Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 45
45LAUGARDAGUR 26. apríl 2003
■ Tímamót
■ Andlát
● Ragnheiður Eiríksdóttir
hjúkrunarfræðingur á kyn.is
Útsölustaðir
Ragnheið
ur
Eiríksdót
tir á
kyn.is mæ
lir
með VIGE
L!
VIGEL hefur sannarlega fallið ljúflega í skaut
íslenskra kvenna. Einu virðist gilda hvort konurnar
eiga við fullnægingarvanda að stríða eða ekki.
VIGEL virðist geta gefið fullnægingunum nýja vídd
eða jafnvel vakið þær úr dvala.
AUKIN DÝPT
OG TÍÐNI
FULLNÆGINGA
VIGEL – kynörvunargelið sem
slegið hefur í gegn!
SÖFNUN Hjálparstarf kirkjunnar
hefur nú hafið söfnun fyrir íbúa á
El Kere-svæðinu í Eþíópíu, en þar
eru 9.000 manns hjálparþurfi og
þar af 3.000 manns í sárri neyð.
Miklir þurrkar hafa verið á svæð-
inu og ungbarna- og dýradauði
mikill.
Helgi Hróbjartsson, sem hefur
unnið að hjálparstarfi í Eþíópíu í
30 ár, ætlar í samvinnu við Al-
þjóðaneyðarhjálp kirkna að sjá
um að skila framlögum til nauð-
staddra. Ætlunin er að deila út
mjólkurdufti, meðulum og útsæði
og einnig sérlega samsettum
pökkum til 1.500 barna og barns-
hafandi kvenna. Helgi nýtur mik-
illar virðingar í Eþíópíu og fólk
kallar hann „númer þrjú“, númer
þrjú á eftir Allah og Múhameð.
Helgi hefur sjálfur fengið leyfi til
að fljúga með nauðþurftirnar til
þorpanna á gömlu „Frúnni“ hans
Ómars Ragnarssonar.
Gíróseðlar verða bornir í öll
hús og fólk er hvatt til að hjálpa
Helga að líkna nauðstöddum í El
Kere. ■
32 ÁRA Augasteinn þjóðarinnar á
afmæli í dag. Sjónvarpskonan Eva
María Jónsdóttir er 32 ára og
mætti í vinnuna klukkan átta í
morgun. Og verður þar í allan dag
að undirbúa og koma fram í sér-
stökum kjördæmaþáttum Ríkis-
sjónvarpsins vegna kosninganna.
Útsendingar hefjast klukkan eitt
og standa fram til fjögur. Á morg-
un heldur svo leikurinn áfram:
„Það er dálítið erfitt að eiga af-
mæli í lok apríl. Þegar ég var
yngri kom próflestur í veg fyrir
hátíðahöld og núna og í fyrra eru
það kosningarnar. En samt dásam-
legur tími til að eiga afmæli þegar
gróandinn liggur í loftinu,“ segir
Eva María, sem kann því vel að
vera komin á fertugsaldurinn. Að
vera 32 ára sé jafnvel betra en að
vera 23 ára: „Helsti munurinn er
sá að þá var ég á lausu en nú er ég
gift. Það er skemmtilegra að vera
giftur og þá sérstaklega ef maður
er vel giftur,“ segir hún og vísar
þar til eiginmannsins, Óskars Jón-
assonar kvikmyndagerðarmanns,
sem má vera ánægður með hrósið.
En nú stendur upp á hann að gefa
ástinni sinni afmælisgjöf við hæfi
og hafa tilbúna þegar hún kemur
heim úr vinnunni á eftir: „Það
væri gaman að fá eitthvað úr
gulli,“ segir hún.
Eva María og Óskar eiga
þriggja og hálfs árs gamla dóttur
sem heitir Matthildur og bíða nú
eftir nýju barni sem er væntan-
legt í heiminn eftir átta vikur.
Hún segist vel geta hugsað sér tvö
til viðbótar. Og Eva María slær
ekkert af heldur vinnur eins og
hver annar: „Þetta er ekkert erfitt
því það eru allir svo góðir við mig.
Það er enginn að ætlast til þess af
mér að ég sé einhver súperkona
með bumbuna út í loftið.“
Þó gaman sé í vinnunni og af-
mælisdagurinn jafnvel lagður
undir þá á Eva María sér það skjól
sem hún leitar í erlinum öllum:
„Fjölskyldan er bakland sem gott
er að hverfa til. Ég er þrefalt naut
og hef því ekki mikla fjölbreytni í
skapsmunum. Ég er öll mjög jöfn
– slétt og felld,“ segir afmælis-
barn dagsins.
eir@frettabladid.is
JARÐARFARIR
11.00 Sesselja S. Sigurðardóttir frá
Seljatungu verður jarðsungin frá
Selfosskirkju.
13.30 Sveinn Guðnason, Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju.
14.00 Elísabet Andrésdóttir, Hulduhlíð,
Eskifirði, verður jarðsungin frá
Eskifjarðarkirkju.
