Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 38
Hin umdeilda hljómsveit DixieChicks hætti við tónleika um síð- ustu helgi sem uppselt var á eftir að aðalsöngkonan Natalie Maines fékk hálsbólgu. Hætt var við tónleikana aðeins fimmtán mínútum áður en þeir áttu að hefjast en þeim hefur verið frestað til 11. júní. Blúskóngurinn B.B. King ætlarað taka lög sem þekkt eru í flut- ningi Elvis Presley, Louis Arm- strong, Nat King Cole og Sam Cooke á nýrri plötu sem hefur fengið nafnið Refl- ections og kemur út þann 10. júní. King ætlar að taka lögin á sinn einstaka hátt og blúsa þau svolítið upp. Meðal laga eru „What A Wond- erful World“, „(I Love You) For Sentimental Reasons“, „Always On My Mind“, og „There I’ve Said It Again“. King ætlar einnig að taka lagið „On My Word of Honor“ sem hann tók upphaflega á sjötta ára- tugnum. Meðal gesta á plötunni verða Eric Clapton, Ray Charles og trompetleikarinn Wynton Marsalis. Leikarinn Adam Sandler, semfór með hlutverk Brúðkaups- söngvarans í samnefndri mynd, er að fara að ganga í það heilaga. Umboðsmaður leikarans staðfesti þetta í síðustu viku og sagði jafnframt að Sandler og heitkona hans, Jackie Tiotne, muni skipt- ast á hjú- skap- ar- heit- um í lok mán- aðar- ins. Poppdrottningin Madonna ætl-ar loks að senda frá sér hina margumtöluðu barnabók sem hún hefur verið að vinna að síð- ustu ár. Bókin, sem hefur fengið nafnið „The English Roses“, mun koma út í rúmlega 100 löndum, á meira en 42 tungumálum, þann 15. september. Bók- in mun koma út á stórum sem litlum löndum, þar með talið á Ís- landi og í Færeyjum 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR18 VIEW FROM THE TOP 4, 8 og 10 JOHNNY ENGLISH kl. 6, 8 HOW TO LOOSE ... kl. 5.45, 8, 10.20 BULLETPROOF MONK kl. 10.10 Sýnd kl. 8 og 10.20 b.i. 16 ára Sýnd kl. 7, 8, og 10 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓITHE QUIET AMERICAN Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. 4 og 6 kl. 10.05 bi 12SAMSARA kl. 6JOHNNY ENGLISH kl. 8 b.i. 14 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 VINNA Gott veður og skólaslit eru upphaf þess að ungmenni streyma út á vinnumarkaðinn. Alla langar í peninga og fáir nenna að liggja í leti heilt sumar fletjandi á sér aft- urendann. Heppilegt er því að á sumrin opnast ótal stöður í garð- yrkju og útivinnu, sem þessu unga fólki er úthlutað í miklum mæli. Stór hluti landsmanna vinnur ein- hvern tímann í vinnuskóla ríkisins (unglingavinnunni), bæjarvinn- unni í sínu sveitarfélagi, við við- hald á eignum Landsvirkjunar eða í Kirkjugörðum Reykjarvíkur. Fyrsti dagur vinnu hjá þessum stofnunum var á mánudag og nokkrar stúlkur í Kirkjugarðinum við Suðurgötu teknar tali af því til- efni í glampandi sólskini. Þær Karol Kvaran, Unnur Ólafsdóttir og Ragnhildur Sif Haf- steinsdóttir sögðust ánægðar með vinnuna og vinnuskilyrðin enda vinnustaðurinn sérlega fallegur. Vissulega væri rólegt andrúmsloft og beðum og legsteinum þyrfti að sýna virðingu. „Fólk spyr stundum hvort það sé ekki óþægilegt að eyða heilu sumrunum kringum dautt fólk, en það fær alls ekki á mig. Þú finnur ekki skjólbetri, grónari og fallegri stað í Reykja- vík,“ segir Karol, sem hefur unnið í kirkjugörðunum í þrjú ár. Karol, Unnur og Ragnhildur Sif hafa allar reynslu af garðyrkju- störfum í ýmsum myndum og kannast ekki við það að þar þurfi ekki að vinna af alvöru, ólíkt blaða- manni sem minnist unglingavinn- unnar sem sólbaða og vatnsslaga. Vinnan felst í arfatínslu og al- mennri umhirðu sem þær segja fínt, en ekkert sérlega spennandi. Launin eru ekkert til að hrópa húrra fyrir að þeirra mati, en þó er eins konar punktakerfi í notkun þar sem hægt er að vinna sér inn aukinn pening með framúrskar- andi elju og mætingu. Þær sögðust hlakka til sumarsins og geta ómögulega ímyndað sér að vera iðjulausar þrjá mánuði, þó þær bölvi vinnunni einn og einn mánu- dagsmorgun. david@frettabladid.is Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára Sýnd í lúxus kl. 3.40, 5.50 og 10.10 kl. 5,45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A... XMEN 5 og 8 bi 12 SKÓGARLÍF 2 kl. 4 Fréttiraf fólki Fyrirtaks vinnu- staður og fallegur ÁNÆGÐAR MEÐ VINNUNA Unnur Ólafsdóttir, Karol Kvaran og Ragnhildur Sif Haf- steinsdóttir tóku sér tíma í matarhléi til að svara nokkrum spurningum. Vinna hjá flestum þeim unglingum sem vinna við garðviðhald, slátt, gróður- setningu og slíkt í sumar hófst í byrjun vikunnar. Blaðamaður Fréttablaðsins tók af því tilefni á tal þrjár stúlkur sem vinna hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Gifssteinar fyrir milliveggi og aðra breytingarvinnu. www.gifsverk.is Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Tilboð Víniljakkar Frá 2.900 kr Reneé Zellweger sleppti öllumveislum og strunsaði heim í fýlu eftir Óskarsverðlaunahátíðina í mars. Nóttin fór ekki eins og hún hafði vonast eftir þar sem Nicole Kidman varð hlutskörpust sem besta leikkon- an. Zellweger fór heim í fússi en komst þá að því að hún hafði læst sig úti. Náinn vinur hennar var þó nær- staddur og klifraði inn um opinn glugga og hleypti hinni fýldu leikkonu inn. „Eftir allt ves- enið ákvað ég að sleppa öllum veislum,“ sagði Zellweger við blaðamenn og virtist vera búin að jafna sig á ósköpunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.