Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 14 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD DANSKEPPNI Þingmaður dansar í Borgarleikhúsi RANNSÓKN Erindum er stungið undan MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2003 – 126. tölublað – 3. árgangur bls. 26 EFNAHAGSMÁL Stýrum genginu ekki lengur bls. 6 Réttað í máli Móa og Reykjagarðs DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja- víkur fjallar um skuldamál Móa gegn Reykjagarði í dag. Móar krefjast greiðslu 20 milljóna króna skuldar. Reykjagarður hefur stefnt Móum á móti. Breytt form borga FYRIRLESTUR Prófessor Jeremy W.R. Whitehand heldur fyrirlestur um breytt form borga á tuttugustu öld á vegum Borgarfræðaseturs. Fyrir- lesturinn er haldinn í Lögbergi í Háskóla Íslands og hefst klukkan 12.15 Kór Lindakirkju í ham TÓNLEIKAR Kór Lindakirkju í Kópa- vogi heldur tónleika í Hjallakirkju í Kópavogi. Kórinn flytur fjöl- breytta dagskrá innlendra og er- lendra laga. Stjórnandi kórsins er Hannes Baldursson og undirleikari Zsuzsanne Budai. Einsöngvarar eru Heiða Margrét Guðmundsdóttir og Svanhildur Sveinbjörnsdóttir. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20 og er aðgangur ókeypis. STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V VARNARMÁL Elisabeth Jones, að- stoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, kemur hingað til lands í dag á leið sinni heim frá fundi ráðherraráðs Atlantshafsbanda- lagsins á Spáni. Á morgun ræðir hún við Dav- íð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson um hvernig stjórnvöld landanna tveggja sjá fyrir sér framtíð varnarsamn- ings landanna. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu- neytinu, segir að það hafi staðið til í nokkurn tíma að Elisabeth Jo- nes kæmi hingað til lands. Hann segir að ekki sé um eiginlegar viðræður um viðauka við varnar- samninginn að ræða heldur frek- ar undanfara að þeim á hærra stjórnsýslustigi. Jones muni væntanlega færa Davíð og Hall- dóri boð um framtíðarsýn Bandaríkjastjórnar. Einnig megi gera ráð fyrir að tímasetning við- ræðnanna verði ákveðin. Þegar sjálfar viðræðurnar um viðaukann hefjast verða þær í höndum embættismanna. ■ Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna fundar með Davíð og Halldóri: Ræða viðauka við varnarsamning bls. 19 KVIKMYNDIR Mann og Cruise saman bls. 13 FORMÚLA 1 Bridgestone að kenna REYKJAVÍK Norðaustan 5-10 m/s og rigning síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skúrir 6 Akureyri 3-8 Skúrir 7 Egilsstaðir 8-13 Rigning 7 Vestmannaeyjar 8-13 Rigning 12 ➜ ➜ ➜ ➜ + + EFNAHAGSMÁL Ómögulegt er að bregðast við vandanum sem skap- ast hefur vegna hás gengis krón- unnar án þess að leggja út í skipu- lagsbreytingu á umhverfi sjávar- útvegsins, að sögn Þorvalds Gylfason- ar, prófessors í hagfræði við Há- skóla Íslands. „Það að biðja stjórnvöld að bregðast við þessum vanda án þess að gera breytingu á fiskveiði- stjórnunarkerfinu er eins og að biðja mann um að berjast með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak,“ segir Þorvaldur. „Þessi há- gengisvandi er innbyggður í okk- ar efnahagslíf eins og hagstjórn- inni hefur verið háttað. Ein höfuð- rökin með því að taka upp veiði- gjald í tæka tíð var að skapa skil- yrði til þess að gengið væri lægra og úr því það hefur ekki verið gert kallar þessi framkvæmdahrina fyrir austan á enn hærra gengi en ella hefði verið.