Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 27
4. júní 2003 Ferðalög innanlands/Vestfirðir 13
Gulur, rauður, grænn og blárer fróðleg og skemmtilegabók fyrir börn á öllum aldri
og tilvalin í bíælinn á langferðum.
Í henni eru 126 ljósmyndir frá Ís-
landi og fróðlegir myndatextar
sem útskýra á skemmtilegan hátt
það sem á myndinni er.
„Myndirnar sýna 126 augna-
blik sem ekki koma aftur,“ segir
Guðrún Birna Ólafsdóttir. „Þær
hafa allar skemmtilega sögu að
segja og margar þeirra sýna lítt
þekkta staði. Bókin sýnir íslenska
náttúru í nýju ljósi, fjölbreyti-
leika þess sem fyrir augu ber á
ferðalögum og eykur áhuga á Ís-
landi.“
Fyrstu myndir bókarinnar eru
litskrúðugar og á þeim er að
finna litina fjóra sem nafn bókar-
innar dregur nafn af. Þá koma
tvær litlausar myndir en síðan
fjórir kaflar, sá fyrsti með mynd-
um þar sem gulur litur er áber-
andi, þá rauðar myndir, svo
grænar og síðasti kafli bókar-
innar er með myndum þar sem
blár litur er mjög áberandi.
Höfundur bókarinnar er Björn
Hróarsson jarðfræðingur, en með
þessari bók gerist hann ferðafé-
lagi allra þeirra sem hafa áhuga á
furðum og fegurð náttúrunnar.
Bókin er 128 blaðsíður í stóru
broti, gefin út af Pjaxi ehf. ■
FERÐABÓK FYRIR BÖRNIN
Bók fyrir börn á öllum aldri til að skoða í
löngum bílferðum.
Ferðahandbók barnanna:
Gulur, rauður,
grænn og blár
Golf - Söfn - Veiði -
Hestar - Rafting -
Gönguleiðir
Þú gerir það allt
hjá okkur!
Margt er skemmtilegt í boðifyrir ferðamenn sem leg-gja leið sína á Vestfirði í
sumar. Þar má nefna nýjungar frá
Vesturferðum eins og kvöldverð í
Vigur en þær ferðir eru farnar
þriðjudagskvöldum klukkan
18.30. Gengið er um eyna með
leiðsögn og kvöldverður að hætti
eyjarskeggja að því loknu í Vikt-
oríuhúsi.
Póstleiðin frá Sandeyri yfir í
Grunnavík er þriggja daga ferð
um Snæfjallaströndina í fótspor
póstanna þar sem hver þúfa iðar
af sögu og dulúð.
Aðalvík, Hesteyri og Fljótavík
Hvað eiga Geirmundur Heljar-
skinn, Norskir hvalveiðimenn og
breski herinn sameiginlegt? Við
fyrstu sýn er fátt sem sameinar
þetta, en ferð um Aðalvík, Hest-
eyri og Fljótavík með Vesturferð-
um kynnir þetta allt. Fimm daga
ferð um yfirgefin þorp og sögu-
fræga staði.
Í slóð Hannesar Hafstein
Göngu- og ökuferð um Dýra-
fjörð með leiðsögn. Ferðin, Í slóð
Hannesar Hafstein, með sögu-
manninum Þóri Erni Guðmunds-
syni
hefst kl. 14 á sunnudaginn 15.
júní. Lagt verður af stað frá minn-
isvarðanum við tóftir Bessastaða,
sem eru innan við Mýrar í Dýra-
firði. Slóð Hannesar er rakin og
sagan sögð á meðan gengið er
þangað sem Hrólfsnaustin stóðu,
þar sem félagarnir á Meiragarðs-
bátnum lögðu upp í hina örlaga-
ríku sjóferð.
Greint er frá þeim mönnum
sem sýslumaður skipaði að fara
þessa ferð og hvernig sumir
þeirra tengdust. Síðan er sest að
kaffi og kökum í Haukadal áður
en ekið er aftur að upphafsstað
ferðarinnar. Þeim sem fara þessa
göngu er bent á að hafa meðferðis
þægilega skó og léttan göngufatn-
að. Farargjald er kr. 4.000 en þar
er innifalinn akstur frá Meira-
Garði yfir í Haukadal og aftur til
baka, svo og kaffi og kökur í
Haukadal.
Þetta er aðeins brot af því sem
Vesturferðir bjóða upp á en nán-
ari upplýsingar eru á www.vest-
urferdir.is
Kajakróður meðfram gylltri
strönd
Dynjandi / Fjallfoss
Voldugasti foss Vestfjarða er í
Dynjandisvogi í Arnarfirði, rétt
undir suðurmörkum hins víðlenda
sveitarfélags Ísafjarðarbæjar.
