Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 12
12 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
1 2 3 4 5 6 7
JÚNÍ
Miðvikudagur
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Be
ni
do
rm
Hva› ertu
a› hugsa?
4.
,
11
.
og
1
8.
j
ún
í o
g
27
.
ág
ús
t.
V
er
›
kr.
á mann
36
.2
40
36
.2
40
*Innifalið:
Flug, gisting, akstur til og frá
flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna
og 2 börn 2ja-11 ára.
**Innifalið:
Flug, gisting, akstur til og frá
flugvelli erlendis og íslensk
fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna.
Takmarkað sætaframboð
Sólarplús
fiú velur dagsetningu,
bókar og grei›ir
sta›festingargjald.
Gistista›urinn er sta›festur
viku fyrir brottför.
*
47
.6
30
k
r.
**
Sama sólin, sama fríi›
bara a›eins ód‡rara
Be
ni
do
rm
FÓTBOLTI Það hefur vakið athygli
hversu margir leikmenn KR-inga
hafa meiðst undanfarið en nú eru
sex leikmenn frá vegna meiðsla.
Samkvæmt lækni liðsins er
ástandið langt frá því að vera
verra nú en fyrri ár.
„Nei, ef eitthvað er þá er
ástandið betra núna en oft áður,“
sagði Bogi Jónsson, læknir KR til
margra ára. „Annars er þetta al-
gengt vandamál á vorin. Ástæðan
er yfirleitt sú sama, það er að
segja árstíðabreyting, mismund-
andi undirlag og hitastig. Mikið
um tognanir og þess konar meiðsl.
Þetta er algengt hér á norðurhveli
en síður í heitari löndunum.“ ■
16.30 RÚV Smáþjóðaleikarnir á
Möltu (e).
16.45 RÚV Fótboltakvöld (e).
18.30 Sýn Olíssport. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
19.00 Sýn Íslensku mörkin.
19.30 Sýn Fastrax 2002 (Véla-
sport) Hraðskreiður þáttur þar
sem ökutæki af öllum stærðum
og gerðum koma við sögu.
20.00 Sýn Trans World Sport.
Íþróttir um allan heim.
22.20 RÚV Smáþjóðaleikarnir á
Möltu. Samantekt af keppni dags-
ins.
22.30 Sýn Olíssport. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
23.45 RÚV Vélhjólasport 2003.
Þáttur um keppni vélhjólakappa
sem fram fór fyrir skömmu.
KR
Margs konar meiðsl hrjá leikmenn KR en engin mjög alvarleg.
Talsverð meiðsl í herbúðum KR:
Ekkert óvenjulegt
FÓTBOLTI „Ég hef nokkrum sinnum
skorað tvö mörk í leik en aldrei
áður þrjú,“ sagði Sinisa Kekic,
leikmaður Grindavíkur, sem skor-
aði þrennu í fyrsta sinn í síðustu
viku. „Ég veit ekki af hverju, en
ég hef alltaf skorað á móti Fram
og Breiðabliki.“ Kekic hefur skor-
að átta mörk í ellefu deildarleikj-
um gegn Fram og sjö mörk í sex
leikjum gegn Breiðabliki.
„Ég kom hingað árið 1996 þeg-
ar Guðmundur Torfason var þjálf-
ari Grindavíkur. Ég þurfti nokkra
leiki til að komast inn í íslenska
boltann því við spiluðum öðruvísi
fótbolta í Júgóslavíu. Ég hef alltaf
verið sóknarmaður en í fyrra bað
Bjarni Jóhannsson mig að fara í
vörnina með Ólafi Bjarnasyni. Ég
var dálítið stressaður því ég hafði
aldrei leikið í vörn og var ekki
100% viss um að það myndi ganga
vel. Ég lék síðustu átta leikina í
vörninni og það gekk mjög vel.
Það var besti kafli Grindavíkur og
við komumst í UEFA-keppnina.“
„Núna fór ég í sóknina í fyrsta
sinn í heilt ár og skora þrjú mörk.
Kannski setur Bjarni mig aftur í
vörnina þegar Grétar kemur aftur
eftir meiðslin.
Við sjáum til en
Grétar er frá-
bær leikmaður
og var marka-
kóngur í fyrra.“
„Við fengum
ekki mörg færi í
fyrstu tveimur
l e i k j u n u m .
Miðjumennirnir
fengu boltann og reyndu að fara í
sókn en töpuðum honum strax aft-
ur. Þegar Grétar er í liðinu getur
hann haldið boltanum með aðrir
koma upp völlinn.“
„Það er alltaf gaman að skora.
