Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 45
25MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2003 Pondus eftir Frode Øverli OUTLET GRANDI ATHUGIÐ! AÐEINS Í 5 DAGA GERÐU FRÁBÆR KAUP Á MERKJAVÖRU Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Á ÓTRÚLEGU VERÐI 50 – 80% LÆGRA VERÐ HÓLMASLÓÐ 4, 2. hæð (gula húsið við Granda) OPIÐ: 4.6. til 8.6. FRÁ KL. 11-19 SÍMI: 694 8907 PETIT BATEAU Frönsk hágæða barnanærföt og náttföt ÖNNUR MERKI FYRIR MINNA: Úrvals pólóbolir og skyrtur fyrir karlmenn EVENFLO Kerrur, burðarpokar, bílstólar og fleira ÖRFIRISEY H Ó L M A S L Ó Ð FIS KI SL ÓÐ GR AN DA GA RÐ UR OUTLET GRANDI 13.30 Karl Júlíus Eiðsson, áður Lauga- vegi 159a, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu. 13.30 Jón Finnur Jóhannesson, Kópa- vogsbraut 22, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 15.00 Minningarathöfn um Unu Guð- rúnu Einarsdóttur, Sólbakka 3, Breiðdalsvík, fer fram frá Foss- vogskirkju. Hannes Valdimarsson, hafnarstjóri í Reykjavík, lést 2. júní. Sveinn Guðmundsson, Blöndubakka 3, lést 1. júní. Valdimar Óskarsson, Lækjarsmára 2, Kópavogi, lést 1. júní. Kristján G. Kristjánsson, fyrrverandi hafnarvörður, lést 31. maí. ■ Jarðarfarir ■ Andlát Æskan líður, ung og fjörleg STÚDENTAR „Þetta er afskaplega samheldinn og skemmtilegur hóp- ur,“ segir Ingileif B. Hallgríms- dóttir en gamlir skólafélagar henn- ar úr A-bekk Menntaskólans í Reykjavík söfnuðust saman á heimili hennar í Vesturbænum á laugardaginn áður en haldið var á Jubilantaball MR á Hótel Sögu. „Við höfum haft það fyrir sið að hittast alltaf í tvígang á fimm ára fresti og þar fyrir utan hittist fólk svo oftar í minni.“ Ingileif og gestir hennar út- skrifuðust frá MR árið 1938 og voru því að fagna 65 ára stúdents- afmæli sínu. Það var létt yfir hópn- um sem ræddi málin yfir guða- veigum og stemningin var slík að fátt gaf til kynna að gestirnir væru allir komnir vel yfir áttrætt. Í hópnum voru meðal annarra bankastjórarnir fyrrverandi Jónas Haralz og Helgi Bergs, en Jónas telur víst að það sé einsdæmi að tveir bekkjarfélagar hafi verið bankastjórar á sama tíma, Ástríð- ur Andersen, fyrrverandi sendi- herrafrú, ekkja Hans G. Andersen, þjóðréttarfræðings og sendiherra, og Margrét Vilhjálmsdóttir, ekkja Andrésar Björnssonar, fyrrver- andi útvarpsstjóra. Ástríður og Ingileif segja að þrátt fyrir að hópurinn sé ólíkur og að oft hafi verið himinn og haf milli fólks, ekki síst í pólitík, þá hafi vináttan ætíð verið byggð á traustum grunni. A-bekkurinn frá 1938 er ekki síst merkilegur fyrir þær sakir að stúlkur voru í yfirgnæfandi meirihluta, sem var einsdæmi á þessum árum. „Við vorum nítján stelpurnar,“ segir Ingileif „en allt frá 1915 til 1938 urðu stelpurnar í bekk aldrei fleiri en átta og árin eftir 1938 fækkaði stúlkunum aft- ur. Ég veit ekkert hvernig stóð á þessum fjölda í okkar árgangi.“ Jónas segist einhvern tíma hafa skoðað hagskýrslur og reynt að fá einhvern botn í þetta, meðal annars með tilliti til spænsku veikinnar, en hafi ekki fundið neinar haldbærar skýringar. Hann lætur það svo fylgja sög- unni að piltarnir hafi síður en svo kunnað illa við sig í kvennafansin- um. „Þær voru mjög áberandi og það var eftir þeim tekið þar sem þær spókuðu sig í fínum, gráum dröktum. Ég var á stærðfræði- braut og þar voru tómir strákar, þannig að við fórum í ræningja- ferðir og hinir urðu þá bara að reyna að stela þeim til baka.“ thorarinn@frettabladid.is Við Laugaveg 1 stendur látlausttimburhús á einni hæð með háu risi. Hús þetta var reist árið 1848 og var hugmyndin að reka þar veitingasölu. Reksturinn gekk ekki sem skyldi og var húsið selt Jóni Péturssyni yfirdómara. Jón, sem var bróðir Brynjólfs Fjölnis- manns, var lengi dómstjóri við Landsyfirréttinn og sat á Alþingi. Á meðan Jón og fjölskylda hans bjuggu í húsinu var það prýtt glæsilegum málverkum og ýmsu skrauti, ef marka má frásögn Benedikts Gröndal. Í hallanum neðan við húsið var fagur aldin- garður umgirtur háum grjótgarði. Árið 1915 hófu tveir kunnir at- hafnamenn verslunarrekstur í húsinu. Opnuðu þeir matvöru- verslunina Vísi sem enn er til húsa að Laugavegi 1. Húsinu hef- ur verið talsvert breytt á síðari árum. ■ ÚTSKRIFTARÁRGANGURINN 1938 Samankomin í Hressingarskálagarðinum, nýbúin að setja upp hvítu kollana. Það fylgir stúdentafögnuði að söngurinn Gaudeamus er kyrjaður. Þar segir meðal annars að æskan líði, ung og fjörleg en „ellin bíður, þung og hrörleg“. Hún virðist þó lítið hafa bitið á þennan líflega hóp sem söng óðinn til æskunnar fyrst fyrir 65 árum síðan. GAUDEAMUS Þessi gamli stúdentasöngur var leikinn hátt og snjallt þegar hópurinn stillti sér upp fyrir myndatöku og skömmu síðar var hringt á stóran leigubíl og hópurinn fór á ball á Hótel Sögu. Á myndinni eru: Jónas Haralz, Hjalti Gestsson frá Hæli, Margrét Sigurðardóttir, Helgi Bergs, Ingileif B. Hallgrímsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigfríður Nieljohniusdóttir, Guð- mundur Pétursson og Ástríður Andersen. Pældíðí...maður sér það alltaf á söngvurum hvernig tón- listin er! Sko...ef þeir halda SVONA á míkrófóninum er örugglega sveitt grúv! ...og ef allir í bandinu eru eins klæddir...úff, maður... Þúsund- kall fyrir eyrna- tappa! En ef þeir halda SVONA... þá er það pottþétt köld blómkáls- súpa! Hvað mein- arðu? Einmitt! HREÐJA- GRIP! Akkúrat... algjör Michael Bolton! ■ Húsið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.