Fréttablaðið - 04.06.2003, Page 20
4. júní 20036 Ferðalög innanlands
Ég ferðast um með fellihýsi,og verð auðvitað að eigaPalómínó-fellihýsi, sjálfur
Palómínókallinn,“ segir Örn Árna-
son leikari hlæjandi. „En svona
grínlaust þá er þetta ofsalega
þægilegur ferðamáti og ótrúleg
bylting sem hefur átt sér stað í
svona málum á síðustu árum. Ég
var kannski ekki ógurlega mikill
tjaldmaður á árum áður, en vissu-
lega fórum við nokkuð oft í tjald.
Og þegar ég var að byrja að
skemmta í Galtalæk á sínum tíma
þá var maður í tjaldi og bara kafn-
aði þar,“ segir leikarinn og hlær
dátt.
Örn segir fjölskylduna saman-
standa af fimm manns, en að oft-
ast séu þau fjögur á ferð, „sá elsti
að vinna í bænum og svona.“
Fjölskyldan leggur af stað
hvenær sem tími gefst. „Það er
allur gangur á því, ég er ekkert
endilega laus um helgar. Þegar
losnar um drífum við okkur af
stað.“
Hvammstangi kom á óvart
Örn og fjölskylda hafa ferðast
um landið þvert og endilangt, en
Örn kveðst ekki eiga neinn einn
uppáhaldsstað. „Við fundum
reyndar mjög skemmtilegan stað
í fyrra, sem var tjaldstæðið á
Hvammstanga. Það er svo
skemmtilega staðsett ofan við bæ-
inn rétt hjá kirkjunni á svæðinu.
Þarna er lækur sem liðast um og
mikið logn í lautinni. Þetta er ekki
nema sex kílómetra frá þjóðveg-
inum og fullkomlega þess virði að
taka á sig smá krók. Hvamms-
tangi er líka mjög smekklegur
bær.“
Aðspurður hvað fjölskyldan
geri svo í útilegunni, hlær Örn
enn. „Það fer náttúrlega gríðar-
legur tími í að éta,“ segir hann.
„En svo leitum við stundum uppi
afþreyingu eins og að skoða söfn
og reynum að fylgjast með hvað
er að gerast.á hverjum stað.“
Nú er samtalið truflað því
heimilishundurinn, sem Örn segir
að hafi nýuppgötvað varðhunda-
eðlið í sér, geltir hátt og snjallt að
fjölskylduvini sem rennir í hlað.
Þegar hundurinn hefur róast og
aftur heyrist mannsins mál upp-
lýsir Örn að hundurinn fari með í
öll ferðalög innanlands. „Honum
finnst það ægilega gaman,“ segir
Örn.
Ódýr ferðamáti
Hann segist hiklaust taka inn-
anlandsferðirnar með fellihýsið
fram yfir utanlandsferðir. „Þetta
er ódýr ferðamáti þegar maður er
loksins búinn eignast græjurnar,
og það er ekki dýrt að ferðast inn-
anlands. Ég var í París nýlega
með fjölskylduna og við fengum
okkur ómerkilega máltíð á frekar
ómerkilegum stað rétt hjá Eiffel-
turninum. Þetta gat kostað heilar
130 evrur, eða um það bil tólf þús-
und íslenskar, sem var bara rán
um hábjartan daginn. Ég hefði
getað grillað ofan í allt liðið fyrr
1.500 kall.“
En er kominn ferðafiðringur í
Örn?
Já,“ segir hann. „Þegar veðrið
er svona gott langar mann af stað.
Veðrið spilar alltaf inn í, við látum
til dæmis ekki rigningu stoppa
okkur, miklu frekar kulda. En jú,
jú, það fer að koma tími á fyrstu
ferð,“ segir Örn. ■
Gásir við Eyjafjörð eru ein-stakur staður, 11 km norð-an við Akureyri. Hvergi á
Íslandi eru varðveittar jafn mikl-
ar mannvistarleifar frá verslun-
arstað frá miðöldum. Gásir voru
helsti verslunarstaður á Norður-
landi á miðöldum og er staðarins
víða getið í fornritum frá 13. og
14. öld. Fornleifarannsóknir síð-
ustu tvö ár gefa til kynna umsvif
á staðnum mun lengur en talið
hefur verið áður. Jafnvel er nú
talið hugsanlegt að verslun á
Gásum hafi staðið allt þar til
kaupmenn hófu að versla á Akur-
eyri um 1550. Ljóst er að útflutn-
ingur á brennisteini frá Gásum
hefur verið töluverður og taldar
eru líkur á að handverk og sala
hafi verið stundað á verslunar-
staðnum. Enn hafa ekki fundist
mannvistarleifar eldri en frá ca.
1300 og mun áframhaldandi
rannsókn skera úr um elstu og
yngstu tímamörk. Elstu lýsingar
á rústum á Gásum eru frá seinni
hluta 18. aldar og þegar á 19. öld
var mönnum ljóst að hér væri
einn umfangsmesti og merkileg-
asti minjastaður á Íslandi. Gásir
eru friðlýstar minjar samkvæmt
Þjóðminjalögum, enda eru kaup-
staðaminjar af þessu tagi afar fá-
gætar, og árósar Hörgár og vot-
lendið vestan við Gáseyri eru á
náttúruminjaskrá vegna hins
fjölbreytta og sérstæða náttúru-
fars. Allar nánari upplýsingar
má finna á www.gasir.is. ■
UPPGRÖFTUR Á GÁSUM
Gásir voru helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum. Nú er talið hugsanlegt að
verslun á Gásum hafi staðið allt þar til kaupmenn hófu að versla á Akureyri um 1550.
Gásir:
Verslunarstaður
frá miðöldum
ÖRN ÁRNASON
Tekur innanlandsferðir
fram yfir ferðir til útlanda.
Með fellihýsi um allar koppagrundir:
Gríðarlegur tími sem fer í að eta
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Hungursneyð ógnar milljónum manna í sunnanverðri Afríku. Rauði krossinn er að hjálpa.
Hringdu í síma 907 2020 og þá styrkir þú átakið um 1.000 kr., sem bætast við
símreikninginn. Þitt framlag getur bjargað mannslífum.
Einnig er hægt að leggja framlag inn á reikning 1151 25 12, kt. 530269-2649
eða með kredikorti á www.redcross.is