Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 36
SKEMMTANIR
20.30 Tónlistarveisla í félagsheimil-
inu Árbliki í Dalabyggð á Jörfagleði Dala-
manna. Lúðrasveitin leikur meðan fólk
gengur í salinn. Sophie Schoonjans leik-
ur á hörpu. Guttarnir spila og einnig
blues- og jazzhljómsveitin HOB.
23.00 Stórhljómsveitin Stuðmenn
leikur fyrir dansi í Dalabúð á Jörfagleði
Dalamanna til klukkan þrjú í nótt.
Hljómsveitin „Ábrestir“ hitar upp fyrir
Stuðmenn.
23.00 Rúnar Júlíusson og félagar
spila á Fjörukránni í Hafnarfirði.
24.00 Hljómsveitin Papar spilar á
Champions Café við Gullinbrú.
Bubbi Morthens flytur þverskurð
af sínu besta efni á Hótel Borg.
Rosalegt uppistand er haldið í
Sjallanum á Akureyri á vegum fyrsta
alþjóðlega uppistandsklúbbsins á Ís-
landi. Gestir kvöldsins eru Bretarnir
Alun Cochrane og Nick Wilty sem
báðir eru atvinnumenn í faginu. Kynnir
er Ágústa Skúladóttir, leikstjóri og
uppistandari. Sérstakur gestur í Sjall-
anum verður Sigurvin Jónsson, öðru
nafni „Fíllinn“ frá Dalvík.
Hljómsveitin Sóldögg spilar á Gauki
á Stöng til klukkan þrjú.
Le Sing, leiksýning og matur á stóra
sviðinu í Broadway.
DJ Sammy og Ministry of Sound
verða með dansleik á Broadway ásamt
söngkonunni Loonu, sem syngur meðal
annars lagið „Heaven“.
Puppetry of the Penis í Austurbæ
við Snorrabraut.
Dúettinn Acoustic skemmtir á Ara í
Ögri.
Hljómsveitin Írafár spilar í Reiðhöll-
inni í Skagafirði.
Hljómsveitin Sixties spilar á Players
í Kópavogi.
26. apríl 2003 LAUGARDAGUR36
CONFESSIONS. bi 14 kl. 8 og 10.40
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6
MAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2 og 4
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 2
THE HUNTED b.i. 16 kl. 6 og 10.10CRADLE b.i. 16 kl. 6 og 8
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.30 - bi 14
Sýnd í lúxus kl. 6.30 og 9.30
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10 b.i. 14
kl. 4, 6 og 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
kl. 10.05ADAPTATION
kl. 4SKÓGARLÍF 2 m. ísl. tali
kl. 3.50DIDDA OG DAUÐI KÖTT...
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THUNDERPANTS kl. 4
DREAMCATCHER kl. 6, 8 og 10
2 og 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 2, 4 og 6
kl. 5 og 8THE PIANIST
kl. 8TWO WEEKS NOTICE
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sama hvað ég reyni, þá finnstmér Godsmack leiðinleg hljóm-
sveit. Jafnvel þrátt fyrir blíðviðri
síðustu daga og einstaklega já-
kvætt hugarfar mitt upp á síðkast-
ið get ég ekki heyrt né skilið hvað
er aðlaðandi við þessa sveit.
Hún ætti að höfða til aðdáenda
Metallicu. Það er svipað bragð af
pungsvitarokki beggja sveita.
Söngvarinn syngur meira að segja
nokkuð svipað og James Hetfield.
Meginmunurinn er sá að liðsmenn
Metallica semja góð lög, þrátt fyrir
að lítið hafi farið fyrir þeim á síð-
ustu tveimur plötum.
Ok, aftur að Godsmack. Laga-
heiti segja oft meira en þúsund orð.
Dæmið sjálf: „I Fucking Hate You“
(hmm... já já allt í lagi), „Releasing
the Demons“ (ath. þessir menn líta
út eins og auglýsingasölumenn
Fréttablaðsins aftan á kóverinu) og
„The Awakening“ (arrgghhh -
„Minn guð hefur horn og hala“? -
einhver? Einhver?). Textarnir eru
svo allir væl um hatur og það
hversu lífið sé skítt. Svo hljóma öll
lögin nákvæmlega eins.
Sem sagt, aðdáendur Godsmack
verða kannski himinlifandi en
þetta er ekki fyrir alla. Þar af leið-
andi ekki fyrir svona grindhoraða
og auma rokkara eins og mig. Þetta
er hreint pungsvita ullabjakk...
eins og það gerist best, kannski?
