Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 26
26 26. apríl 2003 LAUGARDAGUR
Blanda af gleði og pönnu-kökuilmi fyllti loftið við
Lækjargötu, sem vanalega lyktar
af bílaumferð. Samfylkingar-
menn bökuðu þar pönnukökur
með sultu og rjóma „að hætti
jafnaðarmanna,“ eins og Össur
Skarphéðinsson formaður orðaði
það. „Uppskriftin að pönnukök-
unum var baráttugleði, hveiti,
mjólk, sykur og gríðarlegt sjálfs-
traust fyrir hönd flokksins,“
sagði hann og því næst kvaðst
hann vilja fella ríkisstjórnina.
Þegar blaðamaður gekk inn í
skrifstofu Samfylkingarinnar,
þar sem áður var Top Shop,
hljómaði lagið Fröken Reykjavík
í flutningi söngkonu. Aðspurð um
hvort hún væri umrædd Fröken
Reykjavík sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, forsætisráð-
herraefni Samfylkingarinnar, tit-
ilinn eiga við um allar konur í
framboði hjá flokknum í borg-
inni. Hún fagnaði vorblíðunni og
sagði hana sambærilega við vorið
1994, þegar R-listinn vann borg-
ina. „Það er komið vinstra vor,“
sagði hún og óskaði eftir velferð-
arstjórn. Undir þetta tók Orri
Guðjohnsen, atvinnulaus verka-
maður, og kvaðst vilja sjá breyt-
ingar.
Mörður Árnason, frambjóð-
andi í Reykjavík suður, sagði
margt fólk leita á skrifstofu Sam-
fylkingarinnar sem sé ósátt við
stöðu sína. „Hingað liggur stöð-
ugur straumur fólks og sumt hef-
ur lent út úr samfélaginu,“ sagði
hann. ■
FRAMBJÓÐANDI OG KJÓSANDI
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með kunningjakonu sinni við Lækjargötu.
Samfylkingin:
Pönnukökur hjá
Fröken Reykjavík
Vinstrihreyfingin – græntframboð hörfaði aftur til
náttúrunnar og fagnaði sumar-
komu með strandveislu í Naut-
hólsvík. Franskri kaffihúsatón-
list frá eftirstríðsárunum var út-
varpað yfir svæðið til styrktar
Frökkum í deilu þeirra við
Bandaríkin, að því er Ármann
Jakobsson sagði. Margt var um
manninn og boðið var upp á grill-
aðar pylsur og kandífloss, svo
eitthvað sé nefnt.
Þegar Fréttablaðið kom að
máli við Steingrím J. Sigfússon,
formann flokksins, var hann
vígalegur, klæddur í stuttbuxur
og hruflaður á hné eftir blakleik.
„Þetta er ekkert. Ég skutlaði mér
í lágvörn,“ sagði Steingrímur,
sem á nokkra titla að baki með
Íþróttafélagi stúdenta.
Steingrímur hruflaðist þegar
ungir Vinstri grænir öttu kappi á
móti þeim eldri og fóru með sig-
ur af hólmi. Gömlu kempurnar
sigruðu hins vegar í reipitogi
sem stóð í rúmar fimm mínútur,
og sagði formaðurinn þrjóskuna
vera til marks um baráttuandann
innan flokksins.
Athygli vakti að flokkurinn
sendi út af örkinni spákonu sem
lét unga fólkið vita hvort það
væri forsætisráðherraefni.
Kvaðst formaður flokksins ekki
hafa áhyggjur af framtíð flokks-
ins með jafn öfluga ungliða og
raun bæri vitni. Rúsínan í pylsu-
endanum var svo myndarlegt
happdrætti þar sem hægt var að
hreppa frambjóðanda í vinning.