Ef allir spila vel þá skiptir ekki
máli hver skorar, ég, Grétar, Lee
Sharpe eða Óli Stefán. Lee Sharpe
er stór karakter, stór maður og
stór fótboltamaður. Hann getur
allt. Í leiknum á móti Fram var
hann úti um allan völl. Ég leit
kannski til vinstri og sá hann þar
og svo tveimur sekúndum síðar
leit ég til hægri og hann var þar
líka. Hann er kannski ekki í 100%
formi en hann æfir tvisvar á dag.“
obh@frettabladid.is
Kekic skoraði fimmtu
þrennu Grindvíkinga
Tómas Ingi Tómasson skoraði fyrstu þrennu félagsins í efstu deild
árið 1995 en Grétar Ólafur Hjartarson hefur þrisvar sett þrjú
mörk í sama leiknum.
KNATTSPYRNA Úrslit eru að mestu
orðin ljós í keppni knattspyrnu-
manna um Gullskóinn sem veittur
er af sambandi evrópskra íþrótta-
tímarita, ESM.
Ekki er nóg að skora flest mörk
heldur er einnig tekinn inn í
myndina styrkleiki þeirrar deild-
ar sem spilað er í. Það þýðir að ef
leikmaður í Belgíu og annar á
Spáni skora jafn mikið vinnur sá
spænski vegna þess hve deildin
þar er sterkari en sú belgíska.
Roy Makaay er vinningshafinn
þetta árið og sá eini á toppnum
sem enn á eftir að spila tvo leiki. ■
ÞRENNUR GRINDVÍKINGA
Tómas Ingi Tómasson
Grindavík-Breiðablik 6-3, 23. sept. 1995
Grétar Ólafur Hjartarson
Grindavík-ÍA 3-0, 8. sept. 2001
ÍA-Grindavík1-3, 29. maí 2002
Þór-Grindavík1-5, 15. sept. 2002
Sinisa Kekic
Grindavík-Fram 3-2, 30. maí 2003
KEKIC
Sinisa Kekic hefur
leikið með Grinda-
vík frá árinu 1996.
Línur skýrast hjá markahæstu mönnum:
Roy Makaay vinnur gullskóinn
Lið Stig
1. R. Makaay Deportivo 56
2. M. Kezman PSV 52,5
3. S. Nonda Monaco 52
4. R. Nistelrooy Man. Utd 50
5. T. Henry Arsenal 48
5. C. Vieri Inter 48
FILIPPO INZAGHI
Náði aðeins 22. sæti.
Skagamenn.com:
Pálmi bestur
í maí
Pálmi Haraldsson var valinn leik-
maður ÍA í maí af kviðdómi sem
stuðningsmannasíðan Skaga-
menn.com skipaði.
„Þetta er leikmaður sem fer
ekki mikið fyrir, en hann er með
réttar staðsetningar og mjög
drjúgur fyrir liðið,“ sagði einn
stuðningsmannanna. „Hann er ör-
uggur og staðfastur,“ sagði annar
og sá þriðji sagði „það er löngu
kominn tími til að menn geri sér
grein fyrir því hversu mikilvægur
Pálmi er fyrir liðið“.
Þórður Þórðarson veitti Pálma
harða keppni í valinu en fyrirliðinn
Gunnlaugur Jónsson varð þriðji. ■
LEE SHARPE Í LEIK GEGN FYLKI
Sharpe lagði upp þriðja mark Kekic í
leiknum gegn Fram og er Kekic ánægður
með framgöngu Englendingsins með
Grindavík í sumar.
Finninn Joonas Kolkka hefurgengið til liðs við þýska félagið
Borussia Mönchengladbach. Kolk-
ka hóf feril sinn hjá Reipas Lahti
árið 1991, lék með Willem II frá
Tilburg og PSV Eindhoven í
Hollandi og loks með Panathin-
aikos í Grikklandi.
Corinne Diacre varð fyrstfranskra kvenna til að leika 100
landsleiki í knattspyrnu. Kristine
Lilly, Bandaríkjunum, er leikja-
hæst allra með 251 landsleik en 54
knattspyrnukonur hafa leikið 100
leiki eða fleiri.
Á morgun verður dregið í 32 liðaúrslit VISA-bikarkeppni karla.
Félögin í efstu deild hefja keppni á
þessu stigi mótsins og munu öll
leika á útivelli gegn félögum úr
neðri deildunum.
■ Molar