Fréttablaðið - 26.04.2003, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003 21
Frá vöggu til grafar
Vernharð Guðmundsson er for-maður Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna og
segir starfið bæði skemmtilegt og
gefandi. „Formannsstarfið felst í
hagsmunagæslu fyrir stétt sjúkra-
flutninga- og slökkviliðsmanna í
landinu, gerð kjarasamninga og
námskeiðahald af ýmsu tagi,“ segir
Vernharð.“ Það eru til dæmis sífellt
gerðar meiri kröfur í þessu starfi
um endurmenntun og ég á sam-
skipti við ótal margt fólk, sem er
mjög skemmtilegt.“
Vernharð er sjálfur slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður með para-
medic-gráðu, þannig að hann hefur
leyfi til að gera meira en ella fyrir
sjúklingana.
Hann segir starfið reyna á, en
fyrst og fremst sé það gefandi. „Við
upplifum allan skalann frá vöggu
til grafar, tökum á móti nýjum ein-
staklingum sem er auðvitað frá-
bært, en svo erum við stundum að
missa fólk sem deyr í höndunum á
okkur. Erfiðustu tilvikin eru bráð
veikindi og slösuð börn, það er
alltaf jafn erfitt að takast á við
það.“
Vernharð segir þá sem hafa
paramedic-menntunina kannski að
einhverju leyti betur undirbúna
undir erfiðustu tilvikin. „Það felst í
því að reynslan er meiri og þekk-
ingin aðeins dýpri, en andlega hlið-
in er okkur jafn erfið og hinum. En
það hefur orðið bylting hvað varðar
að kalla til utanaðkomandi aðstoð
eftir erfið tilfelli og menn reyna að
tala saman eftir erfiðar vaktir. En
svo er líka margt ólýsanlega gef-
andi í þessu starfi og bregst ekki að
okkur er tekið fagnandi þegar við
komum.“
Vernharð er í framboðið fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og segir vanta
fleiri stundir í sólarhringinn. „Svo
var ég að eignast mitt þriðja barn,
svo það er nóg að gera,“ segir Vern-
harð. ■
VERNHARÐ GUÐMUNDSSON
Er í krefjandi starfi, í framboði og nýbúinn að eignast sitt þriðja barn.
■ STARFIÐ MITT
ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON
Afar hans hétu Ísleifur og Eyjólfur svo úr
varð Ísólfur.
Samansett
úr Ísleifi
og Eyjólfi
Það er mjög sérkennilegt meðnafnið mitt að ég er einn af
átta Íslendingum sem heita Ísólf-
ur. Tveir eru í minni ætt, það er ég
og svo á systir mín Ísólf Haralds-
son. Hinir eru allir af Páls Ísólfs
kyninu eða Stokkseyrarkyninu,“
segir Ísólfur Gylfi Pálmason al-
þingismaður. „Nafnið mitt er sett
saman úr afanöfnum mínum.
Móðir mín er Ísleifsdóttir og
pabbi er Eyjólfsson. Þau hafa lík-
lega verið úrkula vonar um að
eiga annan strák því þau settu
nöfnin saman og úr varð Ísólfur.“
Ísólfsnafnið kom líklega hing-
að til lands með landnámsmanni.
Ísólfur Gylfi hefur verið að
grúska í Íslendingabók og komst
að því að nafnið tíðkaðist á land-
námsöld og lengi fram eftir en
seinni part síðustu aldar voru ekki
nema átta hér á landi sem báru
nafnið.
„Mér fannst nafnið hálfleiðin-
legt þegar ég var krakki og var
yfirleitt kallaður Gylfi. Þegar ég
fór að eignast börn urðu þau Ís-
ólfsbörn og eftir því sem ég eltist
fór nafnið að festast við mig,“ seg-
ir þingmaðurinn. „Það helgaðist
að hluta til af því að ég var kenn-
ari í Mosfellssveit og þar var
skólastjóri sem hét Gylfi Pálsson.
Nöfnin okkar voru ansi lík þannig
að ég fór að nota Ísólfsnafnið
meira. Síðan hefur það fest við
mig og mér þykir miklu vænna
um það en Gylfanafnið, þó það sé
ágætt líka.“ ■
■ NAFNIÐ MITT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Opið hús
Umdæmi lögreglustjóra
Akranes 13.00-17.00
Akureyri 11.00-17.00
Vegna breytinga á húsnæði verður lögreglustöðin ekki
opin, en kynning og sögusýning lögreglu verður á
Glerártorgi. Sérstök dagskrá fyrir ungt fólk o.fl.
Blönduós 13.00-16.00
Bolungarvík 13.00-16.00
Borgarnes 11.00-17.00
Búðardalur 13.00-16.00
Eskifjörður 13.30-16.00
Fáskrúðsfjörður, Djúpivogur, Neskaupstaður og
Eskifjörður
Hafnarfjörður 11.00-17.00
Hólmavík 11.00-17.00
Húsavík 11.00-17.00
Hvolsvöllur 13.00-16.00
Höfn 11.00-17.00
Ísafjörður 11.00-17.00
Keflavík 11.00-17.00
Lögreglustöðin í Grindavík verður einnig opin
kl. 13.00-1600
Keflavíkurflugvöllur 11.00-17.00
Lögreglustöðin við Leifsstöð
Kópavogur 11.00-17.00
Lögreglusk. ríkisins 13.00-16.30
Skipulögð dagskrá með íþróttakeppni, kynningu, sýn-
ingu o.fl.
Ólafsfjörður 13.00-17.00
Patreksfjörður 13.00-15.00
Reykjavík 11.00-17.00
Aðallögreglustöðin og hverfalögreglustöðvar í
Reykjavík, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi,
nema Miðborgarstöðin við Tryggvagötu þaðan sem
haldið er úti löggæslu
Ríkislögreglustjórinn 11.00-17.00
Sögusýning lögreglunnar, kynning á sérsveit
og umferðardeild ríkislögreglustjórans
Sauðárkrókur 13.00-16.00
Selfoss 11.00-17.00
Seyðisfjörður 13.00-15.00
Egilsstaðir, Vopnafjörður og Seyðisfjörður
Siglufjörður 13.00-17.00
Snæfellsnes 13.00-16.00
Stykkishólmur, Snæfellsbær og Grundarfjörður
Vestmannaeyjar 11.00-17.00
Vík 11.00-15.00
Í tilefni af 200 ára afmæli hinnar einkennisklæddu lögreglu verður laugardagur-
inn 26. apríl haldinn hátíðlegur hjá lögreglu um allt land. Verða lögreglustöðvar opnar
almenningi og störf lögreglu og ýmis búnaður hennar kynnt. Sérstöku afmælismerki
lögreglunnar verður dreift til barna.
Lögregludagurinn hefst kl. 11.00 með ávarpi dómsmálaráðherra, frú Sólveigar
Pétursdóttur, í húsakynnum Sögusýningar lögreglunnar að Skúlagötu 21, Reykjavík.
Að loknu ávarpi ráðherrans mun sérsveit ríkislögreglustjórans vera með sýningu í
samvinnu við lögregluna í Reykjavík og Landhelgisgæsluna.
Lögregludagurinn
26. apríl 2003
Ríkislögreglustjóri hvetur almenning um allt land til að koma á lögreglustöðvar
og sýningar lögreglu, ræða við lögreglustjóra og lögreglumenn og kynnast
þannig starfsemi lögreglunnar.
L
Ö
G R
E G L AN
1
8
0
3 2 0
0
3
Kynning á lögreglunni – lögreglustöðvar opnar