Þar var átt við ferð á hálendið
með Steingrími J. og grillveislu
með Ögmundi Jónassyni. ■
Vinstri grænir:
Spákona leitar að
forsætisráðherra
Grillreykur stóð upp frá gang-stéttinni fyrir framan gamla
Hressó við Austurstræti á fyrsta
degi sumars. Þegar nánar var að
gáð voru þar frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins svuntuklæddir að
grilla pylsur fyrir gesti og gang-
andi.
Pétur Blöndal, einn af sigurveg-
urum prófkjörs flokksins, kunni
vel við sig bak við grillið og var
kátur með kosningabaráttuna.
„Við höfum óvenjugóða málefna-
stöðu og kosningabaráttan hefur
verið á jákvæðu nótunum,“ sagði
Pétur á meðan hann sneri við
nokkrum pylsum.
Innan úr skrifstofu flokksins
hljómaði harmonikuútgáfa af lag-
inu Undir bláhimni og seiddi for-
vitna vegfarendur inn. Þar gaf Sól-
veig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra sig á tal við tvær hnátur og
innti þær aldurs. „Við erum sjö og
níu ára,“ sagði önnur þeirra og tók
undir með ráðherra að gaman væri
á skrifstofu flokksins þennan dag.
Sólveig sagði daginn tileinkaðan
æsku landsins og til marks um það
byði flokkurinn upp á fríar blöðrur
og andlitsmálun. Skammt frá tal-
aði frambjóðandinn Sigurður Kári
Kristjánsson í farsíma. Nokkru
síðar setti hann einnig á sig svuntu
og grillaði pylsur fyrir fólkið í
Austurstræti. ■
PÉTUR GRILLAR
Pétur Blöndal grillaði pylsur fyrir almenning ásamt Katrínu Fjeldsted.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Svuntuklæddir
sjálfstæðismenn
Stjórnmálaflokkarnir héldu sumardaginn fyrsta hátíðlegan í Reykjavík með því að bjóða kjósendum upp á kræsingar. Dagurinn var
tileinkaður fjölskyldufólki og sýndu frambjóðendur sínar bestu hliðar með því að grilla ofan í almenning og gleðja börnin.
Stjórnmálamenn
í kosningaham
FORSÆTISRÁÐHERRAEFNI?
Vinstri grænir settu spákonu í að finna forsætisráðherraefni framtíðarinnar.
Gestagangur var hjá Frjáls-lynda flokknum í Reykjavík
þegar Fréttablaðið bar að garði á
skrifstofu flokksins í Aðalstræti á
fimmtudag. Árni Ísleifsson djass-
tónlistarmaður spilaði á hljóm-
borð á meðan fólk borðaði Mar-
yland-kexkökur og Æðibita í boði
flokksins.
Birgir H. Björgvinsson, fram-
bjóðandi í Reykjavík suður, sagði
flokkinn vera kominn til að vera. Í
gegnum djassballöðuna lýsti hann
því yfir að landsmenn væru búnir
að fá upp í kok af órétti kvótakerf-
isins, þar sem lifandi fiskur í sjón-
um væri að komast í eigu sífellt
færri aðila. Birgir hefur starfað
innan sjómannaforystunnar í ára-
tugi og var einn af stofnendum
Frjálslynda flokksins ásamt
Sverri Hermannssyni árið 1998.
Var mál manna að Frjálslyndi
flokkurinn hefði vaxið út fyrir
þann kjarna sem baráttumenn
gegn kvótakerfinu mynduðu í
upphafi. Nú hefðu málefni flokks-
ins víðari skírskotun, meðal ann-
ars til umhverfismála og skatta-
mála.
Nokkuð bar á brottfluttu fólki
af landsbyggðinni í kosningakaff-
inu og byggðavandinn sameinaði
hópinn málefnalega. Síðar um
daginn var dansaður línudans við
Aðalstrætið. ■
TEKIÐ Í NEFIÐ
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslyndra, bauð neftóbak á skrifstofu flokksins.
Frjálslyndi flokkurinn:
Dansað á tímum
óréttlætis
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T