Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 26
Vesturland státar af fögrum
náttúruperlum eins og aðrir
landsfjórðungar og þar getur
ferðamaðurinn líka fundið sér
margt til skemmtunar.
Akranes
Safnasvæðið að Görðum er í
mikilli uppsveiflu, safn safna á
einum stað, en þar má finna
Íþróttasafn, Byggðasafn, Steina-
safn, Hvalfjarðargangasafn og
vísi að kortasafni- og kaffihúsi.
Hvalfjörður
Hótel Glymur. Býður upp á frá-
bæran mat, skemmtilegar uppá-
komur og nýjungar og á Bjarteyj-
arsandi er skemmtileg kræklinga-
fjara, þar sem er tekið á móti hóp-
um og boðið upp á gönguferðir
með leiðsögn og fræðsluferðir
hvers konar.
Tunga í Svínadal
Veitingahúsið Skessubrunnur
er afar sérstakt veitingahús með
útskornum innréttingum.
Þá er í Hvalfirðinum mjög
skemmtilegt svæði til útivistar
fyrir hjólreiðamenn og göngu-
menn, sem lofa fjörðinn í hástert.
Borgarfjörður
Borgarnes Hyrnan upplýs-
ingamiðstöð. Allar upplýsingar
um svæðið ásamt upplýsingum á
landsvísu. Einnig hvers konar
smávara, minjagripir, kort, póst-
kort, bækur, handverk og fleira.
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi,
býður meðao annars upp á sund-
laug með góðu útisvæði.
Búvélasafnið á Hvanneyri er
skemtilegt fyrir unga sem aldna
svo og Reykholt, þar sem er Safn
Snorra Sturlusonar, Heims-
kringla, Snorrastofa, fornleifa-
uppgröftur og fleira.
Í Húsafelli hafa staðið yfir
breytingar í sjoppunni, þar sem
tekið er á móti hópum. Þar er
tjaldsvæði, smáhýsi, gamlibær,
og hægt að fara í ævintýraferðir
um svæðið.
Í Fljótstungu í Hvítársíðu er
hellirinn Víðgelmir, og þar er
boðið upp á gönguferðir með leið-
sögn.
Við Hraunfossa og Barnafoss
eru nývígð mannvirki, góð að-
staða, nýtt kaffi- og handverks-
hús.
Alltaf er gamana að ganga á
Grábrók og koma að Hreðavatni.
Í Jafnaskarðsskógi eru góðar
gönguleiðir.
Snæfellsnes
Margar góðar gönguleiðir eru
við Eldborg og Gíginn.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
er ægifagur þar sem eru Hellnar
og Arnarstapi, fallegir smábæir í
frábærri náttúru.
Á Bjarnarhöfn á milli Grund-
arfjarðar og Stykkishólms er Há-
karlasafn og hákarlaverkun og í
Stykkishólmur er Heita vatnið
með vottunina, sem hefur verið
líkt við bláa lónið.
Dalir
Á Eiríksstöðum er lifandi vík-
ingasafn og fleiri uppákomur í
tengslum við víkingatímann.
4. júní 200312 Ferðalög innanlands/Vesturland
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
GERIR ALLT!
Hægt að fá vöggu
Loksins nett stafræn myndavél
– sem „gerir allt“ – á frábæru verði
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir (6.0 milljón díla!).
Fjöldi myndatöku möguleika; s/h, króm, runur osfrv.
Ljósnæmi ISO 200-800.
3 x aðdráttur auk stafræns aðdráttar.
Með F hnapp sem auðveldar allar myndgæða stillingar.
Tekur kvikmyndir 320x240 díla, 10 rammar á sek.,
upp í 120 sek í einu.
Hægt að tala inn á myndir.
Lithium Ion hleðslurafhlaða og hleðslutæki fylgir.
Notar nýju X-D minniskortin - fáanleg upp í 256MB.
165 g án rafhlöðu. Kr. 59.900,-
410 Í
sumar stendur til að reisa
fyrsta áfanga að menningar-
miðstöð á Hellnum og hyggst
Umhverfisstofnun opna þar
gestastofu fyrir Þjóðgarðinn Snæ-
fellsjökul. Markmið gestastofa er
að kynna gestum svæðið og auka
þannig gildi heimsóknar þeirra.
Upplýsingamiðstöð verður einnig
áfram á Hellissandi en þar er hún
í húsnæði Íslandspósts. Gert er
ráð fyrir að þjóðgarðsmiðstöð
verði síðar byggð á Hellissandi.
Gönguferðir
og barnastundir
Landverðir í Þjóðgarðinum
Snæfellsjökli bjóða börnum upp á
fræðslu- og leikjadagskrá þrisvar
í viku í sumar. Barnastundirnar
byrja á tjaldsvæðum í nágrenni
þjóðgarðsins, en innan þjóðgarðs-
ins eru engin tjaldsvæði.
Gönguferðir verða fimm sinn-
um í viku. Á mánudögum verður
létt ganga við Gufuskála þar sem
fiskbyrgi, brunnur og vör verða
skoðuð. Á miðvikudögum verður
farið í Eysteinsdal. Á laugardög-
um er gengið um Djúpalónssand,
yfir í Dritvík og áfram gamla götu
í gegnum hraunið. Á sunnudögum
verða jarðfræði-
myndanir skoð-
aðar í Öndverð-
a r n e s h ó l u m .
Regluleg dag-
skrá hefst með
barnastund um
sumarsólstöður,
21. júní. Þá um
kvöldið verður
einnig snemm-
búin Jóns-
m e s s u n æ t u r -
ganga á vegum
S æ m u n d a r
Kristjánssonar,
sagnamanns á
Rifi. Lagt verður af stað klukkan
23 frá Ingjaldshóli. Gangan tekur
um 3 klukkustundir og er frekar
létt.
Nánari upplýsingar má fá hjá
þjóðgarðinum í síma 436 6860 og
á vef Umhverfisstofnunar,
www.ust.is ■
SNÆFELLSJÖKULL
Í ofanálag við náttúrufegurð á Snæfellsnesi sækir fólk sér andlega
næringu og styrk við jökulinn.
Snæfellsnes:
Gestastofa á Hellnum
FRÁ VESTURLANDI
Séð yfir höfnina í Stykkishólmi.
Vesturland:
Safnasvæði í
mikilli uppsveiflu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T