Fréttablaðið - 04.06.2003, Side 11

Fréttablaðið - 04.06.2003, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2003 LÖGREGLUMÁL „Lokunin á sér tals- verðan aðdraganda. Við höfum skoðað hvernig við getum nýtt þann mannafla sem við höfum sem best,“ segir Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn um lokun miðbæjarstöð lög- reglunar í Reykjavík. Stöðin hef- ur verið lokuð almenningi að næt- urlagi tvær síðustu helgar. Er hún nýtt sem starfsstöð fyrir lög- reglumenn á vakt. Karl Steinar segir ásókn borg- ara til að hafa samband við lög- reglu í gegn um miðborgarstöðina nánast heyra sögunni til. „Í dag eru flestir með GSM-síma. Þeir hringja og bílarnir koma. Til þess að hafa miðbæjarstöðina opna þurfa að vera þar minnst tveir menn. Stjórnendur okkar í mið- bænum telja þess vegna menn nýtast betur í bílum úti við.“ ■ KARL STEINAR VALSSON Miðbæjarstöðin er í dag nýtt sem starfs- stöð lögreglu. Miðbæjarstöð lögreglunnar lokuð: Betri nýting mannafla VÍSINDI Spænskir vísindamenn við háskólann í Granada ætla að rann- saka hvort jarðneskar leifar sem hafa verið geymdar í dómkirkj- unni í Sevilla séu í raun og veru af landkönnuðinum Kristófer Kól- umbusi. Deilur hafa verið uppi á milli yfirvalda í Sevilla og Santo Dom- ingo, höfuðborgar Dóminíska lýð- veldisins, um hvar leifar Kól- umbusar séu niðurkomnar. Þegar Kristófer Kólumbus lést árið 1506 stóð til að jarðsetja hann í Norður-Ameríku samkvæmt vilja hans. Engin hentug kirkja fannst hins vegar þar og því var lík hans grafið í spænsku borginni Valladolid. Árið 1537 voru jarð- neskar leifar Kólumbusar grafnar upp og sendar til greftrunar í Santo Domingo, sem þá var undir spænskri stjórn. Skömmu síðar voru þær fluttar aftur til Spánar vegna ófremdarástands í Santo Domingo. Síðan gerðist það árið 1877 að kista með beinum fannst í dóm- kirkju í Santo Domingo með áletr- un Kólumbusar. Þau bein eru nú grafin við minnismerki Kól- umbusar í borginni. Telja yfirvöld þar í borg að Spánverjarnir hljóti að hafa tekið vitlaust lík á sínum tíma til greftrunar. Niðurstöðu í rannsókn spænsku vísindamannanna er að vænta eftir nokkra mánuði. ■ Spænskir vísindamenn: Rannsaka bein Kólumbusar BYRGIÐ „Mig langar til að biðja fólk að taka ekki hluti ófrjálsri hendi úr Rockville, í það minnsta ekki fyrr en starfsemin er endanlega flutt,“ segir Guðmundur Jónsson, for- stöðumaður Byrgisins. Eins og fram hefur komið átti Byrgið að skila af sér Rockville 1. júní síðast- liðinn. Guðmundur segir nokkurra daga töf á því vegna misskilnings hjá fjármálaráðuneytinu um fjölda þeirra sem gista eiga Vífilsstaði. Á meðan þurfi Byrgið að nýta áfram vistarverur Rockville. Byrgið fjárfesti á sínum tíma í öllu nýju í Rockville. Guðmundur segir greinilegt að margir sjái sér hag í því að keyra með kerrur og taka ófrjálsri hendi allt nýtilegt. Ellefu bílar hafi verið á ferð í fyrra- dag. Þá hafi ýmislegt þegar horfið; rafmagnstöflur, ofnar, ljós, blönd- unartæki, klósett, vaskar og margt fleira. ■ Ránsferðir í Rockville: Klósett og vaskar horfin BEIN KÓLUMBUSAR? Kista sem hefur hugsanlega að geyma bein Kristófers Kólumbusar flutt úr grafhýsi í dóm- kirkjunni í Sevilla. Vísindamenn ætla að bera beinin saman við DNA-próf úr afkomendum hans. Komist þeir að því að beinin séu ekki úr Kólumbusi ætla þeir að biðja um leyfi til að rannsaka önnur bein í Santo Domingo sem einnig eiga að vera úr landkönnuðinum. AP/M YN D

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.