Fréttablaðið - 26.04.2003, Side 46
Hrósið 46 26. apríl 2003 LAUGARDAGUR
Fyrir allmörgum árum var égeinstæð móðir og bjó undir súð í
Hlíðunum. Einni pabbahelginni átti
að eyða við uppáhaldsiðjuna, sem
var að liggja uppi í sófa og lesa.
Ósköpin dundu svo yfir þegar mikl-
um skugga brá yfir stofuna og í ljós
kom sú allra stærsta fluga sem ég
hef séð. Stærðin á skepnunni var
með þeim ólíkindum að allir þeir
sem trúa mér eru sammála um að
endurskoða þurfi þyngdarlögmálið.
Á ógnarhraða hendist ég fram á
gang íbúðarinnar og skelli stofu-
hurðinni rækilega. Þegar bráir af
mér næ ég að opna glufu á hurðina
og draga til mín símann. Hringi í
barnsföðurinn sem hikar áður en
hann spyr: „Var þetta karl- eða
kvenfluga?“. „Ertu að fara á líming-
unum maður, heldurðu að ég hafi
verið að kyngreina skepnuna?“
Hann sækir í sig veðrið: „Það er
nefnilega þannig að á vissum árs-
tíma verða kvenflugurnar.....“.
„Ætlarðu að gera eitthvað?“ er
hvæst áður en hann getur haldið
áfram fyrirlestrinum. „Nei,“ svarar
hann og þetta er endanlegt svar.
Fyrir utan harðlokaðar stofu-
dyrnar er gripið aftur til símans.
Lækka registerið í röddinni til að
hljóma ábúðarfull og segi: „Góðan
daginn. Þið hjálpið almennum borg-
urum sem eiga í erfiðleikum, er
ekki svo?“ Þegar loks stór og stæði-
legur lögreglumaðurinn stendur í
dyrunum er ljóst að honum er ekki
kunnugt um ástæður útkallsins.
„...og ég get svo svarið að ég sá
hálskirtlana í skepnunni þegar hún
flaug framhjá, svo stór er hún!“
Þannig lýkur útskýringum mínum
og tilraun til að gera manninum
ljóst að skörp athyglisgáfa mín sé á
engan hátt slævð af áfengi eins og
hann augljóslega grunar. Ósann-
færður heldur lögreglumaðurinn
upp í risið. Og þar verður ljóst að
versti mögulegi endirinn á ævin-
týrinu er orðinn að veruleika. Það
er engin fluga! Nú þarf aldeilis að
bjarga trúverðugleikanum og
sjálfsvirðingunni með einni hnit-
miðaðri setningu. Sú hljómar
svona: „Hún hefur séð ykkur koma
og ákveðið að forða sér áður en hún
væri dregin héðan út í handjárn-
um.“ ■
Sagan
■ Kristín Atladóttir kvikmyndagerðarmað-
ur segir frá glímu við stærstu flugu sem
sögur fara af og skorar á Ástu R. Jóhann-
esdóttur þingmann, „sem komið hefur
sjálfri sér og öðrum í og úr klandri vítt
um álfur“, að segja næstu sögu.
...fær Pétur Már Ólafsson og aðr-
ir starfsmenn Eddu miðlunar fyr-
ir að hafa komið öllum bókum
Laxness á Netið – samtals átta
megabæt.
Náttúrutöffari í uppnámi
KRISTÍN ATLADÓTTIR
En frásögnin hefur greinilega haft áhrif því
lögreglumaðurinn hikar eitt augnablik áður
en hann hrindir stofuhurðinni upp.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2..
3..
Við Select-stöðina á Vestur-
landsvegi.
Frá Færeyjum.
Justin Timberlake.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
vetnisbílar springa ekki í loft upp á
holóttum vegum.
Ég hef lengi verið viðloðandibókaútgáfu með einum eða
öðrum hætti,“ segir Heiðar Ingi
Svansson en þetta er annað árið í
röð sem hann sér um fram-
kvæmdastjórn Viku bókarinnar
fyrir Félag íslenskra bókaútgef-
enda. „Það má segja að ég sé upp-
alinn í þessum bransa en fóstur-
faðir minn rekur Bókaútgáfuna
Skjaldborg.“ Heiðar er fæddur á
Akureyri. „Ég flutti þaðan 1986.
Það er orðið svo langt síðan að ég
tel ekki einu sinni árin,“ segir
Heiðar, sem fer þó norður reglu-
lega.
„Ég útskrifaðist sem rekstrar-
fræðingur frá Bifröst og að því
námi loknu gerðist ég ferðamála-
fulltrúi á Blönduósi í tvö ár en fór
svo að vinna hjá Skjaldborg. Nú
starfa ég sjálfstætt að markaðs- og
kynningarmálum og tek oft að mér
verkefni fyrir Félag íslenskra
bókaútgefenda.“ Heiðar segist
hafa fundið sig í markaðsmálunum
en meðfram vinnu sinni er hann á
kafi í alþjóðamarkaðsfræðinámi
við Tækniháskólann.
Heiðar er giftur Aðalbjörgu
Stefaníu Helgadóttur og segist
hafa átt miklu barnaláni að fagna.
„Þegar allt er talið, með fóstur-
börnum, á ég sex börn. Það yngsta
er eins og hálfs árs en elsta sautján
þannig að það er mikið og stöðugt
fjör á mínu heimili.“
Heiðar efast ekki um gagnsemi
Viku bókarinnar enda séu viðburð-
ir af þessu tagi meðal annars til
þess fallnir að varpa kastljósi fjöl-
miðlanna á bækurnar á öðrum tím-
um en jólunum.