Fossinn hefur ýmist verið nefnd-
ur Dynjandi eða Fjallfoss. Mjög
lengi hefur verið deilt um það,
hvort þessara nafna sé „rétt“.
Ekki verður tekin afstaða til þess
hér og víst er að bæði eru notuð.
Hvað sem því líður verður fossinn
að teljast einn svipmesti og sér-
stæðasti foss landsins. Vel búið
tjaldsvæði er í Dynjandisvogi.
Þaðan liggja gönguleiðir þar sem
njóta má hinnar einstæðu nátt-
úrufegurðar.
Hornstrandir
Engir vegir, engar símalínur,
ekkert nema villt náttúran og
mikil saga. Reglulegar bátsferðir
og dagsferðir.
Kajaksiglingar um Jökulfirð-
ina innan um sjófugla og seli eða í
Önundarfjörðinn þar sem má róa
meðfram gylltri sandströndinni.
Auðvelt er að verða sér úti um
kajaka og leiðsögn.
Hjólreiðar
Gaman er að hjóla um og virða
fyrir sér mannlífið, skella sér á
kaffihús, lesa blöðin og taka lífinu
með ró.
Skrúður í Dýrafirði er elsti
skrúðgarður landsins og vinsæll
viðkomustaður. Miklar endurbæt-
ur hafa verið gerðar þar á síðustu
árum.
Vigur á Ísafjarðardjúpi er ein-
stök náttúruperla. Íbúarnir bjóða
ferðamanninn velkominn með ró-
legu fasi og það er eins og tíminn
standi kyrr. Þúsundir fugla um
alla eyju og á haffletinum í kring.
Báturinn Vigurbreiður er svo
gamall að enginn veit aldur hans
nákvæmlega en samt er hann enn-
þá í notkun. Kaffið og bakkelsið í
Viktoríuhúsi sem er frá 19. öld
svíkur engan.
Í forsetastólinn
Sómi Íslands, sverð þess og
skjöldur
Þjóðskörungurinn Jón Sigurðs-
son fæddist á Hrafnseyri 17. júní
1811. Á Hrafnseyri er mikið og
merkilegt safn um þennan „sóma
Íslands, sverð þess og skjöld“.
Á Hesteyri í Jökulfjörðum er
gömul hvalveiðistöð og andi hval-
fangaranna svífur yfir vötnum.
Reykháfurinn og bryggjan standa
sem minnisvarði um tímabil sem
kemur aldrei aftur. Farið er í
dagsferðir á Hesteyri enda er
upplagt að hefja þar eða ljúka
gönguferð um Hornstrandir.
Morrinn, leiklistarhópur ungs
fólks, leiðir gesti í allan sannleika
um sögu Ísafjarðar. Rölt er um
bæinn með hópnum sem kynnir
staðinn með söng, tónlist og leik.
Jarðfræðiferð inn Valagil í
botni Álftafjarðar er ómaksins
virði. Þar eru fallegar jarðmynd-
anir og sjá má trjábolaför í jarð-
lögum frá því að hraun rann yfir
skóglendi fyrir milljónum ára.
Göngubrýr hafa verið settar upp
til að auðvelda ferðalagið. ■
Hornstrandir eru stundumkallaðar best geymdaleyndarmál Vestfjarða. Í
sumar verður hægt að fara þar í
ýmsar útgáfur af styttri ferðum
um friðlandið á Hornströndum.
Til dæmis er í boði sigling frá Ísa-
firði til Aðalvíkur, þaðan sem
hægt er að ganga yfir á Hesteyri
og líta inn í gömlu síldar -og hval-
stöðinni á Stekkeyri. Einnig verð-
ur hægt að leigja kajak og róa um
Hesteyrarfjörð og nálæga firði í
þeirri algjöru kyrrð sem þar ríkir.
Fyrir meiri göngugarpa er til-
valið að sjá margt í einu með því
að taka þátt í kraftgöngunni „ Í
fótspor feðranna“ (25-30) km sem
verður laugardaginn 9. ágúst, eða
fara í fjögurra daga gönguferð
um nágrenni Aðalvíkur, með gist-
ingu í Stakkadal. Eins og undan-
farin ár verður farið í hjólaferð á
Straumnesfjall en vegurinn þang-
að upp er lengsti „færi“ akvegur-
inn á svæðinu. Á Straumnesfjalli
standa enn miklar rústir eftir
veru bandaríska hersins þar. ■
Á LANGAKAMBI
Náttúrufegurðin á Hornströndum gefur
fólki þrótt og nýjan kraft.
Hornstrandir:
Best geymda
leyndarmál Vestfjarða
Vestfirðir:
Fjöldi
freistinga
fyrir ferðamanninn
FRÁ ÆÐEY
Í Æðey er veðurat-
hugunarstöð og
jafnframt eru stund-
aðar þar rannsóknir
á norðurljósunum.