaráðherra frá 1985 til
1987.
Sverrir ákvað að taka slaginn
aftur árið 1999 með stofnun Frjáls-
lynda flokksins. „Ein megin ástæð-
an var sú að Sjálfstæðisflokkurinn
yfirgaf mig. Hinn nýi Sjálfstæðis-
flokkur, sem nú situr að störfum, á
ekkert sameiginlegt með mínum
gamla flokki. Eins gekk ýmislegt
þvert á hugmyndir mínar eins og
málefni fiskveiðistjórnunar. Í mín-
um gamla flokki ríkti hugsjónin
stétt með stétt. Í dag er mulið und-
ir örfáa ríka og afgangurinn má
éta það sem úti frýs.“ Sverrir spá-
ir því að breytingar verði við
næstu kosningar. „Þrátt fyrir að
skoðanakannanir séu einungis vís-
bendingar bendir allt til þess að
Frjálslyndi flokkurinn verði sigur-
vegari þessara kosninga.“
Ráðherrar eins og svölur á
símavír
Sverrir er ómyrkur í máli þeg-
ar talið berst að stuðningi ríkis-
stjórnarinnar við stríðið gegn
Írak. „Það var aldrei svo að Al-
þingi væri sniðgengið eins og
stjórnarherrarnir leyfðu sér í því
máli. Að spyrja ekki sjálfa lög-
gjafarsamkunduna um álit heldur
rjúfa hefð sem verið hefur frá
upphafi að Ísland tæki aldrei
beinan þátt í að bera vopn á aðrar
þjóðir. Ráðherrar sitja eins og
svölur á símavír og skeyta ekki
um neitt nema að mál ráðuneyt-
anna komist í gegn. Það er engu
líkara en að þeir setji upp leður-
hlustir ef flutt eru mál sem eru
þeim ekki þóknanleg.“
„Alþingi hefur verið lagt til
hliðar og það sem meira er og
ekki betra er yfirgangur dóm-
stóla. Þrískipting valdsins er ekki
til. Framkvæmdavaldið er búið að
sölsa þetta undir sig. Ég hélt að
ég myndi aldrei upplifa að á Ís-
landi ríkti eins konar einræðis-
stjórn. Þessu stöndum við frammi
fyrir og þessu þarf að breyta.
Sagan má ekki endurtaka sig. Við
verðum að reisa Alþingi til þess
vegs og virðingar sem er íslensku
lýðveldi lífsnauðsyn,“ segir
Sverrir.
Kvíðir ekki aðgerðaleysi
En hyggst Sverrir Hermanns-
son setjast í helgan stein? „Nei,
það er af og frá. Ég er í ráðslagi
án þess að vera með neina stjórn á
hendi, held mig meira á bak við
tjöldin. Þá er ekki loku fyrir það
skotið að ég stingi niður penna af
og til. Eins á ég geysimikið af bók-
um ólesnum og náttúru- og fugla-
skoðun skipa stóran sess. Yfir
sumartímann dvelst ég jafnan
vestur í Djúpi. Þar á ég trillu sem
ég nota til að fara á skak. Ég hef
nóg að gera og kvíði engu um það.
Ég ætla að taka mér frí frá því að
vera á kafi í pólitík. Ég hlífist við
að horfa á allar þessar endalausu
þrætur. Að sjálfsögðu fylgist ég
með mínu fólki en er hálf latur við
annað. Öll þessi greinaskrif spek-
inganna valda því að reyni ég við
þær týni ég lestrarkunnáttunni.“
kolbrun@frettabladid.is
SVERRIR HERMANNSSON
Sverrir segir þingmannsstörf hafa gjör-
breyst á fjörutíu árum, sér í lagi þegar efri
og neðri deild lögðust af. „Eftir sat „spaug-
stofan“. Það var hægt að komast hjá
skyssum með tvöfaldri afgreiðslu. Í þessari
einu deild sem er eftir verða of mörg slys.
Nú vilja menn gera sig til fyrir stóra bróður
og harðpólitíkin er þess valdandi að ekki
er staldrað við. Flokkslínan verður að
ganga fyrir.“
Svanfríður Jónasdóttir:
Leggur
stund á
háskóla-
nám
Ég stend nú ekki beinlínis fyrirutan kosningabaráttuna vegna
þess að ég er í kosningastjórn
Samfylkingarinnar og tek virkan
þátt í þessum slag frá degi til
dags,“ segir Svanfríður Jónas-
dóttir, alþingismaður Samfylking-
arinnar, sem hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu. Svanfríður segir
að þrátt fyrir að hún sé búin að
vera í framboði í yfir tuttugu ár,
ýmist til sveitarstjórnar eða Al-
þingis, ríki enginn tregi að vera
ekki með í slagnum nú. „Ég er
mjög sátt við mitt hlutskipti. Ég
er ekki hætt í pólitík þrátt fyrir
að vera ekki í framboði.“
Svanfríður telur að jákvæðar
breytingar hafi orðið innan
veggja Alþingis með aukinni
þátttöku kvenna. „Ég held að við
munum sjá enn frekari breyting-
ar í framtíðinni. Karlar hafa
gengið tiltölulega gagnrýnislaust
inn í hefðina en konur hafa ekki
haft þessa hefð að byggja á. Með
þátttöku kvenna er þingið orðið
málefnalegra, sem er betra fyrir
lýðræðið í landinu.“
Svanfríður stundar nú fram-
haldsnám við Háskóla Íslands.
„Merkilegt nokk, ég er að læra
stjórnun,“ segir hún og hlær inni-
lega. „Ég geri mér grein fyrir því
að vinnumarkaðurinn er kröfu-
harður. Lífið býður upp á margt
spennandi og skemmtilegt, hvað
tekur við kemur í ljós.“
KARL V. MATTHÍASSON
Karli fannst mun betra að hafa konuna og
börnin hjá sér í bænum.
Karl V. Matthíasson:
Berst
með sínum
félögum
SVANFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR
Svanfríður segist stíga sátt úr þingmanns-
stólnum. „Ég er sannfærð um að ég hef
haft áhrif á umræðuna um auðlindapólitík.
Ég hef tekið mikinn þátt í umræðunni um
sjávarútvegsmálin og trúi því að það hafi
skipt máli.“
Sverrir Hermannsson:
Hlífist við enda-
lausum þrætum
Ekki eru allir þingmenn í kosningabaráttu. Sumir hafa hætt að eigin
vilja – öðrum var hafnað við val á framboðslista. Þrír þeirra segja frá
breyttri stöðu, hvað tekur við og hvernig þeim þykir þeir standa sig
sem draga vagninn núna.
Á hliðarlínunni
Hótel á miklu athafnasvæði
frábært tækifæri!Af sérstökum ástæðum býðst rótgróið hót-
el nánast í túnfæti álversframkvæmda á
Austurlandi. Álversframkvæmdum fylgja
mikil umsvif sem kalla á mikla þörf fyrir
gistiaðstöðu, veitingastað og bar. Þetta er
til staðar hér.
Um er að ræða 7 ágætlega búin tveggja
manna herbergi, veitingasal og bar.
Hótelið er til afhendingar strax. Seljandi
skoðar ýmis skipti og greiðslukjör.
Fjöldi mynda á heimasíðunni
www.fyrirtaekjasala.is
Ásett verð er 15 millj
og áhvílandi eru 8 millj.
Nánari upplýsingar gefnar hjá Fyrirtækjasölu Íslands