Fréttablaðið - 04.06.2003, Side 23
4. júní 2003 Ferðalög innanlands 9
OD
DI
H
F
J
50
58
...vísa þér veginnwww.lmi.is
Ómissandi í ferðalagið
Ferðakort 1:250 000
Vesturland og Suðurland
Annað kortið af þremur í flokki nýrra vandaðra ferðakorta
í mælikvarða 1:250 000 er komið út. Mjög handhægt brot
sem hentar vel á ferðalögum. Mikil skörun á milli korta.
Byggt á nýjum stafrænum gögnum.
Kort sem ættu að vera til á hverju heimili
Ný ferðakort
Ferðakort 1:500 000
Vandað nýtt heildarkort af Íslandi með hæðarskyggingu
og þjónustutáknum. Glæsileg og mikið breytt útgáfa af
þessu vinsæla korti. Nýjustu upplýsingar um vegi
landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra
upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem bensínafgreiðslur,
gististaði, söfn, sundlaugar, golfvelli og fleira. Kortinu
fylgir nafnaskrá með yfir 3000 örnefnum. Skýringar á
fjórum tungumálum.
• Hæðarskygging og 50 metra hæðarlínubil
• Vegir, vegalengdir, veganúmer og bensínafgreiðslur
• Gisting, tjaldsvæði, sundlaugar og golfvellir
• Söfn, friðlýstar minjar, hringsjár og áningarstaðir
• Bæir í byggð, eyðibýli og rústir
• Yfir 6000 örnefni
• Upplýsingamiðstöðvar, bátsferðir og margt fleira
• Skýringar á íslensku, ensku, frönsku og þýsku
Útgefið
2002
Væntanlegt
2003
Sumarið 2003 býður CentrumNatura upp á ævintýraferðirá borð við fossasig og gljúf-
urgöngur, hellaskoðun, hestaferð-
ir og gönguferðir með leiðsögn. Í
sumar verður í fyrsta skipti boðið
upp á gljúfurgöngur í Selgili á
Húsafelli þar sem áhersla er lögð
á fossahopp og gönguferð niður
gil og gljúfur. Bjarni Freyr segir
að í ferðunum sé gengið eftir ár-
farvegi Selgils og á leiðinni þurfi
að vaða og synda yfir ár og jafn-
vel hoppa fram af fossum og ofan
í hylji til að komast á leiðarenda.
„Það eru margir fallegir fossar í
Selgili, en fossasig og gljúfur-
göngur gefa kost á einstakri nátt-
úruupplifun frá óvenjulegu sjón-
arhorni,“ segir Bjarni Freyr.
„Gljúfurgöngur í Selgili veita
hæfilega útrás fyrir ævintýra-
þörfina, en fyrir þá sem vilja eitt-
hvað meira spennandi er hægt að
fara í stærri og hrikalegri gil þar
sem þörf er á sérstökum sigbún-
aði til að komast á leiðarenda.
„Við erum fyrstir til að bjóða
upp á fossasig og gljúfurgöngur
hér á landi og þessar ferðir verða
sífellt vinsælli. Við höfum svo
þróað út frá þessum ferðum sér-
stakar hvataferðir fyrir til dæmis
saumaklúbba og starfsmanna-
hópa þar sem þrautir og leikir eru
fléttaðir inn í.“
Gljúfurgöngur verða frá Húsa-
felli alla laugardaga í sumar kl.
13.30 en einnig er hægt að panta
ferðir utan þess tíma. Allar nánari
upplýsingar eru veittar í síma 552
5200 / 660 6422 og á heimasíðu
Centrum Natura, www.centrum-
natura.is. ■
Fyrir þá sem ekki líkar tjald-búskapur eru ýmsir aðrirkostir í boði eins og til dæm-
is gisting á farfuglaheimilum.
Markús Einarsson, framkvæmda-
stjóri Bandalags íslenskra far-
fugla her á landi, segir að 26 far-
fuglaheimili séu starfrækt hring-
inn í kringum landið.
„Þar að auki rekum við tjald-
stæðið í Laugardal og þar er árleg-
ur fjöldi gistinátta um 20.000. Á
síðasta ári voru gistinætur á heim-
ilunum tæplega 80.000 talsins þan-
nig að á okkar vegum eru um
100.000 gistinætur á ári,“ segir
Markús.
Hann segir Farfuglaheimilin
mjög fjölskylduvænan ferðamáta
því auk þess að bjóða upp á gist-
ingu á hagstæðu verði hafi öll
heimilin svokölluð gestaeldhús
þar sem gestir geta geymt og mat-
reitt eigin mat án endurgjalds. Á
flestum heimilunum eða í ná-
grenni við þau er boðið upp á fjöl-
breytta afþreyingu.
„Bandalag íslenskra farfugla er
aðili að Hostelling International,
sem er stærsta gistuhúsakeðja í
heimi, en innan samtakanna eru
starfrækt um 5.000 farfuglaheimili
í 64 löndum,“ segir Markús.
„Undanfarin ár höfum við unn-
ið ötullega að umhverfismálum
og verið í fararbroddi innan
ferðaþjónustunnar á þessu sviði.
Á 60 ára afmæli samtakanna árið
1999 var samþykkt sérstök um-
hverfisstefna fyrir bandalagið og
síðan hefur verið unnið að því að
innleiða hana í starfsemi far-
fuglaheimilanna. Hún hefur
gengið vel og í fyrra var til dæm-
is Farfuglaheimilið í Reykjavík
valið fyrirtæki ársins í Reykja-
vík vegna starfa sinna að um-
hverfismálum.“ ■
HEILSAÐ UPP Á GLJÚFRABÚANN
Ævintýraganga eftir árfarvegi Selgils
er einstök náttúruupplifun.
Ævintýri á gönguför:
Fossahopp
og sund í hyljum
Farfuglaheimili hringinn í kringum landið:
Fjölskylduvæn gisting
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM