Fréttablaðið - 26.04.2003, Page 27
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003 27
Framsóknarflokkurinn:
Barna-
gaman
á borgar-
mörkun-
um
Framsóknarflokkurinn hélt íúthverfin á sumardaginn
fyrsta og opnaði kosningaskrif-
stofur í Breiðholti og Grafar-
vogi. Þegar Fréttablaðið kom að
hátíðarhöldum flokksins í
Spönginni var Halldór Ás-
grímsson, formaður flokksins,
umkringdur forvitnum börn-
um. „Hvað heitir þú?“ spurði
ungur hnokki. „Ég heiti Hall-
dór,“ svaraði utanríkisráðherra
góðlega um hæl og útdeildi
barmmerkjum frá flokknum
þar til þau voru uppurin.
Börnin voru í fyrirrúmi hjá
Framsóknarflokknum og leit-
uðu þau mikið í formann flokks-
ins, sem tók þeim af alúð.
Grafarvogspiltur braut ísinn og
bað utanríkisráðherra um eig-
inhandaráritun, sem gaf honum
pennann sinn að undirritun lok-
inni. Skipti þá engum togum að
flokkur barna nálgaðist blaða-
mann með beiðni um blað úr
skrifblokkinni svo formaðurinn
mætti rita nafn sitt.
Aðspurður sagði Halldór
flokkinn leggja áherslu á fjöl-
skyldufólkið og því hefði verið
farið í úthverfin. „Hér hefur
komið mikið af barnafólki sem
á erfitt um vik með að fara á
skrifstofu flokksins niðri í bæ.
Við viljum ná til þessa fólks.“
Framsóknarflokkurinn bauð
gestum upp á pylsur í Mjódd-
inni og Spönginni, ásamt því að
trúður skemmti og gospelkór
söng.
Á sama tíma héldu ungir
Framsóknarmenn samkundu á
Laugaveginum, þar sem fjöldi
fólks kom að og hlýddi á
djasstónlist. ■
HALLDÓR OG BÖRNIN
Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra var
tekið sem poppstjörnu af ungum Grafar-
vogsbúum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT