Fréttablaðið - 10.05.2003, Side 41
LAUGARDAGUR 10. maí 2003
Sýningu Piu Rakelar Sverrisdóttir á
glerlistaverkum í Baksalnum í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg lýkur á sunnudag.
Sýninguna nefnir listakonan Tíminn og
vatnið og helgar hana minningu móður
sinnar, Kaino Annikki Hjálmarsson.
Sýningu Borgarskjalasafns Reykja-
víkur um kosningaáróður 1880 til
1999 lýkur á sunnudaginn.
Sýningu á verkum Leifs Breiðfjörð,
sem staðið hefur yfir í Seltjarnarnes-
kirkju frá því á páskadag, lýkur á sunnu-
daginn. Flestar mynda hans bera trúar-
leg heiti, svo sem: Hirðirinn, Lífsins bók,
Sköpun, Cosmos, Sanctus og Paradís.
Á sunnudaginn lýkur sýningum Ás-
mundarsafns, bæði innsetningu Eygló-
ar Harðardóttur í Kúlunni og sýning-
unni Listin meðal fólksins. Ásmundar-
safn verður lokað til 20. maí
Sýningu Huldu Vilhjálmsdóttur í
Rauðu stofunni í Galleríi Fold við Rauð-
arárstíg lýkur á sunnudag.
Í Listasafni ASÍ lýkur á sunnudag
sýningu á verkum eftir Sigrid Valtin-
gojer og Kunito Nagaoka. Kunito Naga-
oka sýnir pappírsverk eða collagemyndir
úr asískum efnivið. Sigrid Valtingojer
sýnir grafíkverk, m.a. myndröð sem hún
kallar Hljóðform, auk þess sýnir hún
ætingar og ljósmyndainnsetningu.
■ ■ TÓNLIST
16.00 Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands fagnar tíu ára afmæli sínu með
glæsilegum tónleikum í Íþróttahöllinni
á Akureyri þar sem flutt verður
Requiem eftir Giuseppe Verdi. Einsöngv-
arar verða Björg Þórhallsdóttir sópran,
Annamaria Chiuri mezzósópran, Krist-
ján Jóhannsson tenór og Kristinn Sig-
mundsson bassi. Kór Akureyrarkirkju,
Kór Langholtskirkju í Reykjavík og Kam-
merkór Norðurlands taka einnig þátt í
flutningnum og stjórnandi er Guðmund-
ur Óli Gunnarsson.
16.00 Liljuljóð er yfirskriftin á tón-
leikum í Hallgrímskirkju þar sem söng-
hópurinn Schola Cantorum syngur
sálma eftir Lilju Sólveigu Kristjánsdótt-
ur undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Einnig fjallar séra Sigurður Pálsson um
skáldið.
16.00 Fjölbreytt menningardagskrá
verður í Salnum í Kópavogi í tilefni af
afmæli Kópavogsbæjar. Veittir verða
listamannastyrkir og heiðurslistamaður
Kópavogs 2003 valinn. Tónlistaratriði
verða í umsjón Jónasar Ingimundar-
sonar píanóleikara. Einnig koma fram
nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs.
Allir eru velkomnir.
16.00 Listasafn Einars Jónssonar
efnir til tónleika í safninu til að minnast
afmælis Einars Jónssonar myndhöggv-
ara sem fæddur var 11. maí árið 1874. Á
tónleikunum flytja tveir hörpuleikarar,
þær Marion Herrera og Sophie
Schoonjans, verk eftir Cesar Franck, Carl
Philipp Emanuel Bach, Claude Debussy,
Jean-Michel Damase og D. Watkins.
17.00 Martin Hunger Friðriksson
leikur á orgel í Kópavogskirkju á hátíð-
artónleikum í tilefni af fjörutíu ára af-
mæli kirkjunnar.
20.00 Síðustu Tíbrártónleikar starfs-
ársins í Salnum, Kópavogi, verða helg-
aðir íslenskum sönglögum. Snorri
Wium tenór, Ólafur Kjartan Sigurðar-
son bariton og Jónas Ingimundarson
píanóleikari flytja lög eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Árna Thorsteinsson.
■ ■ LEIKLIST
13.00 Leiklistarnemar Listaháskóla
Íslands leiklesa leikritið Dags hríðar spor
eftir Valgarð Egilsson á fyrstu Vorhátíð
Listaháskólans.
14.00 Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir
barnaleikritið Gaggalagú eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
16.00 Leikritið Sólstafir, sögur frá
Sólheimum verður sýnt í íþróttahúsinu
á Sólheimum í tengslum við listahátíð-
ina List án landamæra, sem haldin er í
tilefni Evrópuárs fatlaðra og tíu ára af-
mælis Átaks, félags fólks með þroska-
hömlun. Leikfélag Sólheima er eitt elsta
áhugamannaleikfélag landsins og hefur
starfað í 72 ár.
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrt af
Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht er sýnt á Stóra sviði Borgarleik-
hússins.
20.00 Píkusögur eftir Eve Ensler
eru sýndar á 3. hæð Borgarleikhússins.