Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 35
HILMAR
EINARSSON
... um eftirlætis
veitinga- og
skemmtistaði sína
miðað við hvenær
sólarhringsins
hann er á ferðinni.
Morgun Kaffitár
Ég byrja á að hita kaffi handa kon-
unni. Svo fer ég á Kaffitár. Við vor-
um alltaf á Prikinu, en eftir að það
breyttist í bar þá fluttum við okkur.
Vildum ekki byrja daginn í vínlykt-
inni frá kvöldinu áður.
Hádegi Mokka
Mokka er hádegið, alltaf. Það eru að
verða í 30 ár. Ég veit eiginlega ekki
hver djöfullinn þyrfti að koma upp
á til þess að ég sleppti Mokka í há-
deginu. Það er svo fast í manni.
Síðdegi Ölstofa Kormáks og Skjaldar
Við endum stundum vinnuvikuna
félagarnir og fáum okkur bjór á
föstudögum með konunum. Það
vilja stundum fleiri slást í hópinn.
Við fórum á Kaffi List, en þar sát-
um við á löngum bekk og það varð
stundum svolítið langt á milli
manna.
Kvöld Næsti bar
Ég fer sjaldan í leikhús af því að ég
er svo hræddur við að verða fyrir
vonbrigðum. Ég þoli það ekki. Það
gildir það sama með að fara út að
borða. Ef ég fer út á kvöldin þá er
það helst á Næsta bar. Þar er líkleg-
ast að maður rekist á fólk sem mað-
ur þekkir. Listaspírurnar og þetta
lið.
Laugardagur Kaffivagninn
Ég brýt upp munstrið um helgar. Á
laugardagsmorgnum fer ég alltaf á
Kaffivagninn. Það er mjög áríðandi.
Sunnudagur Kaffi París
Ég tek sunnudagskaffið á Kaffi Par-
ís. Þar er það sem ég kalla hring-
borð dauðans með Kolbeini Þor-
leifssyni og fleirum. Maður þolir
ekki við þar nema einu sinni í viku.
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Rússneska kvikmyndin Varð-
sveitin frá árinu 1991 verður sýnd í Bíó-
sal MÍR að Vatnsstíg 10. Leikstjóri er Al-
exander Rogozhkin. Enskur texti. Að-
gangur ókeypis og öllum heimill. Þetta
er síðasta sýning vetrarins á vegum MÍR.
20.00 Kvikmyndin The Two
Towers, fyrsti hluti þríleiksins Hringa-
dróttinssaga, verður sýnd í Dalabúð,
Búðardal, í tengslum við Jörvagleði
Dalamanna.
■ ■ TÓNLIST
14.00 Nemendatónleikar verða í
Ráðhúsi Reykjavíkur á vegum Al-
menna músikskólans og Harmoniku-
miðstöðvarinnar. Um er að ræða ein-
leik og samleik sem endar með því að
stórsveitin Skæruliðarnir leikur.
17.00 Íslenska óperan sýnir Frá
Nagasakí til Alsír á 90 mínútum, út-
drætti úr óperunum Madama Butterfly
og Ítalska stúlkan í Alsír, í Miðgarði,
Skagafirði.
17.00 Sönghópurinn Voces Thules
og Björn Steinar Sólbergsson organisti
flytja tónlist frá miðöldum ásamt verki
eftir franska tónskáldið Maurice Duruflé í
Hallgrímskirkju.
17.00 Söngsetur Estherar Helgu
verður með fjölbreytta söngskemmtun í
Karlakórshúsinu Ými. Flytjendur eru
Dægurkórinn, Regnbogakórinn, Regn-
bogabandið og einsöngvararnir Esther
Helga Guðmundsdóttir, Karl Örn Karls-
son og Pálína Gunnarsdóttir. Á efnis-
skránni eru annars vegar sönglög frá
ýmsum heimshornum og hins vegar
syrpur og lög úr þekktum söngleikjum.
20.00 Kór og Kammersveit Lang-
holtskirkju flytja Guðbrandsmessu eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur í Langholts-
kirkju ásamt einsöngvurunum Ólöfu
Kolbrúnu Harðardóttur, Mörtu Hrafns-
dóttur, Birni Jónssyni og Eiríki Helga-
syni. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
20.00 Anna Áslaug Ragnarsdóttir
píanóleikari flytur verk eftir W. A. Mozart,
Hjálmar H. Ragnarsson, Leos Janácek og
Fr. Chopin á tónleikum í Salnum, Kópa-
vogi.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir
Gaggalagú eftir Ólaf Hauk Símonarson.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thor-
björn Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00 Breski farsinn Öfugu megin
uppí með Eggert Þorleifssyni í aðal-
hlutverki verður frumsýndur á Stóra
sviði Borgarleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Sumarævintýri eftir William
Shakespeare og leikhópinn verður sýnt
á Nýja sviði Borgarleikhússins.
20.00 Hugleikur sýnir “Þetta
mánaðarlega“ í Kaffileikhúsinu í Hlað-
varpanum.
■ ■ SÝNINGAR
Í Borgarskjalasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, var í gær opnuð sýning
á kosningaáróðri frá árunum 1880 til
1999. Á henni má fræðast um hvernig
baráttumál flokkana fyrir alþingiskosn-
ingar í Reykjavík hafa breyst í gegnum
tíðina.
