Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2003
Hefurðu prófað nýju Happaþrennuna?
Happaþrennan inniheldur þrjá skemmtilega leiki.
Hæsti vinningur er 3 milljónir auk fjölda annarra vinninga.
Lumar þú á 150 kr. sem gætu fært þér vinning?
Eflum Háskóla Íslands í verki.
Happdrætti Háskóla Íslands
FORMÚLA 1 Það er skammt stórra
högga á milli í yfirlýsingum Mich-
ael Schumacher og félaga hans
hjá Ferrari keppnisliðinu í For-
múlu 1.
„Ég er ákaflega ánægður með
tíma minn í brautinni vegna þess
hve hún var hál og erfið,“ sagði
Schumacher í undanrásum fyrir
keppnina sjálfa. „Við eyddum
löngum tíma í dekkjaval og erum
sáttir við valið, nú er bara eftir að
hugleiða eldsneytisþörfina.“
Eftir keppnina var komið ann-
að hljóð í strokkinn. „Það var al-
veg sama hvað var reynt, ég náði
mér ekki upp á brautinni og ég
kenni hjólbörðunum um það.“ ■
SCHUMACHER
Ekki gengið sem skyldi undanfarið.
Ferrari-liðið svekkt eftir Mónakó:
Bridgestone að kenna
FRÁ ÞÓRSHÖFN
Landsleikurinn við Ísland er á allra vörum.
Færeyingar spenntir fyrir landsleikinn:
Sjaldan eins mikil
eftirvænting
KNATTSPYRNA „Íslendingar eru dá-
lítið eins og stóri bróðir, ólíkt því
sem gerist þegar við spilum við
Dani, þá eru þeir yfirleitt vondi
stjúppabbinn,“ sagði Jakub Mork,
íþróttafréttamaður á dagblaðinu
Sosíalurinn í Færeyjum.
„Fólk hér er orðið spennt fyrir
leiknum við Íslendinga því okkar
liði hefur gengið vel miðað við
styrkleika og auðvitað vonum við
að það haldi áfram. En nú vantar
nokkra sterka leikmenn og það á
auðvitað eftir að segja til sín.“
Jakub er þó sjálfur ekki mjög
bjartsýnn fyrir leikinn. „Það
verður að segjast eins og er að
stig gegn Íslendingum á þeirra
heimavelli er langsótt. Jafnvel þó
að okkar menn hafi spilað vel
gegn stórum þjóðum eins og
Þýskalandi þá er allt önnur
stemning að spila við Ísland og
ég held að langflestir geri sér
grein fyrir því. Við verðum
heppnir með jafntefli en ég per-
sónulega held að Ísland sigri með
einu marki.“ ■
BYRON SCOTT, ÞJÁLFARI NETS
Hann á erfitt verkefni fyrir höndum samkvæmt Guðjóni.
Úrslitakeppni NBA að hefjast:
San Antonio
Spurs sigrar
KÖRFUKNATTLEIKUR Í nótt hefst
fyrsti úrslitaleikurinn í banda-
ríska NBA-körfuboltanum á milli
San Antonio Spurs og New Jers-
ey Nets.
„Það er alveg klárt að einn
maður getur ekki dregið vagninn
í marga leiki,“ sagði Guðjón
Skúlason, stórskytta með Kefla-
vík í mörg ár, en hann lagði ein-
mitt skóna á hilluna í vor eftir 20
ára feril.
„Fyrir Nets veltur þetta á
Jason Kidd en það er mín reynsla
að einn maður hefur lítið að
segja marga leiki í röð, þetta er
erfið íþrótt og allt liðið þarf að
taka til hendi og þar er Spurs
með mikla yfirburði. Ég gæti
trúað að Nets vinni einn leik eða
tvo en breidd Spurs er það mikil
að þeir hafa efni á að hvíla
stjörnurnar af og til. Þarna spil-
ar líka inn í að leikmenn Nets
hafa hvílt sig undanfarna daga á
meðan Spurs átti við Dallas og ég
vil meina að hvíld sé ekki mjög
sniðug á svona tímum.
Ég er reyndar ákaflega slæm-
ur að giska á svona en ég er nokk-
uð viss um að San Antonio hefur
þetta af nokkuð örugglega.“ ■