“ Þorvaldur segir að það sem geri vandann enn erfiðari sé sú staðreynd að ríkisstjórnin hyggist efna kosningaloforð sín um skattalækkanir og aðgerðir í hús- næðismálum. Hann segir að það ásamt fyrirhuguðum virkjana- og álversframkvæmum fyrir austan muni spenna gengið upp. Þorvaldur segir að þeir sem standi utan við þær framkvæmdir og standi í útflutningi eða séu í samkeppni við innfluttar vörur sjái ekkert nema svartnætti. Hann skilji vel áhyggjur þessara aðila og tekur undir þau orð Hann- esar G. Sigurðssonar, aðstoðar- framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins, að Raufarhöfn sé að- eins toppurinn á ísjakanum. „Þessi hágengisvandi núna er frábrugðinn hágengisvanda fyrri ára að því leytinu til að nú kemur þessi viðbótarinnspýting, sem er þessi framkvæmd fyrir austan. Menn sjá ekki fyrir endann á þessu og þá grípur um sig örvænting, því þessi framkvæmdahrina mun vara í mörg ár.“ Þorvaldur segir að lykilatriðið í þessu máli öllu sé að veiðigjaldi hafi ekki verið komið á. Farið hafi verið illa með fiskveiðirentuna, því nota hefði átt hana til að sætta byggðirn- ar við breytta atvinnuhætti. „En það var ekki gert, heldur voru menn bara látnir stinga þessu á sig og sóa því. Núverandi skipan sjávarútvegsstefnunnar jafngildir gríðarlegum niður- greiðslum úr almannasjóðum til útgerðarinnar og slævir þróttinn í greininni alveg eins og óeðlileg og of mikil ríkisafskipti slæva þrótt í atvinnulífi og lama það.“ trausti@frettabladid.is Hágengisvandinn innbyggður í kerfið Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, segir að breyta þurfi fiskveiðistjórnunarkerfinu. Öðru- vísi sé ekki hægt að bregðast við hágengisvandanum. Óttast kosningaloforð stjórnarflokkanna. VORHÁTÍÐ Á LEIKSKÓLANUM NÚPI Börnin á leikskólanum Núpi í Kópavogi voru ekki að láta það flækjast fyrir sér þó það rigndi á vorhátíð þeirra. Þau klæddu sig eftir veðri og fóru út að leika sér í vætunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M bls. 8 ÁHRIF HÁS GENGIS Á ALMENNING Komið hefur fram að of sterk staða krónunnar hefur áhrif á útflutnings- greinar og innlend fyrirtæki sem eru í samkeppni við innfluttar vörur. Þor- valdur Gylfason segir að almenningur hagnist á háu gengi krónunnar að því leyti að verð á innfluttum vörum sé lægra en ella. Það sé hins vegar ekkert sérstakt fagnaðarefni því þetta hágengistímabil sé til marks um bjögun sem valdi alls konar öðrum skaða, sem sé mun alvarlegri heldur en sú hagsbót sem almenningur hafi af lægra innflutningsverði. ■ „Menn sjá ekki fyrir endann á þessu og þá grípur um sig örvænting.“ ÞORVALDUR GYLFASON PRÓFESSOR Þorvaldur segir að það sem geri vandann enn erfiðari sé sú staðreynd að ríkisstjórn- in hyggist efna kosningaloforð sín um skattalækkanir og aðgerðir í húsnæðismál- um. Hann segir að það ásamt fyrirhuguð- um virkjana- og álvarsframkvæmum fyrir austan muni spenna gengið upp. 100. ferð páfa: Ferðast enn VATÍKANIÐ, AP Jóhannes Páll páfi II er fyrir löngu orðinn víðförlasti páfi sögunnar. Á morgun heldur hann af stað í hundraðasta ferða- lag sitt til útlanda. Leið hans ligg- ur til Króatíu þar sem hann dvel- ur í fimm daga. Á 99 ferðum Jóhannesar Páls II páfa hefur hann ferðast til 129 landa og verið utan Vatíkansins í 575 daga. Páfi hefur flogið meira en flestir aðrir. Vegalengdin sem hann hefur ferðast er 1,6 milljón kíló- metrar. Til samanburðar má geta þess að hringvegurinn íslenski er 1.381 kílómetri að lengd. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.