Fréttablaðið - 26.04.2003, Page 31
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003
Það er búið að vera nóg aðgera, ég hef mest spilað í
Danmörku hennar hátignar,
Þýskalandi og svo heima á Ís-
landi núna í vetur,“ sagði hinn
fjölþjóðlegi trúbador og tón-
listarmaður Sigurður Björnsson,
betur þekktur sem Siggi Björns,
þar sem hann var að stíga á svið
á írsku festivali á Vestur-Jót-
landi ásamt félaga sínum Keith
Hopcraft, enskum tónlistar-
manni.
Skemmtunin fór fram fyrir
fullum sal í stórri íþróttahöll og
ljóst að danskir kunna vel að
meta tónlist þeirra, enda hvergi
slegið af.
„Ég veit ekkert hvað við erum
að gera hérna, kunnum ekki
nema eitt írskt lag. En svona er
líf tónlistarmannsins,“ sagði
Siggi þegar þeir komu af svið-
inu. En af klappi áheyrenda og
viðbrögðum var ekki um að vill-
ast að þeir voru klárir á því að
félagarnir hefðu átt fullt erindi á
sviðið.
Hituðu upp fyrir Slade
Siggi hefur um árabil búið og
starfað í Danmörku og hefur
spilað í öllum gerðum og stærð-
um af klúbbum þar á undanförn-
um árum auk þess að ferðast um
heiminn þess á milli og spila og
syngja fyrir fólk. Stærsta verk-
efnið í vetur var án efa þegar
þeir félagar hituðu upp fyrir
tónleika hinnar fornfrægu
rokksveitar Slade í Flensborg í
Þýskalandi.
„Það var gaman að spila fyrir
þá og komast í návígi við þessa
gömlu rokkhunda og spila svo
þremur dögum seinna í félags-
heimilinu á Flateyri,“ segir hann
og hefur gaman af enda þekktur
fyrir að setja ekki fyrir sig vega-
lengdir eftir að hafa spilað í öll-
um heimsálfum.
Jafnframt því að vera að taka
upp nýjan geisladisk með Keith
spilar Siggi þrjú til fjögur kvöld
í viku. Diskurinn mun koma
formlega út í Þýskalandi í haust
en verða fáanlegur á Íslandi með
vorinu.
„Það er ekkert hægt að flokka
efnið í einhverjar tónlistarlínur,
þetta erum bara við. Efnið er
frumsamið og með enskum text-
um. Reyndar er búið að taka upp
þennan eina írska slagara sem
við kunnum í undarlegri karab-
ískri útgáfu sem varð til í Fær-
eyjum á norðureyjastefnu í
Klakksvík, okkur sjálfum til
gamans. Það er reyndar ekki
víst að þetta lag komist á plötuna
en verður allavega gefið út á
„síngli“. Gullkorn hins þekkta
veitingamanns Guðbjarts Jóns-
sonar vagnstjóra er orðið að ein-
kunnarorðum síngulútgáfunnar:
„Margt smátt gerir lítið eitt“.
Á leið til landsins
Þeir félagar voru á Íslandi um
páskana og spiluðu á höfuðborg-
arsvæðinu og á Vestfjörðum, þar
sem Siggi er á heimavelli. Hvar-
vetna þar sem Siggi og Keith
spiluðu var vel mætt. Á Vagninn
á Flateyri mættu fjölmargir og
fagnaðarlátunum ætlaði seint að
linna þegar Siggi og Keith fluttu
írska slagarann með karabíska
taktinum. Ferðinni lauk með
þátttöku í alþjóðlegu hrútavina-
móti í listhúsinu á Stokkseyri.
„Það er mikill heiður fyrir
okkur að fá að koma fram á
þessu móti Hrútavinafélagsins
Örvars og spurning hvort hægt
sé að ná lengra. Það eru ekki
margir tónlistarmenn sem hafa
náð þessum áfanga. Ég hef spil-
að áður með Hinu konunglega
danska hrútavinafélagi og nú er
komið að því að stjórna því
breska. Vonandi verður þetta til
þess að ég fái hljómsveitar-
stjórastöðu hjá Hrútavinafélag-
inu,“ segir Siggi bjartsýnn.
Undanfarin tólf sumur hefur
hann slegið gítarinn fyrir fiski-
og ferðamenn á Borgundarhólmi
og verður komandi sumar engin
undantekning þar frá enda nokk-
uð um að fólk hátti sumarleyfi
sínu eftir því hvenær Siggi er
þar. Nokkuð er um ferðafólk frá
Norðurlöndunum en mest ber þó
á Þjóðverjum sem nýta sér þessa
litlu paradís í Eystrasaltinu.
„Það er komin hefð á að ég sé
þarna og ekki nokkur ástæða til
að breyta því. Hápunkturinn á
sumrinu vona ég þó að verði hin
veglega hátíð Grænlenskar næt-
ur sem haldin verður á Flateyri í
júlímánuði í sumar. Það er alltaf
gaman að spila á heimavellin-
um,“ segir hann og er þegar rok-
inn í hljóðverið á nýjan leik.
reynir@frettabladid.is
Írskur slagari í
karabískri útgáfu
Dansk-íslenski trúbadorinn Siggi Björns gerði það gott á írsku festivali
í Danmörku og stefnir á grænlenska hátíð á Flateyri:
Á SVIÐI
Siggi Björns á írsku festivali á Vestur-Jótlandi ásamt félaga sínum, Bretanum Keith Hopcraft.
■ FÓLK
M
YN
D
/G
U
S