Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 8
8 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Asía
Svona eftir á að hyggja
Það var náttúrlega forheimska
að mæta á flugvöllinn með stór-
an veiðiriffil og skot í töskunni.
Flosi Arnórsson, sem upp frá því hefur mátt
dúsa í steininum í Dubai. DV, 3. júní.
Beiskur sannleikur
Við munum aldrei verða
heimsklassaþjóð í knattspyrnu,
en við getum á frábærum degi
strítt stóru þjóðunum.
Ásgeir Sigurvinsson
landsliðsþjálfari. DV, 3. júní.
Það mælti mín móðir
Mér finnst Íslendingar eiga rétt
á því að geta þá keypt far með
þessum skipum, séu lausir klef-
ar.
Kristinn Sigurðsson um aðgengi
Íslendinga að skemmtiferðaskipum. DV, 3. júní.
Orðrétt
HEILBRIGÐISMÁL Þunglyndar konur
segjast verða fyrir kuldalegu og
niðurlægjandi viðmóti heilbrigð-
isstétta. Gjöf á þunglyndis-, ró-
andi og svefnlyfjum sé óhófleg.
Ofangreint er niðurstaða rann-
sóknar á konum á aldrinum 39 til
68 ára sem hafa fengið meðferð
við þunglyndi. Rannsóknin er
hluti meistararitgerðar sem Berg-
þóra Reynisdóttir geðhjúkrunar-
fræðingur ver á morgun.
Bergþóra segir konurnar telja
að fagfólk hafi ekki gefið sér tíma
til að hlusta á það sem konurnar
höfðu sjálfar að segja um eigin
líðan: „Enda fannst fagfólkinu það
vita betur um líðan og þarfir
kvennanna.“ Konurnar skömmuð-
ust sín fyrir tilfinningalegt ójafn-
vægi og úrræðaleysi sem því
fylgdi og tengdu það við eigin for-
dóma.
„Niðurstöður rannsóknar
benda til að grundvallarþáttum í
samskiptum heilbrigðisfagstétta
við konur sé ekki nægjanlega
sinnt og að fordóma gæti í garð
kvenna, þar sem tilhneiging sé til
að sjúkdómsgera líkamlega og til-
finningalega vanlíðan þeirra,“
segir Bergþóra. ■
RANNSÓKN „Mig óar við tilhugsun-
inni að fjölskyldan upplifi annan
vetur óvissu og vonbrigða. Við
verðum að fara að fá niðurstöðu
í málið,“ segir Ólafur Hjálmars-
son, föðurbróðir Hjálmars
Björnssonar, sem
fannst látinn við
árbakka í Rotter-
dam í Hollandi
fyrir um ári síðan
eftir að hafa verið
týndur í tvo daga.
Eftir að hol-
lenskum réttarlæknum hafði
ekki tekist að kveða upp úr um
dánarorsök Hjálmars með
óyggjandi hætti var tekin sú
ákvörðun að réttarkrufning færi
fram hér á landi. Þrátt fyrir
ábendingar föður Hjálmars, sem
er barnalæknir, var látið hjá líða
að gera rannsóknir sem skýrt
gætu dánarorsök.
Eftir ellefu mánaða undirbún-
ingsvinnu fór réttarlæknirinn,
Þóra Stephensen, til Hollands nú
um mánaðamótin. Tilgangurinn
var að komast í lífsýni Hjálmars
og taka með til Íslands. Þegar til
kom fékk Þóra ekki aðgang að
sýnunum. Hollenski saksóknar-
inn gerði þá kröfu að fá formlegt
erindi um nauðsyn þess að sýnin
yrðu látin í té. Þá vildi hann fá að
vita um tilganginn og eins svör
við því hvaða áhrif það myndi
hafa yrðu sýnin ekki látin af
hendi. „Þessi niðurstaða er
óskiljanleg og verulegt áfall fyr-
ir fjölskylduna. Óvissan um dán-
arorsök Hjálmars hefur reynst
okkur afar þungbær og nú virð-
ast allar dyr lokaðar,“ segir
Ólafur.
Ólafur telur að í ljósi niður-
stöðunnar sé tímabært að ríkis-
saksóknari beiti sér í að koma á
gagnkvæmri lögreglusamvinnu
milli landanna. Sú samvinna hafi
ekki komist á þrátt fyrir ítrekuð
erindi embættis ríkislögreglu-
stjóra og dómsmálaráðuneytis-
ins.
„Það er löngu fullreynt að
saksóknarinn í Rotterdam skýt-
ur sér stöðugt undan erindum
frá embætti ríkislögreglustjóra.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fjölskyldunnar að ná fundi með
ríkissaksóknara hefur það enn
ekki tekist. Það er ljóst á þessu
stigi málsins að það mun ekkert
gerast fyrr en hann gengur í
málið,“ segir Ólafur.
kolbrun@frettabladid.is
DÓMSMÁL Flosi Arnórsson, sjó-
maðurinn í Dubai, losnaði úr
gæsluvaðhaldi um helgina. Upp-
haflega var hann sakaður um
neyslu áfengis og ólöglegan
vopnaburð. Það tók fjörutíu daga
að hreinsa hann af ásökunum um
neyslu áfengis. Þó sýndi prufa
að ekkert áfengi var í blóði hans.
