Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 4
4 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR Ætlarðu á landsleik Íslands og Færeyja á laugardag? Spurning dagsins í dag: Hver er framtíð varnarliðsins? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 38,9% 46,3% Nei 14,8%Veit ekki Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is HEILBRIGÐISMÁL Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – Háskóla- sjúkrahúss, segist ekki vilja leggja mat á hvernig tekist hafi til með sameiningu Borgarspítala og Landspítala í ársbyrjun 2000. Magnús stakk upp á því við stjórnarnefnd Landspítala – Há- skólasjúkrahúss í ágúst í fyrra að biðja Ríkisendurskoðun um að meta árangur af samruna spítal- anna. „Það var óhjákvæmilegt að gera breytingu á rekstrinum eins og hann var fyrir árið 2000. Hvort vel eða illa hafi tekist til ætla ég ekki að dæma um,“ segir Magnús. Að sögn Magnúsar þarf Ríkis- endurskoðun meðal annars að skoða hvort markmið sameining- arinnar hafi náðst. „Það var ætlast til að sérgrein- ar sem voru smáar fyrir myndu styrkjast. Í annan stað var talið að betri nýting fengist í þeirri miklu fjárfestingu sem liggur í búnaði, tækjum og húsnæði. Í þriðja lagi væntu menn þess að tilkostnaður við spítalana myndi annað hvort lækka eða að minnsta kosti draga úr þeim mikla vexti sem hafði verið í útgjöldunum. Fjórða málið var að margir væntu þess að held- ur meiri friður myndi færast yfir starfsemina en var á árunum 1994 til 1999,“ segir Magnús. ■ LANDSPÍTALI „Það var óhjákvæmilegt að gera breytingu á rekstrinum eins og hann var fyrir árið 2000. Hvort vel eða illa hafi tekist til ætla ég ekki að dæma um,“ segir Magnús Pét- ursson, forstjóri Landspítala – Háskóla- sjúkrahúss. Forstjóri Landspítala – Háskólasjúkrahúss: Dæmir ekki um spítalasamruna Vísindamenn þróa nýtt lím: Lói má vara sig VÍSINDI Vísindamenn við háskólann í Manchester á Englandi segjast hafa afhjúpað leyndardóminn á bak við sérstæða hæfileika eins mesta klif- urdýrs heimsins; gekkóa. Þeim hef- ur tekist að útbúa klístrað lím sem svipar mjög til þess gífurlega grips sem klifurdýrið býr yfir. Telja vís- indamennirnir að ekki líði á löngu þar til sérstakir köngulóarmanns- hanskar verði settir á markað. Auk þess að nýta uppfinninguna til að klífa veggi gæti hún einnig komið mannfólkinu að notum við þróun tölvukubba og í læknavísindum. ■ BLÓÐPRUFA Málshöfðendur halda því fram að þeir hafi smitast af alnæmi og lifrarbólgu C vegna kæruleysislegra vinnubragða lyfjafyrirtækja. HIV-smitaðir blæðarar: Lyfjafyrir- tæki saksótt SAN FRANSISCO, AP Þúsundir blæð- ara hafa tekið sig saman og höfð- að mál á hendur fjölda lyfjafyrir- tækja á þeim forsendum að þau hafi unnið lyf úr blóði sem sýkt var af HIV-veirunni eða lifra- bólgu C. Sækjendurnir halda því fram að fyrirtækin hafi á fyrri hluta 9.