Fréttablaðið - 04.06.2003, Page 28

Fréttablaðið - 04.06.2003, Page 28
4. júní 200314 Ferðalög innanlands/Norðurland eystra Húnavatnssýslan er óupp-götvað svæði fyrir flestaíslenska ferðamenn. Þó hefur orðið nokkur breyting þar á í seinni tíð og æ fleiri eru farn- ir að kynna sér það sem svæðið hefur upp á að bjóða. Á hinum „hefðbundnu ferðamannastöðum á Íslandi“ er umferðin að verða gríðarleg yfir sumartímann. Í Húnavatnssýslum finna menn fyrir þeirri þörf Íslendinga að ferðast á nýjar slóðir innanlands utan fjölsóttustu staða. Húna- vatnssýslur hafa margt að bjóða í menningu, náttúru og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Vatnsnesið er ægifagurt og hægt að njóta þess að sjá selina, klettinn Hvítserk og héraðsvirk- ið forna Borgarvirki. Vatnsdalur- inn er með fegurstu dölum lands- ins og steinkirkjan á sögustaðn- um Þingeyrum er með merki- legri kirkjum á landinu. Á kaffihúsinu Við Árbakkann á Blönduósi eru alltaf listsýning- arnar og svo er gaman að fá sér kántrýpizzu í Kán- trýbæ á Skaga- strönd. Í sýslunum er boðið upp á veiði, hesta- mennsku og fjöl- margar kortlagðar gönguleiðir. Kjalvegur er spennandi og þar er hægt að fá sér kaffi í skálan- um Áfanga eða fara í laugina á Hveravöllum. Í Byggðasafninu á Reykjum er margt að sjá, meðal annar há- karlaskipið Ófeig, og á Heimilis- iðnaðarsafninu á Blönduósi er hægt að skoða hannyrðir heima- manna. Að keyra út á Skaga með við- komu í eyðiþorpinu í Kálfshamars- vík er upplifun út af fyrir sig. ■ Nýtt og glæsilegt safnhúsHeimilisiðnaðarsafnsins áBlönduósi var vígt 29. maí síðastliðinn og verður safnið opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst, kl. 10-17. Framkvæmdir að nýbygging- unni hófust haustið 2001 og var húsið afhent nú í lok janúar. Ný- byggingin tengist gamla safnhús- inu með glerskála. Stefna safns- ins er að það verði í stöðugri þró- un eftir því sem kostur er með til- liti til innréttinga og til að nýta sem best úrval af munum safns- ins sem verður skipt út að ein- hverju leyti frá ári til árs. Þannig á sami safngestur möguleika á að sjá alltaf einhvern breytileika í þessu einstaka safni. Settar hafa verið upp ólíkar sýningar í nýja safnhúsinu og er þema sýninganna Þráður, þráður- inn sem grunnur handíða og teng- ing sögunnar, það er fortíðar við samtímann. Jarðhæð helguð Halldóru Bjarnadóttur Fyrst er að telja svokallaða ull- arsýningu, þar sem vinnsluferli ullar er sýnt frá fortíð til nútíðar og fjallað um þátt ullar í þjóðabú- skapnum fyrr og síðar. Hildur Hákonardóttir veflistakona er sýningarstjóri að þessari sýn- ingu. Andstæða fyrrnefndrar sýn- ingar er sýning á listfengum hannyrðum, en Birna Kristjáns- dóttir, formaður Handverks og hönnunar, hefur stýrt uppsetn- ingu hennar. Þjóðbúningar, sem flestir voru saumaði á árunum 1850-1900, skipa veglegan sess í safninu og ekki má gleyma ýmsum munum sem tengjast heimilisiðnaði frá fyrri tíð. Þá er ákveðið að bjóða textíllistafólki að sýna verk sín í safninu og verða það breytilegar sýningar frá ári til árs. Fyrst ríður á vaðið Hildur Há- konardóttir, sem sýnir veflista- verk. Síðast en ekki síst er jarð- hæð gamla safnhússins helguð Halldóru Bjarnadóttur og má þar sjá fágætt safn muna úr búi hennar. Bændasamtök Íslands hafa afhent safninu til varð- veislu þá muni sem Halldóra gaf til Búnaðarfélags Íslands árið 1961. Í kaffirými geta gestir tyllt sér niður, fengið sér „tíu dropa“ og notið útsýnis þar sem báran kyss- ir lygnan ós Blöndu. ■ Húnavatnssýslur: Húsdýra- garður í Húnaveri Í Húnaveri er nú verið að vinna við gerð húsdýragarðs sem áætl- að er að opna í maí-júní. Í garðin- um verða íslensku húsdýrin ásamt gömlum tækjum og tólum sem tengjast landbúnaði fyrr og nú. Það verður teymt undir börn- um og ýmsar uppákomur og einnig verður hestaleiga með stuttum ferðum um nágrennið. Ásamt því að byggja upp garðinn er líka hugað að breytingum á tjaldsvæði, skógurinn verður opnaður og leyft að tjalda þar. Á tjaldsvæðinu er sturta, rafmagn og leiktæki fyrir börnin. Í Húnaveri er góð aðstaða fyr- ir hópa í svefnpokaplássi með að- gangi að fullbúnu eldhúsi. Hægt er að panta morgunverðarhlað- borð en einnig heita rétti alla daga og sjoppan er alltaf opin. ■ Blönduós: Glæsilegt heimilisiðnaðarsafn NÝENDURGERT HEIMILIS- IÐNAÐARSAFN Á BLÖNDUÓSI Þar getur að líta fallegt handverk heimamanna. STEINKIRKJAN Á ÞINGEYRUM Ein merkilegasta kirkja landsins. Húnavatnssýslur: Meiri upplifun en margan grunar VIÐ VATNSNESIÐ Selir flatmaga þar í fjöruborðinu og gleðja augu gesta. Nýir eigendur bjóða nýja og eldri viðskiptavini velkomna í sumar Skoðið nánar á www.argerdi.com Gistiheimilið Árgerði, 620 Dalvík Sími og fax 555 4212 Netfang argerdi@argerdi.com Ibúð á Akureyri Höfum til leigu í 1-2 eða fleiri sólahringa litla notalega íbúð á besta staðí bænum. Svefnaðstaða fyrir 6-8 manns Uppl í síma 471-3028 /866-5750 eða 462-6946 /891-6946 netfang; bjas@li.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.