Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 16
4. júní 20032 Ferðalög innanlands Þetta byrjaði nú ekki að neinuráði fyrr en fyrir tíu árum,þegar ég gekk „Laugaveg- inn“,“ segir Kristjana Kristjáns- dóttir, bókari og áhugamanneskja um gönguferðir og útivist. „Sonur minn var þá fararstjóri hjá Ferða- félaginu og ég slóst í för með hon- um, en svo gerði ég nú ekki mikið næstu árin á eftir þar sem ég var bundin yfir börnum. En svo fór ég á fullt og hef verið síðan,“ segir hún. Kristjana hefur ferðast töluvert með Ferðafélaginu, en er nú meira með Útivist og á eigin vegum. Hún notar hvert tækifæri sem gefst til að leggja land undir fót en á ekki alltaf heimangengt, því hún og maðurinn hennar eru líka með hesta. „Ég þarf að skipta mér þarna á milli, fyrir utan að vera í tvöfaldri vinnu, en þetta er óneit- anlega mikil útivist.“ Aðspurð um staði sem standa upp úr segir Kristjana erfitt að velja. „Ég er búin að ganga í öllum landsfjórðungum og finnst alltaf að staðurinn sem ég er á hverju sinni sé fallegastur. En auðvitað standa sumir staðir upp úr, eins og Hornstrandir og Lónsöræfi. Þangað langar mann alltaf aftur. Líka í Víkurnar á Borgarfirði Eystri og Loðmundarfjörð, þetta eru allt staðir sem ég ætla að koma á aftur.“ Kristjana segir ekki bráðnauð- synlegt að vera toppformi til að taka þátt í svona ferðum „Dagleið- irnar eru frá fimm tímum upp í sjö og stundum lengri. En það geta þetta náttúrlega allir sem eru heil- brigðir. Aðalatriði er að vera á góð- um skóm og með góðan fatnað. Það er misjafnt hvort byrðarn- ar eru bornar á bakinu allan tím- ann,“ segir Kristjana, „Á Horn- ströndum í fyrra vorum við með allt á bakinu, gistum í tjaldi og lentum í heilmikilli vosbúð, en það verður bara skemmtilegra í minn- ingunni. Í Lónsöræfum gistum við í skála, og gengum með allt nema tjald. Ég hef bara tvisvar farið í ferðir þar sem maturinn var inni- falinn og fluttur á staðinn, en mér finnst það skemmtilegra á hinn mátann, að vera bara með allt á bakinu.“ Að sögn Kristjönu er félags- skapurinn í svona ferðum ótrúlega skemmtilegur, kvöldvökur á kvöld- in og margt til gamans gert. „Við reynum að vera með eitt- hvað heimatilbúið, lesum upp leiðalýsingar og syngjum. Svo verður auðvitað að passa upp á að fólk fái góða hvíld. En það er engin spurning að þetta hleður batteríin og maður kemur endurnærður til baka.“ ■ Það er úr svo ótal mörgu aðvelja, en ég er óskaplegahrifinn af gljúfrunum uppi í Hofsá í Hofsárdal í Vopnafirði. Staðir sem mér finnst ægilega gaman að koma á og tengist að sjálfsögðu veiðinni,“ segir Pálmi Gunnarsson tónlistar- maður, sem er ekki aðeins ást- sæll söngvari heldur líka þekkt- ur sem áhugamaður um lax- veiði. „Vopnafjörðurinn er nátt- úrlega óskaplega falleg sveit, en þar er ég fæddur og uppalinn og væri að sjálfsögðu ógurlegur svikari ef ég segði ekki að hann væri meðal þeirra staða sem mér finnst yndislegast að koma á. Þá hef ég komið mjög oft í Vestur-Skaftafellssýslu, í kring- um Kirkjubæjarklaustur, og það svæði er í miklu uppáhaldi. Svo upp á síðkastið hef ég verið að skoða Kelduhverfi og Öxar- fjörð og þar opnaðist eitthvað alveg nýtt fyrir mér,“ segir Pálmi. ■ Tvö ný landakort eru kominút hjá Landmælingum