Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 38
Það er ekkert þras um pólitíkþarna efra og stjórnmálamenn fyrir handan eru ekki að velta fyr- ir sér hvernig þessar kosningar fara núna,“ fullyrðir Þórhallur Guðmundsson miðill þegar hann er spurður hvort þeir Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors eða nafni hans Jóhannesson hafi nokkuð hvíslað að honum hver úr- slit kosninganna verði. Hann segir þá hafa um annað að hugsa en dægurþras og pólitík og þótt þeir væru að velta því fyr- ir sér myndu þeir tæpast fara að minnast á það. Þórhallur hefur verið í höfuð- borginni að undanförnu við vinnu en hann býr á Akureyri og hefur gert það undanfarin ár. „Ég kann vel við mig á Akureyri og mér finnst gott að búa þar. Ég flutti fyrst á Svalbarðseyri og bjó þar um skeið en færði mig inn á Akur- eyri fyrir nokkru. Í hverjum mán- uði kem ég til Reykjavíkur og vinn hér í tólf daga í senn.“ Gefandi starf Þórhallur segist hafa þurft á breytingu að halda fyrir nokkrum árum og tekið þá ákvörðun um að flytja. „Ég á ættir mínar að rekja norður og það lá beinast við að flytja þangað,“ segir hann. Er ekki erfitt að vera í sam- bandi við fólk á æðri stigum og miðla því áfram til fólks? „Jú, það getur verið það. Fólkið sem heimsækir mig kemur í mis- munandi tilgangi. Flestir koma til að komast í samband við einhvern ákveðinn sem þá langar að heyra frá. Það er ekkert sjálfgefið að það takist og þá verður fólk eðli- lega leitt.“ Þórhallur segir að starf hans felist í því að sýna fólki fram á að það sé líf eftir þetta líf. Oft fari langur tími í að hlúa að fólki því sorgin leggist misjafn- lega á hvern og einn. „En þetta er óskaplega gefandi og fleiri fara þakklátir og ánægðir frá mér en ekki.“ Lokar sig af á milli Geturðu sagt fólki hvað bíður þess í framtíðinni? „Sko, ef ég orða þetta rétt þá er ég miðill sem miðla því sem þeir sem koma í gegn vilja koma frá sér til þeirra sem eftir lifa. Það sem oft gerist er að þeir fram- liðnu segja mér ýmislegt sem hef- ur enga merkingu fyrir mig en skiptir fólk sem er hjá mér á fundi miklu máli. En ég er ekki spákona sem spái í spil og strekki dúka eins og auglýst er í smáaug- lýsingum dagblaðanna,“ segir Þórhallur og brosir. Hann segir koma fyrir að fólk misskilji þetta og haldi að hann geti sagt því hvað sé framundan. „Það er allt undir því komið hvað þeir framliðnu vilja koma frá sér. Ég hef ekkert með það að gera sjálfur.“ Þórhallur segir að þegar hann sé ekki í vinnu þá loki hann sig af því það þýði ekki að vera alltaf op- inn og taka við öllu. „Auðvitað læðist eitt og annað inn,“ segir hann. Heyrði raddir allt í kringum mig Manstu hvenær þú fórst að sjá fyrst? Ég man að þegar ég var lítill þá heyrði ég raddir allt um kringum mig. Móðuramma mín sem ég var mjög hændur að vissi það hins vegar mjög snemma að ég hafði þessa gáfu. Hún sagði frá því, að þegar ég var um það bil sjö ár, hafi komið til hennar kona sem sagði henni draum um gamla konu sem amma þekkti. Á meðan konan dvaldi hjá henni kallaði amma á mig og bað konuna að segja mér þennan sama draum. Þá á ég að hafa bent á magann á henni og sagt: „hún vill þetta hérna“. Hún var ófrísk og konan í draumnum var að vitja nafns. Þórhallur segist ekki muna eft- ir þessu atviki og það var ekki fyrr en löngu síðar sem hann gerði sér ljóst að hann byggi yfir gáfu sem afar fáir hafa. „Ég var rúmlega tvítugur þegar ég hóf að sitja í bænahring hjá Sálarrann- sóknarfélagi Íslands. Ekki löngu síðar leigði ég bílskúr inni í Vog- um og þar hélt ég fyrstu miðils- fundina mína.“ Menn koma til að fá sönnun Þórhallur segir að fólk komi til sín með miklar væntingar. Það sé fyrirfram ákveðið í að hitta þenn- an eða hinn og finnst allt ónýtt ef það gengur ekki eftir. „Að sama skapi verða menn óskaplega ánægðir ef þeir heyra frá þeim sem þeir vænta þó ekki sé það annað en skilaboð um að allt verði í lagi með Jón frænda eða að Gunna frænka komist í gegnum það sem hún sé að fást við. Það þarf ekki að vera mikið til að gleð- ja fólk,“ segir Þórhallur og leggur áherslu á að fólk verði að vita hvað það sé að gera á miðilsfund. Hverjar séu væntingarnar. „Margir leita eftir einhverri innri ró en fyrst og síðast er kemur fólk til mín til að fá sönnun þess að það sé líf á eftir þessu lífi. Að gengnir ástvinir fylgist með þeim og þeim líði vel,“ segir Þórhallur. Hann er þeirrar skoðunar að fólk sé misjafnlega næmt en ekki síður greini á milli þeirra sem leggi sig fram um að vera mót- tækilegir og hinna lokuðu. „Taktu eftir, að þú ferð ósjálfrátt að velta þessum málum fyrir þér þegar einhver þér tengdur, deyr. En hvers vegna verða menn alltaf svona hissa þegar einhver deyr? Við vitum að þetta er leiðin okkar allra og það er eins víst og sólin kemur upp að morgni að við eig- um eftir að deyja. Við vitum bara ekki hvenær. Auðvitað er erfitt að taka því en ég get staðfest að fólki líður vel efra. Þeir sem hafa þjáðst á jörðu niðri og verið illa haldnir fyrir dauðann fá lausn og skilja öll líkamleg mein eftir. Þau tilheyra líkamanum.“ 40 10. maí 2003 LAUGARDAGUR Þórhallur Guðmundsson miðill segir gamla refi í pólitík, sem búi fyrir handan, ekki velta pólitíkinni mikið fyrir sér þar. Sjálfur hefur hann hins vegar tilfinningu fyrir úrslitum kosninga og er ekki frá því að það verði einhverjar breytingar. Strekki hvorki dúka né spái í spil Fólkið sem heimsækir mig kemur í mismunandi tilgangi. Flestir koma til komast í samband við ein- hvern ákveðin sem þá lang- ar að heyra frá. Það er ekk- ert sjálfgefið að það takist og þá verður fólk eðlilega leitt.“ ,, ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON MIÐILL Starf mitt felst í því að sýna fólki fram á að það sé líf á eftir þessu lífi. Flestir fara ánægðir frá mér en það kemur einnig fyrir að fólk skilur ekkert um hvað ég er að tala. Ég segi mönnum að bíða því það komi að því að skilningurinn vakni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.