14.00 Guðmundur Sigurbergsson verð-
ur jarðsunginn frá Strandakirkju.
14.00 Ketilbjörg Erlendína Magnús-
dóttir, Hringbraut 112, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Hafnarkirkju
í Höfnum.
14.00 Þuríður Guðrún Tómasdóttir,
Sandgerði, Stokkseyri, verður jarð-
sungin frá Stokkseyrarkirkju.
Björn
Jóhannsson
látinn
Björn Jóhannsson, fulltrúi rit-stjóra Morgunblaðsins, varð
bráðkvaddur á heimili sínu að
morgni miðvikudagsins 23. apríl
sl., 68 ára að aldri.
Björn varð framkvæmdastjóri
Alþýðublaðsins árið 1958 og var
blaðamaður á Alþýðublaðinu frá
1958 til 1962. Hann var ritstjóri
dagblaðsins Myndar árið 1962 þar
til útgáfu þess var hætt og hóf
hann sama ár störf á Morgunblað-
inu. Björn var blaðamaður á
Morgunblaðinu á árunum 1962-
1967 en tók þá við starfi frétta-
stjóra á Morgunblaðinu. Björn
var fréttastjóri á blaðinu til ársins
1981 er hann varð fulltrúi rit-
stjóra Morgunblaðsins og gegndi
hann því starfi til dauðadags. ■
Við sláum þeim öllum við,“ segirGunnar í Krossinum, sem lagt
hefur lokahönd á sex samtalsþætti
við forystumenn allra þeirra stjórn-
málaflokka sem bjóða fram á lands-
vísu og sýndir verða á kristilegu
sjónvarpsstöðinni Ómega nú fyrir
kosningarnar. „Við látum okkur
ekki nægja að sýna þættina hér á
landi heldur gefum við einnig þeim
20 þúsund Íslendingum sem búsett-
ir eru í Norður-Evrópu tækifæri til
að sjá þá,“ segir hann.
Kosningaþættir Gunnars á
Ómega verða sendir til Evrópu í
gegnum gervihnöttinn Thor II og
sýndir í Evrópu klukkan 22 að ís-
lenskum tíma á Gospel Channel
Europe: „Sjómenn á hafi úti geta
einnig séð þættina en Ómega er ein-
mitt sú stöð sem íslenskir sjómenn
sjá fyrst þegar þeir nálgast landið,“
segir Gunnar, sem ræddi við stjórn-
málaforingjana á persónulegum
nótum og reyndi þannig að skyggn-
ast undir yfirborð hefðbundinnar
kosningabaráttu:
„Þetta er valið lið ágætismanna,
bæði í stjórn og stjórnarandstöðu.
Allir játa þeir tilvist Guðs nema
helst Steingrímur J. Sigfússon sem
er efasemdarmaður enda í þannig
flokki,“ segir Gunnar í krossinum.
„En við getum lýst yfir stuðningi
við þá alla.“
Sýning þáttanna hefst í næstu
viku en þeir eru hver 30 mínútur að
lengd. Gert er ráð fyrir að hver
þáttur verði sýndur fjórum sinnum
þannig að alir ættu að sjá. Bara að
stilla á Ómega og þá koma þeir fyrr
en síðar:
„Ég get ekki lýst yfir stuðningi
við einn stjórnmálaforingja um-
fram annan. Slíkt væri ekki við
hæfi,“ segir Gunnar í Krossinum. ■
Gunnar í Krossinum með
kosningasjónvarp Fjölmiðlar
■ Sjónvarpsstöðin Ómega verður með
kristilegt kosningasjónvarp sem sent
verður út um alla Norður-Evrópu í gegn-
um gervitungl. Þar ræðir Gunnar í Kross-
inum við forystumenn allra þeirra stjórn-
málaflokka sem bjóða fram á landsvísu;
sex hálftímalangir þættir.
GUNNAR Í KROSSINUM
Stjórnar sex viðtalsþáttum við stjórn-
málaforingjana og sendir út á Ómega um
alla Norður-Evrópu.
Langar í gull
Afmæli
■ Eva María Jónsdóttir er 32 ára í dag.
Hún ætlar að vinna á afmælisdaginn
enda í mörg horn að líta í sjónvarpinu
rétt fyrir kosningar. Eva María á sér þó
draum um afmælisgjöf sem kannski
rætist í dag.
Neyðarhjálp
■ Miklir þurrkar hafa leikið Eþjópíumenn
grátt. Íslendingar eru hvattir til að leggja
sitt af mörkum til hjálpar fólki í sárri
neyð.
Hjálpum Helga að
líkna í neyð
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR
Betra að vera gift en á lausu – sérstaklega
ef maður er vel giftur.
HELGI HRÓBJARTSSON
Helgi hefur unnið mikið og fórnfúst starf í
Eþíópíu á undanförunum 30 árum og nýt-
ur þar mikillar virðingar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T