Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 18
Á Seyðisfirði verður opnað nýtt hótel um miðjan júní, hið svo- kallaða „húsahótel“. Hótelið heitir Hótel Alda og er í tveim húsum. Gistiálman er í húsi sem byggt var fyrir 105 árum, þá sem hótel, en þjónaði lengst af sem banki. Nú hefur húsið gengið í gegnum end- urnýjun lífdaga og skartar 9 rúm- góðum herbergjum. Annað sem er athyglisvert og tengist hinni einstöku gömlu byggð á Seyðisfirði er að elsta vél- smiðja á Íslandi verður opnuð til sýnis fyrir almenning í júní, en elsta riðstraums- og bæjarveita landsins er einnig á Seyðisfirði, reist 1913, og verður því 90 ára á þessu ári. Virkjunin er í eigu Rarik sem hyggst halda upp á þessi merku tímamót í ágúst. Virkjunin er því sem næst í upp- runalegri mynd, enn starfhæf og er hægt að skoða stöðvarhúsið ef óskað er. Ný Norræna Í kjölfar komu nýju Norrænu er verið að vinna að ýmsum end- urbótum í bænum, opnuð verður upplýsingamiðstöð í nýju ferju- húsi sem jafnframt mun þjóna sem umferðarmiðstöð fyrir ferðamenn. Þar verður aðstaða öll hin besta. Náttúruperlur eru um allan fjörð og má þar sér- staklega benda á Skálanes, sem er syðsta bújörðin í Seyðisfirði. Þar er fuglalíf afar fjölskrúðugt og náttúrufegurð einstök. Hægt er að gista í gamla bænum, en þar er hvorki rafmagn né hiti. Gönguleiðin þangað er stikuð og boðið er upp á leiðsögn um svæðið. Kajaksiglingar Hlyns hafa ný- verið fest kaup á fjallahjólum sem leigð verða áhugasömum og Hlyn- ur er tilbúinn að fylgja fólki um fjörðinn hvort heldur er á hjóli eða kajak. Einnig er hægt að fá búnaðinn leigðan. Fjörðurinn er oftast lygn svo kajakferð er frá- bær afþreying, og að hjóla út með firði er bara skemmtilegt. Skessukatlar einstakir Gönguklúbbur Seyðisfjarðar setti upp göngubrú yfir Fjarðará nýverið sem opnar skemmtilega gönguleið og sýn að einstöku nátt- úrufyrirbrigði sem kallast skessukatlar og eru einstakir í sinni röð. Einnig er vegurinn um Fjarðarheiði meðfram Fjarðará einn fallegasti þjóðvegarspottinn á landinu. Hann liggur í rúmlega 600 m hæð yfir sjávarmáli með- fram Fjarðará með sína fallegu fossa, um 30 talsins, hvern öðrum fallegri. Gönguklúbburinn áform- ar að stika fleiri leiðir í sumar. Á Seyðisfirði eru veitingahús, netkaffi, gististaðir, sundlaug, sauna og heitir pottar og ýmsar verslanir. ■ 4. júní 20034 Ferðalög innanlands Þegar ferðin er skipulögð: Góð vefsíða fyrir ferðamenn Á www.nat.is er hægt að komast inn á upplýsinga- og þjónustuvef sem hefur verið í loftinu í fimm ár. Vefnum er stöðugt að vaxa fiskur um hrygg og er o r ð i n n stærsti og efnismest i upplýsingavefur landsins með tæplega 2000 heimsóknir á dag. Vefurinn nær til alls landsins, ólíkt ótal vefsetrum hinna dreifðu byggða, fyrirtækja og einstaklinga. Hann gerir fólki kleift að und- irbúa ferðir sínar á einum stað og í vaxandi mæli með netvæddu bókunarkerfi, hinu eina á landinu fyrir grasrótina, þar sem hægt er að bóka ódýra þjónustu, líkt og hjá flugfélögum hér og erlendis. ■ Stórborgarstúlkan MyriamDalsten lagði upp í langferðfrá Berlín árið 1996 ásamt kærastanum sínum og var ferð- inni heitið til Kanda. Þau byrjuðu á að fara til Englands og síðan til Færeyja þaðan sem leiðin lá til Ís- lands fyrir hálfgerða tilviljun. „Við slógumst í för með Finna sem ætlaði að finna þorp á Íslandi sem hefði 1.500 íbúa eða fleiri, og setjast þar að,“ segir Myriam hlæjandi. „Við ílentumst svo á Ís- landi, vorum í vinnu hjá bændum víða um land og líkaði vel.