Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 32
4. júní 200318 Ferðalög innanlands
Frá Ægisgarði við Reykjavíkur-höfn er hægt að fara í hvala- skoðunarferðir daglega meðhvalaskoðunarskipinu Eldingu.
„Við byrjuðum í Keflavík vorið
2000,“ segir Einar Örn Einarsson
leiðsögumaður, „en síðan hefur
þetta þróast þannig að nú gerum
við alfarið út frá Reykjavík. Við
erum með þrjár fastar ferðir á
dag, en síðan eru alls kyns auka-
ferðir í boði, stangveiðiferðir, þar
sem farþegar geta jafnvel gert að
aflanum og grillað hann um borð,
veisluferðir og ævintýraferðir
hvers konar fyrir hópa. Við skil-
greinum okkur sem þjónustuaðila
í skemmtisliglingum,“ segir Ein-
ar.
Blaðamaður tók sér ferð á
hendur með Eldingu en hafði ekki
miklar væntingar um hvalamergð
á leiðinni. Það brá hins vegar svo
við að fjöldi hvala bylti sér fyrir
farþega þennan fallega sunnudag,
sem þar að auki var sjómannadag-
urinn, og hnísuhópar léku sér við
skipshlið, sem var ótrúlega
skemmtileg sjón. Einar segir að
árangurinn í hvalaskoðuninni sé
98%, sem sé talsvert umfram það
sem gengur og gerist í öðrum
löndum. „Svo má ekki gleyma því
að við erum líka með svokallaðar
sæþotur eða „jet ski“ og það hefur
verið vinsælt að fara með minni
bátnum okkar út á sundin, leika
sér á þeim, veiða og grilla,“ segir
Einar.
Elding býður líka upp á sigl-
ingar í Hvalfjörðinn með leið-
sögn. „Það er afskaplega
skemmtilegt svæði, þrungið ör-
lögum og atburðum gegnum ald-
irnar, hérna rétt við bæjardyrn-
ar.“
Einar segir sögu Eldingarinn-
ar skemmtilega. Hún var smíð-
uð í Kópavogi fyrir Hafstein
kafara frá Akranesi, sem var
þekktur víða um heim, en hann
smíðaði nokkrar seglskútur sem
allar bera nafnið Elding. „Hann
lét smíða þessa sem björgunar-
og aðstoðarskip fyrir síldarflot-
ann, en skipasmíðastöðin sem
smíðaði hana fór á hausinn svo
Hafsteinn stal henni úr slippn-
um. Síðar var lokið við smíðina
og nú á hún langan og lánsaman
feril að baki. Eldingin var afla-
sælt fiskiskip um tíma, en end-
urbyggð frá grunni árið 1997 og
hefur hentað sérstaklega vel í
þessar ferðir,“ segir Einar að
lokum. ■
FARÞEGAR Á ELDINGU
Horfa hugfangnir á hvalina bylta sér í sjávarborðinu.
Hvalaskoðun frá Reykjavík:
Á gömlu fengsælu
og „stolnu“ skipi