áratugarins vísvitandi selt blóð- storknunarlyf unnin úr blóði smit- aðra einstaklinga. Á þessum tíma var ekki byrjað að framkvæma al- næmispróf en blæðararnir halda því fram að lyfjafyrirtækin hefðu getað beitt öðrum aðferðum til þess að draga úr smithættunni. Þúsundir blæðara hafa látist af völdum alnæmis. ■ Þýska óeirðalögreglan: Slökkti í alelda bíl SVISS, AP Þýskir lögreglumenn sem voru á leið heim frá Sviss með há- þrýstislöngur í fórum sínum komu svissneskum ökumanni til bjargar þegar eldur blossaði upp í bifreið á hraðbraut skammt norð- ur af Genf. Lögreglumennirnir höfðu ver- ið sendir til Sviss í tilefni af fundi átta helstu iðnríkja heims til að aðstoða þarlenda kollega sína við að hafa hemil á mótmælendum. Háþrýstislöngunum, sem þeir notuðu til að slökkva eldinn í bif- reið Svisslendingsins, hafði verið beitt gegn mótmælendum í Genf síðastliðinn mánudag. ■ KARLAR L U J T Mörk Stig Fylkir 4 3 0 1 8:2 9 KA 4 2 1 1 7:5 7 KR 4 2 1 1 4:5 7 Þróttur 4 2 0 2 6:6 6 Valur 4 2 0 2 6:7 6 ÍBV 4 2 0 2 6:7 6 FH 4 1 2 1 5:4 5 ÍA 4 1 2 1 4:3 5 Grindavík 4 1 0 3 4:8 3 Fram 4 0 2 2 4:7 2 Fram - ÍA 0:0 Grindavík - ÍBV 0:2 KA - KR 3:0 KÖNNUNARFAR Könnunarfarið Beagle 2 mun ferðast eftir yfirborði Mars og leita að ummerkj- um um líf. Ómannað geimfar til Mars: Leitað að lífsmarki MOSKVA, AP Ómönnuðu geimfari sem var smíðað af Evrópsku geim- ferðastofnuninni var skotið á loft í Kasakstan í fyrradag. Geimfarinu er ætlað að kortleggja plánetuna Mars með því að sveima umhverf- is hana. Þann 25. desember verður breska könnunartækinu Beagle 2 síðan varpað til jarðar úr geimfar- inu. Tækið mun ferðast til Isidis Planitia þar sem leitað verður að ummerkjum um líf. ■ SPRENGJUHÓTUN OLLI SKELF- INGU Bandarískur karlmaður sem var orðinn of seinn í flug til Phoenix í gær hringdi á flugvöll- inn og sagði að sprengja væri í vélinni. Atvikið, sem átti sér stað í Oregon, vakti mikla skelfingu áhafnarmeðlima. Ekki fylgir sög- unni hvaða refsingu hrekkjalóm- urinn á yfir höfði sér. ■ Bandaríkin ■ Tölvur AP /M YN D EGYPTALAND, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði á fundi með leiðtogum arabaríkja í Eg- yptalandi í gær að ekki mætti leyfa „nokkrum morðingjum og hryðjuverkamönnum“ að koma í veg fyrir friðarsamning á milli Ísraela og Palestínumanna. „Heimurinn þarf á frjálsu og friðsömu palestínsku ríki að halda og þess vegna mun Bandaríkja- stjórn starfa með öllum aðilum sem málið varða til að ná því markmiði,“ sagði Bush á fundin- um. Leiðtogar frá Egyptalandi, Jórdaníu, Barein, Sádi-Arabíu og Palestínu voru viðstaddir fund- inn. Þeir hétu því að berjast gegn hryðjuverkum og ofbeldi í heim- inum. Hvöttu þeir jafnframt Ísra- ela til að sýna að þeir séu trausts- ins verðir með því að sýna vilja til að koma á eðlilegu lífi í Palestínu á ný. Bush kom til Egyptalands eftir að hafa dvalið í Evian í Frakklandi á fundi átta helstu iðnríkja heims. Forsetinn ferðast til Jórdaníu í dag þar sem hann mun ræða við Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og og Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínu, um frið fyrir botni Miðjarðarhafs. ■ Bush fundar með leiðtogum arabaríkja: Morðingjar mega ekki koma í veg fyrir frið VIÐ SAMNINGABORÐIÐ George W. Bush situr við samn- ingaborðið í Egyptalandi. Hann mun funda í Jórdaníu í dag með forsætisráðherrum Ísraels og Palestínu. AP /M YN D VEIKINDI „Ég