Ætli ég geti nokkuð látið sjá mig
í Mótorsmiðjunni eftir þetta? Svo
er ég viss um að ef ég læt loksins
verða af því að fá mér tattú mun
Fjölnir teikna eitthvað allt annað
en það sem ég bið um. Svei, hin ei-
lífa sálarkreppa gagnrýnandans!
Birgir Örn Steinarsson
GODSMACK: Faceless
Umfjölluntónlist
Ullabjakk
Gleði- og söngvasýningin Þrjár
systur verður flutt í NASA við Austur-
völl.
Moonshine Band spilar á Kránni,
Laugavegi 73.
Bjössi sér um stemninguna á mið-
hæðinni á Laugavegi 22.
Ball með Johnny Dee í Leikhús-
kjallaranum.
Jazzsunnudagur á Kránni, Lauga-
vegi 73, með Árna Ísleifs og góðum
gestum.
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
APRÍL
Laugardagur
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
APRÍL
Sunnudagur
TÓNLIST Söngkonan Sinéad
O’Connor hefur tekið ákvörðun um
það að hætta í tónlist. Ástæðuna
segir hún vera að hún eigi ekkert
eftir til þess að gefa. Þetta til-
kynnti hún í gær á heimasíðu
sinni.
Í tilkynningunni segist hún ekki
vilja frægð og biður aðdáendur
sína jafnvel að leyfa sér að vera í
friði ef þeir rekist á hana úti á
götu. Besta leiðin til þess að sýna
frægri persónu virðingu þína sé að
láta hana algerlega í friði.
O’Connor segist ætla að ein-
beita sér að annars konar verkefn-
um í framtíðinni en lætur ekkert
uppi með hver þau eru.
Fyrir tólf árum síðan sagðist
hún ætla að hætta einn daginn í
tónlistarbransanum til þess að
gerast prestur.
Síðasta plata hennar, „Sean-Nós
Nua“, kom út við litlar undirtektir
í október. Platan fékk þó afbragðs
dóma gagnrýnenda.
Hún syngur þrjú lög á nýjustu
plötu Massive Attack og lagið „A
Thousand Mirrors“ fyrir Asian
Dub Foundation sem nú er vin-
sælt.
„Síðustu upptökurnar sem ég
mun gera verða (ótrúlegt en satt)
lag fyrir plötu sem er gefin út til
þess að heiðra Dolly Parton og lag
sem ég syng á plötu Sharon Shann-
on,“ segir hún í tilkynningunni.
„Lögin verða hljóðrituð í maí. Svo
kemur út DVD-diskur í júlí sem
heitir „Goodnight, Thank You,
You’ve Been a Lovely Audience“.
Ég vil þakka öllum þeim sem hafa
stutt mig á þeim 22 árum sem ég
hef starfað í tónlistarbransanum.“
Í tilkynningunni biður hún
einnig fjölmiðla um að gefa
sér næði frá og með júlí
næstkomandi.
Sinead O’Connor gaf
út sína fyrstu plötu,
„The Lion and the
Cobra“ árið 1987, þá
21 árs gömul. Hún
hafði þá gert tónlist
frá 15 ára aldri. Ef
hún stendur við til-
kynningu sína verða
breiðskífur hennar sex
talsins.
Sinead sló í gegn árið
1990 þegar hún söng
Prince-lagið „Nothing
Compares 2 U“ og hefur alla
tíð verið þekkt og gagnrýnd
fyrir að tjá skoðanir sínar með
táknrænum háttum. Til dæmis
féll hún í ónáð í Bandaríkjunum
eftir að hún reif mynd af páfanum
í beinni sjónvarpsútsendingu.
O’Connor var vígð sem prestur
árið 1999 og hefur viljað láta kalla
sig Móðir Bernadette síðan þá.
biggi@frettabladid.is
Sinéad hætt
að gera tónlist
Írska söngkonan Sinéad O’Connor tilkynnti það á heimasíðu sinni í gær að
hún ætli að hætta að gera tónlist í júlí. Eftir það vill hún lifa „eðlilegu lífi“
og biður aðdáendur sína um að láta sig í friði.
SINEAD O’CONNOR
Gaf út fréttatilkynningu í gær þar sem hún seg-
ist ætla að hætta í tónlist í júlí. Hún biður að-
dáendur og fjölmiðla um algjört næði eftir
það. Tilkynningu hennar má lesa á
www.sineadoconnor.com.