ríkis-ins og hið þriðja kemur út um miðjan júní. Þórdís Arthurs- dóttir hjá Landmælingum segir þessi kort geyma allar grunnupp- lýsingar fyrir ferðalanginn. „Við höfum verið að breyta kortunum, áður vorum við með níu kort á mælikvarðanum 1 á móti 250.000, sem spanna allt landið, en núna breyttum við mikið til og erum með þrjú kort, en látum þau jafn- framt skarast mikið, þannig að ferðamannasvæðin komi saman á korti,“ segir Vigdís og kveður þetta mikla hagræðingu fyrir ferðafólk.“ „Fyrsta kortið kom út í fyrra og heitir Vestfirðir og Norður- land. Inni á því korti er Snæ- fellsnesið, Vestfirðirnir allir og svæðið aust- ur fyrir Akureyri. Kort númer tvö kom út í apríl og þar tök- um við svæðið frá Snæfellsnesi og aust- ur fyrir Skaftafell, og inni á þessu svæði eru allir möguleikar á dagsferðum frá Reykjavík. Lengst er hægt að komast austur í Skaftafell á einum degi, eða norður á Snæfellsnes.“ Kortin eru í þannig broti að þau séu þægileg og hentug í bílinn. „Í einu broti er til dæmis Reykjanesið, á annarri opnu Suð- urlandsundirlendið, þar sem með- al annars er að finna upplýsingar um „gullna hringinn“, á einni opnu er Fjallabaksleið syðri og í þeirri opnu eru Kaldidalur og Sprengisandur aðgreindir.“ Vigdís segir þriðja og síðasta kortið í vinnslu, en það er væntan- legt um miðjan júní. „Það tekur yfir allt Austurland og lendir inni á sama svæði og Húsavík, Mý- vatn, Dettifoss og Askja, og síðan er auðvitað allt Austurlandið. „Skurðurinn er eiginlega um Vaðlaheiði og niður úr,“ segir hún. Vigdís segir að kortin geymi allar upplýsingar sem séu ferða- manninum nauðsynlegar, meðal annars eru merktar inn vega- lengdir og auðvelt að sjá hvað ákveðnir vegbútar eru langir. Þá eru upplýsingar um allar bensín- stöðvar, hvort þær eru opnar árið um kring eða bara yfir sumartím- ann. Sömuleiðis er að finna ná- kvæmar upplýsingar um gisti- staði og tjaldsvæði. afþreyingu, sundlaugar og söfn. „VIð höfum reynt að mæta þörfum ferða- manna og höfum bætt við margs- konar upplýsingum, meðal annars um golfvelli. bátsferðir, hringsjár, áningarstaði Vegagerðirnar, frið- lýstar fornleifar og auðvitað upp- lýsingamiðstöðvar,“ segir Vigdís. „Kortið er á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, þýsku og frönsku, svo það ætti að nýtast flestum. „ Þá voru Landmælingar að gefa út nýtt heildarkort af landinu í hlutföllunum 1 á móti 500.000. „Þar er líka að finna allar upplýs- ingar, en þó ekki jafn ítarlegar og í minni kortunum,“ segir Vigdís. ■ Landmælingar íslands: Ný og betri kort MIÐNÆTURSTEMNING Í KELDUHVERFI Pálmi Gunnarsson á sér nokkra uppáhaldsstaði á Íslandi. Einn af þeim er í Kelduhverfinu þar sem Litlá mætir Jökulsá. Hér er Pálmi að veiðum í miðnætursólinni. Gljúfrin í Hofsá og Kelduhverfið ÞRJÚ NÝ ÍSLANDSKORT HAFA VERIÐ GEFIN ÚT Allar merkingar eru inni á kortunum, svo sem gististaðir, tjaldsvæði og bensínstöðvar. Uppáhalds staðurinn minn KRISTJANA KRISTJÁNSDÓTTIR Vill helst bera sínar byrðar sjálf og finnst frábært að gista í tjaldi á gönguferðunum. Göngugarpur í tíu ár: Hver staður fallegastur hverju sinni FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA BL AÐ IÐ /R Ó BE RT FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.