“ Myriam og kærastinn hennar héldu svo aftur af landi brott og unnu um tíma í Þýskalandi og Sviss. „En Ísland kallaði,“ segir Myriam. „Árið 1998 kom ég til að setjast hér að. Við keyptum bæinn Skeið í Svarfaðardal og ákváðum að breyta honum í gisti- hús. Maðurinn minn þoldi hins vegar ekki veturna á Íslandi og fór til baka til Þýskalands. Við erum samt enn mjög góðir vin- ir.“ Myriam finnst yndis- legt í Svarfaðardalnum og saknar ekki stórborgar- innar. „Náttúran er svo stórkostleg og þó ég sé auðvitað alin upp í stór- borg, og finnist reyndar mjög gaman í stórborg- um, vil ég ekki búa þar.“ Hvergi skjól fyrir mengun í Þýskalandi Myriam segir sannarlega mik- ið af fallegum stöðum í Þýska- landi. „Það er bara svo mikil mengun. Maður getur hvergi ver- ið í Þýskalandi og sloppið við há- vaða frá umferðinni. Það sem ferðamenn hér á Skeið eru að upp- lifa eftir að hafa sofið hér eina nótt er þessi mikla kyrrð. Fólk heyrir ekkert nema niðinn frá ánni og fuglasöng. Þessi friður finnst því alveg dásamlegur.“ Myriam er skapandi einstak- lingur og þar sem hún getur ekki lifað af gistiheimilinu tekur hún að sér að passa bæi fyrir bændur í sveitinni þegar þeir þurfa að bregða sér af bæ. „Ég er líka í söngnámi á Akureyri og er að láta til mín taka í pólitíkinni á Dalvík,“ segir hún hlæjandi. „Þar er ég í Framfarafélaginu, við erum til dæmis mjög virk í að byggja upp samvinnu í ferðaþjónustunni.“ Þá er Myriam líka í íslenskunámi í Alþjóðastofunni á Akureyri. Gistihúsið Skeið er í 18 kíló- metra fjarlægð frá Dalvík og er opið allt árið. ■ MYRIAM Ílentist á Íslandi og rekur nú gistiheimili í friðsældinni fyrir norðan. BÆRINN SKEIÐ Stendur á rólegum stað í botni Svarfaðardals vestanverðum. Skeið er fyrst nefnt á 11. öld í sögu landsins. Í botni dalsins eru tveir jöklar, en þaðan renna tvær ár, sem eru upptök Svarfaðardalsár. FRÁ SEYÐISFIRÐI Gríðarleg náttúrufegurð er á Seyðisfirði og margt að sjá og skoða í nánasta umhverfi. Seyðisfjörður: „Nýtt“ 105 ára hótel Frá Berlín í Svarfaðardalinn Tók ástfóstri við landið Í Dalvíkurbyggð er fjölbreyttafþreying auk einstakrar nátt-úrufegurðar. Gönguleiðir eru víða og þar geta allir fundið leið við hæfi. Tröllaskaginn er paradís göngufólks og byggðasafnið Hvoll á Dalvík mjög skemmtilegt safn, en þar er meðal annars að finna muni Jóhanns Svarfdælings og fjölda merkilegra hluta fyrri tíma. Fyrir þá sem vilja slappa af eða styrkja kroppinn í fríinu er Sund- laug Dalvíkur góður kostur, þar er fín sundlaug með góðum heitum potti, gufubaði og ljósabekk. Vatnsrennibraut heldur þeim sem vilja meira fjör við efnið, meðan aðrir geta tekið á í nýjum tækjum í heilsuræktinni. Fyrir veiðimenn er Svarfaðar- dalsá falleg og skemmtileg sil- ungsá þar sem alltaf er von á góð- um fiski. En þeir sem vilja stærri fisk geta skroppið á sjóstöng frá Hauganesi með eikarbátnum Níelsi Jónsyni. Fjölbreyttar hestaferðir við allra hæfi eru frá Hringsholti, stærsta hesthúsi landsins. Byggðasafnið 1. júní-31. september Byggða- safnið Hvoll. Opið frá klukkan 11- 18 alla daga vikunnar og einnig um helgar. 2.-17.júní Kveðið á safninu. Þórarinn Hjartarson kveður rím- ur. Kaffi og kleinur. 3.-13.júlí. Hinn alþjóðlegi safnadagur. Spónasmiður sýnir aðferðir við spónagerð. Kaffi og kleinur. 4.-9. ágúst. Fiskidagurinn mikli. Handverksfólk tálgar og skapar úr fiskibeini. Kaffihúsið Sogn. Fiskidagurinn mikli 9. ágúst, öllum boðið í mat. Einstök fjöl- skylduhátíð sem engin ætti að missa af. ■ Svarfaðardalur: Tröllaskaginn er paradís FRÁ HÖFNINNI Á DALVÍK Vinalegur bær skammt frá Svarfaðardal.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.