Þrátt fyrir að Flosa hafi verið
sleppt úr gæsluvarðhaldi er
hann þó í farbanni og þarf að
bíða eftir niðurstöðum vegna
ásakana um ólöglegan vopna-
burð. Pétur Ásgeirsson hjá utan-
ríkisráðuneytinu segir að
ómögulegt sé að segja hvenær
það mál verði tekið fyrir. Það
hafi tekið fjörutíu daga að losa
hann undan kæru um neyslu
áfengis sem hann var saklaus af.
Pétur segir að þetta sé ekki í
fyrsta skipi sem erfitt sé að eiga
við erlend yfirvöld í svona mál-
um. Jafnframt segir hann að
ekki sé til samningur um slík
mál á milli Sameinuðu arabísku
furstadæmanna og Íslands. ■
HJÁLMAR BJÖRNSSON
Mál Hjálmars Björnssonar hefur vakið mikla athygli bæði hér og í Hollandi. Hollenska
sjónvarpið sýndi í maí þátt sem gerður var um mál Hjálmars. Þar voru ferðir hans raktar.
Athygli vakti að félagar Hjálmars vildu ekki ræða við sjónvarpsmenn um málið.
Erindum er stungið undan
Íslenskur réttarlæknir fékk ekki aðgang að lífsýnum Hjálmars Björnssonar, sem fannst látinn
við árbakka í Rotterdam fyrir um ári síðan. Fjölskylda Hjálmars er vonsvikin yfir
aðgerðaleysi ríkissaksóknara.
■
„Þessi niður-
staða er óskilj-
anleg og veru-
legt áfall fyrir
fjölskylduna.“
ÓVÍST HVENÆR SJÓMAÐURINN KEMST HEIM
Ekki er til samningur um svona mál á milli Íslands og Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna.
Sjómaðurinn í Dubai:
Er í farbanni
HRYÐJUVERKAMENN ÁKÆRÐIR
Saksóknarar í Indónesíu hafa
ákært níu menn til viðbótar fyrir
beina eða óbeina aðild að
sprengjuárásunum í Bali í októ-
ber á síðasta ári. Mennirnir eiga
yfir höfði sér allt frá tólf ára og
upp í lífstíðarfangelsi. Á meðal
hinna ákærður er Ali Gufron,
einn af leiðtogum hryðjuverka-
samtakanna Jemaah Islamiyah.
1.165 LÁTNIR Í HITABYLGJU Að
minnsta kosti 1.165 manns hafa
látist af völdum sólstings og
vökvaskorts á Indlandi á undan-
förnum þremur vikum. Í suður-
héruðum landsins hefur hitastig-
ið verið á bilinu 45 til 49 gráður.
Veðurfræðingar eiga von á því að
rigningatímabilið hefjist næstu
helgi.
RÚTU EKIÐ OFAN Í SKURÐ Ellefu
manns fórust og 30 slösuðust
þegar rúta fór út af vegi og lenti
ofan í áveituskurði í norðurhluta
Bangladesh. Fjórir hinna látnu
tilheyrðu sömu fjölskyldunni. Um
5.000 manns látast í umferðar-
slysum í Bangladesh á ári hverju,
sem er með því mesta sem gerist
í heiminum.
Brutust inn í geymslur:
Fimm menn
handteknir
LÖGREGLUMÁL Fimm menn um tví-
tugt voru handteknir í fyrrinótt
grunaðir um að hafa brotist inn í
geymslur í fjölbýlishúsi í Breið-
holti. Lögreglunni barst tilkynn-
ing um grunsamlegar manna-
ferðir í húsinu klukkan hálf-
fjögur. Þegar lögreglan kom að
húsinu stóðu fimmenningarnir
við húsið. Höfðu þeir hjá sér ætl-
að þýfi en um var að ræða sjón-
varp, myndbandstæki og verk-
færi.
Mennirnir voru færðir í
fangaeymslur og yfirheyrðir í
gær. ■
BERGÞÓRA REYNISDÓTTIR
Segir konur telja að fagfólk gefi sér
ekki tíma til að hlusta á þær.
Þunglyndar konur óánægðar með heilbrigðisþjónustu:
Niðurlæging og óhófleg lyfjagjöf
Dæmi um verð: Áður Nú
Peysa m/v-háls 6.900 3.900
Hlýrabolur 2.400 1.400
Toppur m/mynstri 3.000 1.800
Bómullarpeysa m/rennilás 5.700 2.900
Samkvæmisbolur 5.300 2.900
Bolur 2.600 1.600
Gallajakki 5.100 2.900
Velúrjakki 6.300 3.800
Pils 2.600 1.600
Samkvæmispils 6.900 3.900
Buxur 5.700 2.900
Sumarkjóll 4.900 2.900
ÚTSALA - ÚTSALA
40-50% afsláttur
Hefst í dag
Síðumúla 13, 108 Reykjavík,
sími 568 2870
...og margt margt fleira
Opið frá kl. 10-18