hef það bara fínt, er öll að skána,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir, ungfrú Ísland 2002, sem er stödd í Panama þar sem keppnin Ungfrú alheimur var haldin í gærkvöldi. Ekkert varð af þátttöku Manúelu, sem varð að hætta keppni vegna veikinda og lá á sjúkrahúsi í þrjá sólarhringa. Manúela Ósk er komin á fætur og laus af sjúkrahúsinu. Hún seg- ir heilsuna koma til baka hægt og rólega, enda sé hún búin að sofa mikið og hvílast. Andlega líður henni alls ekki vel. Hún segir þetta mjög erfitt og kveðst bæði svekkt og sár. Keppnin hefur vakið mikla at- hygli í Panama, er á allra vörum og ummerki um hana úti um allt. Manúela segir sárt að fylgjast með keppninni úr fjarlægð og geta ekki tekið þátt. „Vinir mínir úti um allan heim ætluðu að fylgj- ast með keppninni. Mér finnst eins og ég sé að bregðast fólki.“ „Ég hef fórnað miklu fyrir að vera hérna,“ segir Manúela. „Ég átti að vera að taka stúdentspróf og væri væntanlega búin ef ég hefði ekki farið. Ég ákvað að fara og svo gerist þetta. Mér finnst eins og ég hafi komið hingað til einskis.“ Hún segir þetta þó að mestu hafa verið skemmtilega reynslu og mjög gaman. Landið sé fínt. Aðalatriðið hafi þó verið að fara til að keppa. Þegar blaðamaður ræddi við Manúelu í gær sagðist hún eiga miða á keppnina um kvöldið og hafði hug á því að fara á hana. Hún sagðist ekki vera alveg út- undan þar sem hún fengi að fara baksviðs til stúlknanna sem taka þátt. „Ég ætla að reyna að gera gott úr þessu,“ sagði Manúela. Manúela sagðist hafa sína skoðun á því hverjar væru sigur- stranglegastar þó hún gæfi það ekki upp. Hún segist hafa myndað sér þessa skoðun áður en hún varð sjálf að hætta keppni. „Sumar stelpurnar eru ofsalega fallegar og tignarlegar en eru ekki með persónuleikann í lagi. Ég vona að sú sem vinnur keppnina hafi innri fegurð.“ hrs@frettabladid.is MANÚELA ÓSK HARÐARDÓTTIR Manúela leggur af stað heim frá Panama í dag. Svekkt og sár Manúela Ósk Harðardóttir fegurðardrottning hefur náð sér að mestu eftir veikindi sem urðu til þess að hún varð að hætta keppni í Ungfrú alheimi. Hún hefur fórnað miklu og seinkaði meðal annars stúdentsprófinu um ár. „Ég átti að vera að taka stúdentspróf og væri vænt- anlega búin ef ég hefði ekki farið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M BILL GATES Í TÖLVUVÍRUS Tölvu- sérfræðingar hafa varað við nýj- um tölvuvírus þar sem nafn Bill Gates, forstjóra Microsoft, kem- ur fyrir. Vírusinn, sem hefur náð töluverðri útbreiðslu, birtist oft á tíðum í formi tölvupósts frá Gates sjálfum. Þetta er í annað sinn á örfáum vikum sem tölvu- þrjótar dulbúa vírusa sína sem póst frá Microsoft. Lögreglan í Keflavík: Bann við yfirvinnu LÖGGÆSLA Færri lögreglumenn verða á vakt hjá Lögreglunni í Keflavík um helgar og á kvöldin heldur en vant hefur verið. Ástæðan er yfirvinnubann sem tók gildi í gær. Meðan yfirvinnubannið er í gildi verða fimm lögreglumenn á vakt um helgar en þeir hafa verið sjö hingað til. Tveir lögreglubílar verða til taks til að sinna útköllum í umdæmi Lögreglunnar í Kefla- vík. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.