Heiðar segir að auk markaðs-
mála og bóklesturs hafi hann mik-
inn áhuga á tónlist. „Ég nýt tónlist-
arinnar ekki síst sem neytandi en
syng líka í kirkjukór. Ég eyði líka
drjúgum tíma í fjölskylduna en
finnst ég samt aldrei hafa nægan
tíma fyrir hana. Ætli það megi ekki
flokka fjölskylduna undir áhuga-
mál.“
thorarinn@frettabladid.is
Persónan
■ Heiðar Ingi Svansson er framkvæmda-
stjóri Viku bókarinnar. Hann hefur sjálfur
verið með puttana í bókaútgáfu og þekk-
ir því umhverfið vel auk þess sem hann
er sílesandi. Hann starfar sjálfstætt að
markaðs- og kynningarmálum og tekur
oft að sér verkefni fyrir Félag bókaútgef-
enda.
Á kafi í bókum
Fréttiraf fólki
Kötturinn Moli týndist á Holta-vörðuheiði fyrir þremur vik-
um í umferðarslysi þegar bíll valt
þar. Moli var í búri í bílnum og
hentist úr því og bílnum í velt-
unni. Síðan hefur ekkert til hans
spurst:
„Það hafa margir farið og leit-
að; fjöldi manns auk allra hinna
sem beðnir hafa verið um að svip-
ast um eftir honum,“ segir Sigríð-
ur Heiðberg hjá Kattavinafélag-
inu. „Þetta er því raunalegra
vegna þess að Moli er bæklaður
og gengur á kjúkunum á öðrum
framfæti. Við erum hrædd um að
tófan hafi jafnvel náð honum.
Þetta er átakanlegt,“ segir Sigríð-
ur, sem þó hefur ekki enn gefið
upp alla von um að Moli finnist.
Enn hvetur hún vegfarendur sem
leið eiga um Holtavörðuheiði að
svipast um eftir litlum, höltum
ketti sem verið hefur of lengi einn
á heiðinni – sé hann þá á lífi. Moli
er steingrár og hvítur:
„Í umferðarslysinu sem Moli
lenti í slasaðist fólk sem betur fer
ekki. Missirinn yfir Mola er þó sá
hinn sami,“ segir Sigríður Heið-
berg. ■
HEIÐAR INGI SVANSSON
„Bókaútgáfa á vorin er líka alltaf að færast í aukana og nú er verið að gefa út töluvert af nýjum bókum, meðal annars ljóðabókum. Þá er
kiljuútgáfan orðin mjög lífleg en kiljunni er beint gagngert á sumarmarkað enda tilvalin í fríið og sumarbústaðinn.“
Kattarhvarf
■ Köttur sem týndist í bílslysi á Holta-
vörðuheiði fyrir þremur vikum er enn
ófundinn. Fjöldi manns hefur leitað katt-
arins og óttast menn jafnvel að tófan hafi
náð honum.
Moli týndur
á Holtavörðuheiði
TÝNDI KÖTTURINN
Moli er steingrár og hvítur og
bæklaður á framfæti.
Forsætisráðherraefni Samfylk-ingarinnar velur flugfélag al-
þýðunnar þeg-
ar hún bregður
sér á milli
landa. Farþeg-
ar með Lund-
únaflugi
Iceland Ex-
press á mið-
vikudagskvöld-
ið tóku eftir
Ingibjörgu Sól-
rúnu í farþega-
rýminu, sólbrúnni og sællegri á
leið heim úr páskafríi. Þannig
ætlar hún að skella sér í loka-
sprett kosningabaráttunnar; end-
urnærð og fín. Heldur mun óal-
gengt að stjórnmálamenn fljúgi
með Iceland Express.
Vefurinn www.haegri.is, semHuginn félag ungra sjálf-
stæðismanna
heldur úti, hef-
ur auglýst eftir
Össuri Skarp-
héðinssyni,
sem „virðist
hafa horfið
sporlaust í að-
draganda al-
þingiskosninga
2003.“ Þeir
sem hafa séð
Össur eru vinsamlega beðnir að
senda haegri.is póst og er við-
komandi heitið páskaeggi að
launum ef upplýsingarnar leiða
til fundar Össurar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Skráning í síma 894 7096 og 565 6676 e. 18:00 eða í síma 565 9494
mið. 30. apríl milli kl. 18:00 og 19:00.
Garðbæingar!
Börn og umhverfi
Garðabæjardeild Rauða kross Íslands heldur námskeiðið
Börn og umhverfi fyrir einstaklinga á aldrinum 11-15 ára.
Námskeiðið fer fram 5., 6., 7. og 8. maí
kl. 16:30-19:30 alla dagana.
Kennt er á Garðaflöt 16-18, Garðabæ.
Námskeiðið er 16 kennslustundir og er farið í ýmsa
þætti er varða umönnun og framkomu við börn, leiki og
leikföng. Umfjöllun um slysavarnir og algengar slysa-
hættur í umhverfinu ásamt kennslu í skyndihjálp.
Leiðbeinendur eru leikskólakennari og
hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðsgjald er kr. 5.300.- (systkini fá afslátt).
Innifalið í námskeiðsgjaldi er handbók og skyndihjálparbakpoki.
(áður barnfóstrunámskeið)