Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 25
vægt sé að svo sé áfram. Það kom
jafnframt fram í máli hennar að
þessi margumtalaði aðskilnaður
ríkis og kirkju væri alls ekki eins
einfaldur í framkvæmd og menn
vildu vera láta.
Önnur trúarbrögð stangast
á við gott siðferði
Jónína Bjartmarz talaði fyrir
hönd Framsóknarflokksins. Hún
vitnaði í stefnuskrá flokksins þar
sem segir: Framsóknarflokkurinn
styður áframhaldandi öflugt starf
kirkjunnar á nýrri öld. Það væri
alls ekki á stefnuskrá flokksins að
aðskilnaður verði milli ríkis og
kirkju. Gildismat kristinnar trúar,
félagslegt hlutverk kirkjunnar og
margt fleira sem hún hefur upp á
að bjóða sé nú mikilvægara en
nokkru sinni fyrr. Og Jónína
spurði á móti: Hvað vill kirkjan?
Ætti hún ekki að koma sterkar inn
í umræðuna og stýra henni? Á
unglingum landsins dynji óæski-
legt áreiti af ýmsu tagi, klámvæð-
ing, tölvu- og netbylgja sem ekki
væri með góðu móti hægt að halda
utan um. „Við viljum ekki þessi
áhrif og ómögulegt að segja til um
til hvers þau leiða. Þau okkar sem
vilja sporna gegn þessum óæski-
legu áhrifum eru oft hrædd um að
virka tepruleg og gamaldags. Og
þá verður mér hugsað til kirkj-
unnar. Hefur hún svör?“ Jónína
tók undir með Sólveigu sessunaut
sínum og sagðist vilja vernda
kirkjuna og styðja. „Hér ríkir
kristilegt siðferði. Margt í öðrum
trúarbrögðum stangast á við gott
siðferði, til dæmis múhameðstrú
og hvernig hún skilgreinir stöðu
kvenna.
Trúin límið í samfélaginu
Biskup Íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, þakkaði fyrir fund-
inn og sagði mikilvægt að heyra
viðhorf flokkanna til Þjóðkirkj-
unnar en þar færi nú fram um-
fangsmikil stefnumótunarvinna
sem sprottin væri úr grasrótinni.
Þar er spurt: Hvers konar kirkju
viljum við hafa í íslensku samfé-
lagi á 21. öldinni? Innbyggt í þá
spurningu er önnur spurning:
Hvers konar samfélag viljum við
taka þátt í að móta og búa í?
„Kirkjan hefur staðið frammi
fyrir miklum breytingum en
undravert er hversu staða hennar
hefur lítið breyst, sem bendir til
mikillar hefðarfestu í samfélag-
inu. En það er ekki sjálfsagt.“
Biskup sagði að hið veraldlega
sem að kirkjunni snýr hafi breyst
verulega við upphaf 20. aldarinn-
ar með afnámi tíundarinnar. Síð-
an hafi verið ákveðin togstreita
milli ríkis og kirkju um skilgrein-
ingu á eignum sem kirkjunni
tengjast. Kirkjan geti ekki annað
en staðið vörð um tekjustofna
sína, hlutverk hennar sé svo mik-
ilvægt að ómögulegt sé að hún sé
stödd á berangri. „Kirkjan hefur
hlutverki að gegna í þjóðarupp-
eldi og henni ber að standa vörð
um hið góða samfélag sem á að
vera opið og frjálst, lýðræðislegt
þar sem mannréttindi eru í heiðri
höfð. Þessir góðu þættir komi síð-
ur en svo af sjálfu sér. Trúin er
límið sem heldur þessu saman.“
Þjóðkirkjan stæði frammi fyr-
ir þeirri spurningu hvort um mis-
munun milli trúfélaga væri að
ræða – spurning sem hún horfist í
augu við. „Er þessi mismunun
raunveruleg? Þjóðkirkjan vill
standa vörð um trúfrelsi. Í raun
er ekki óeðlilegt að meiri greiðsl-
ur komi til þjóðkirkjunnar vegna
umfangsmikillar starfsemi,
stærðar, varðveislu sögulegra
minja og almennrar þjónustu við
samfélagið.“ Ekki megi gleymast
að fyrir séu samningar milli ríkis
og kirkju. Ríkið hafi tekið að sér
ákveðið hlutverk í að innheimta
rekstrartekjur gegn því að fá
eignir kirkjunnar. Og væru menn
að horfa til nágrannaríkja þá
væri það alls staðar svo að ein-
hvers konar samband væri milli
ríkis og kirkju.
Herra Karl nefndi að endingu
dæmi um hversu miklu máli
kristin trú skipti og hversu sam-
ofin hún væri samfélagsgerðinni.
Hvergi væri skráð í íslensk lög að
ekki megi drepa mann. Samt sem
áður snúist öll lög um þetta atriði.
Þetta sé hið almenna siðalögmál
kristni sem allt hvílir á.
jakob@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003 25
Þegar vorið gengur í garð er tími til kominn
að láta hendur standa fram úr ermum.
Þá er nauðsynlegt að hafa réttu tækin og
tólin við hendina svo að vinnan verði
sem auðveldust.
Við hjá Kraftvélaleigunni bjóðum upp á flest
þau tæki sem létt geta húseigendum störfin,
hvort heldur er við jarðvegsframkvæmdir,
viðgerðir, málningarvinnu eða snyrtingu
og umhirðu á lóðinni.
Leigjum aðeins út tæki í fyrsta flokks ástandi,
tæki sem eru afkastamikil og auðveld í stjórnun.
Opið í sumar um helgar!
Dalvegi 6-8 · Kópavogi
Sími 535 3515 · www.kraftvelar.is
...með réttu tólin
Gerðu garðinn frægan
Smágröfur
Bómulyftur
Beltavagnar
Hekkklippur
Keðjusagir
Kurlarar
Bensínorf
Stauraborar
Bjóðum upp á
margar gerðir
af öryggis- og
hlífðarbúnaði
• Smágröfur
• Smáskóflur
• Beltagröfur
• Hjólagröfur
• Traktorsgröfur
• Skotbómulyftarar
• Jarðvegsfæribönd
• Beltavagnar
• Bómulyftur
m/dráttarbeisli
• Skæralyftur
• Ljósaturnar
• Hekkklippur
• Keðjusagir
• Kurlarar
• Rafmagnsorf
• Bensínorf
• Stauraborar
• Laufblásarar
• Mosatætarar
• Flutningabíll
með krana
JÓNÍNA BJARTMARZ
Sagði margt í öðrum trúarbrögðum bein-
líns stangast á við það sem siðlegt þykir
hér á landi, til dæmis hvernig mú-
hameðstrú skilgreinir stöðu konunnar.
HERRA KARL SIGURBJÖRNSSON
„Trúin er límið sem heldur öllu því saman
sem gerir samfélag gott.“