Þrjár sýningar standa yfir Nýlista-
safninu við Vatnsstíg. Á annarri hæð
safnsins er Sólveig Aðalsteinsdóttir
með sýninguna Úr möttulholinu en á
þeirri þriðju eru Hanne Nielsen og
Birgit Johnsen með Stað-hæfingar eða
Territorial Statements í suðursal. Í norð-
ursal á sömu hæð er landi þeirra Kaj
Nyborg með sýninguna Nágranni eða
Next door neighbour.
Í Listasafni Íslands stendur yfir yfir-
litssýning á verkum Georgs Guðna.
Einnig er í safninu sýning á
landslagsmálverkum Ásgríms Jónssonar
og vídeóinnsetning eftir Steinu Vasulka.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk. Á sama
stað sýnir Ilmur Stefánsdóttir umbreytt
farartæki, vídeómyndir og örsögur.
Einnig er í safninu yfirlitssýning á verk-
um Jóhannesar Kjarval.
Þrjár myndlistarkonur opnuðu um
páskana sýningar í Hafnarborg, Menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
Björg Þorsteinsdóttir sýnir þar akrýlmál-
verk og vatnslitamyndir, sem unnar eru
á tveimur síðustu árum. Auður Vé-
steinsdóttir er með tvær sýningar á list-
vefnaði og ljósmyndum. Loks sýnir Sig-
ríður Ágústsdóttir handmótuð, reyk-
brennd leirverk.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovéskum
veggspjöldum úr eigu safnsins, sem
hafa ekki komið áður fyrir almennings-
sjónir. Þar er einnig sýningin
Penetration, sem er sýning á verkum
norska listamannsins Patrick Huse. Loks
er í safninu fastasýning á verkum Erró.
Í Kúlunni í Ásmundarsafni við Sigtún
er innsetning Eyglóar Harðardóttur. Í
safninu stendur einnig yfir sýningin List-
in meðal fólksins, þar sem listferill Ás-
mundar Sveinssonar er settur í sam-
hengi við veruleika þess samfélags sem
hann bjó og starfaði í.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulist-
ir og frásagnarhefðir Indlands stendur
yfir í Listasafninu á Akureyri.
Þetta er í fyrsta sinn sem indversk
myndlist er kynnt með jafn víðfeðmum
hætti hér á landi.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar
Helgadóttur. Safnið er opið í dag laug-
ardag kl. 11-17.
Sari Maarit Cedergren sýnir um
þessar mundir steyptar lágmyndir í Gall-
erí Slunkaríki á Ísafirði. Sýningin er opin
kl. 16 -18 fimmtudaga til sunnudaga og
stendur til 4. maí.
Sænski listamaðurinn Thomas
Broomé er með sýningu sem hann
nefnir „Locust“ í Gallerí Hlemmi. Á sýn-
ingunni getur að líta sexhundruð engi-
sprettur sem gerðar eru úr kókdósum.
Galleríið er opið á laugardag kl. 14-18,
Engu að síður sést vel inn um gluggana
alla daga.
Jóna Þorvaldsdóttir sýnir átta svart-
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003
■ TÓNLIST
35
Við höfum sérhæft okkur í tónlistfrá miðöldum og höfum grúskað
mikið í íslenskum handritum,“ seg-
ir Sverrir Guðjónsson söngvari,
einn félaga sönghópsins Voces
Thules. „Við höfum fundið þar tölu-
vert af tónlist sem hefur ekki
heyrst í margar aldir. Þetta hefur
spurst svolítið út fyrir landsteinana
en við höldum sjaldan tónleika hér
heima.“
Á sunnudaginn klukkan fimm
gefst tækifæri til að hlýða á Voces
Thules á tónleikum í Hallgríms-
kirkju. Flutt verða verk sem
spanna tímabilið allt frá miðöldum
til síðustu aldar. „Þetta eru tónleik-
ar sem hverfast um miðaldamunka-
söng. Verkin fjalla um boðun Mar-
íu, krossfestinguna og upprisuna og
við getum kannski hugsað þetta
sem óð til friðar og vonar.“
Frá tólftu öld er verk eftir Leon-
in, eitt þekktasta tónskáld Frakka á
þeim tíma, sem fjallar um boðun
Maríu.
„Svo flytjum við verk úr ís-
lensku handriti sem heitir Stabat
mater. Það er byggt upp á hinum
forna íslenska fimmundarsöng.“
Loks verður flutt verk frá síð-
ustu öld eftir franska tónskáldið
Duruflé, sem nefnist Cum jubilo.
Gestur á tónleikunum er org-
anistinn Björn Steinar Sólbergsson,
sem spilar með Voces thules í verk-
inu eftir Duruflé.
„Hann ætlar svo að tengja þetta
saman, sem við erum að gera,
þannig að tónleikarnir mynda eitt
flæði sem stendur í um það bil
klukkustund.“ ■
Fornir
tónar
lifna á ný
SVERRIR GUÐJÓNSSON
Hann og félagar hans í sönghópn-
um Voces Thules halda tónleika í
Hallgrímskirkju klukkan fimm á
sunnudag ásamt organistanum
Birni Steinari Sólbergssyni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
B
IL
LI
Staðirnirmínir
✓
✓
✓