Fréttablaðið - 04.06.2003, Side 29
4. júní 2003 Ferðalög innanlands/Norðurland eystra
Mikil uppbygging
í ferðaþjónustu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ferðaþjónusta er mjög vax-andi í Þingeyjarsýslum og áán efa eftir að eflast enn
frekar. Á svæðinu eru margar ef
helstu náttúruperlum landsins
og auk þess uppbygging í ýmiss
konar afþreyingu. Þingeyjar-
sýslur bjóða upp á mikla fjöl-
breytni og því auðvelt að finna
eitthvað áhugavert fyrir hvern
og einn.
Mývatnssveit er einn vinsæl-
asti ferðamannastaður landsins
og kemur þar margt til. Svæðið
er þekkt fyrir einstaka náttúru-
fegurð, sem eldsumbrot frá örófi
alda hafa mótað. Nægir að nefna
staði eins og Skútustaðagíga,
Höfða, Dimmuborgir, Hveri við
Námaskarð og Leirhnjúk og Víti
við Kröflu. Mývatnssveit býður
upp á fjölbreytta þjónustu hvað
varðar afþreyingu, gistingu og
veitingar, sem byggir á mikilli
reynslu og þekkingu. Margar
merktar gönguleiðir eru í boði.
Þá er Mývatn perla fuglaskoðun-
arfólks.
Veiði í Þingeyjarsýslum
Úr Mývatni rennur Laxá, ein af
nafnkunnustu og eftirsóttustu
veiðiám landsins. Laxá rennur um
fagurt umhverfi Laxárdals, eftir
gljúfrinu úr mynni dalsins um
Brúarfossa norður Aðaldal. Neðst
í ánni eru Æðarfossar en þar lygn-
ir hún og fellur síðan út í Skjálf-
andaflóa.
Einn þekktasti foss landsins er
Goðafoss í Skjálfandafljóti.
Nokkru ofar í fljótinu er Ald-
eyjarfoss, umkringdur háu stuðla-
bergi. Skjálfandafljót er fjórða
lengsta á landsins og á upptök sín
í Vatnajökli.
Í Þjóðgarðinum í Jökulsár-
gljúfrum er ekki einungis margt
að sjá í stórbrotinni náttúrunni,
heldur er það hreinlega upplifun
sem verður að gefa sér góðan
tíma til að njóta. Þar eru margir
og miklir fossar, áhugaverðar
jarð- og klettamyndanir, fagur
gróður og fjölbreytt fuglalíf. Það
liggja margar góðar gönguleiðir
um svæðið og meðal þess sem sjá
má eru jarðmyndanir á borð við
Ásbyrgi, Hljóðakletta og Hólma-
tungur, sem láta engan ósnortinn.
Í Jökulsá á Fjöllum eru meðal
annars Hafragilsfoss, 26 m hár, og
einnig aflmesti foss í Evrópu,
Dettifoss, sem er 44 m hár.
Hvalaskoðun og hestaferðir
frá Húsavík
Húsavík er þekkt sem einn
helsti hvalaskoðunarstaður Evr-
ópu, og tengja flestir ímynd Húsa-
víkur við hvali. Á síðasta ári fóru
um 27.000 manns í hvalaskoðun
frá Húsavík.
Safnahúsið á Húsavík, sem er
menningarmiðstöð Þingeyinga,
hefur síðan það var opnað árið
1980. Nýtt mjög áhugavert sjó-
minjasafn var opnað í apríl á síð-
asta ári. Það er hluti af Safnahús-
inu en auk þess náttúrugripasafn,
byggðasafn, myndlistarsafn,
skjalasafn og ljósmyndasafn.
Hestaferðir eru klassískt
dæmi um afþreyingu. Erlendir
gestir eru duglegir að nýta sér
lengri hestaferðir, en Íslendingar
eru spenntari fyrir styttri ferð-
um. Á Húsavík eru tvö fyrirtæki
sem bjóða upp á hestaferðir.
Fjallasýn Rúnars Óskarsson-
ar býður upp á jeppaferðir, með-
al annars um hálendið, Mývatns-
sveit, Jökulsárgljúfur og að
Þeistareykjum. Fyrirtækið rek-
ur einnig hópferðaþjónustu með
rútum af öllum stærðum og
gerðum.
Í byrjun júní verður opnuð ný
upplýsingamiðstöð, Húsavíkur-
stofa, að Garðarsbraut 5. Síminn
er 464 4300 og netfangið
info@husavik.is.
Heilsutengd ferðaþjónusta
Þingeyingar bjóða upp á ýmis-
legt sem tengist heilsu og vellíð-
an. Í héraðinu eru margar sund-
laugar með pottum og tilheyrandi.
Þá eru margvíslegar gönguleiðir í
boði og verið er að vinna að því að
merkja fleiri slíkar. Í framtíðinni
er gert ráð fyrir að nota heita
vatnið meira í tengslum við
heilsuþjónustu og má þar nefna
áætlanir um uppbyggingu baðlóns
við Mývatn, og notkun á heitu
söltu vatni við Húsavík sem
reynst hefur vel varðandi húð-
vandamál svo sem psoriasis. ■
BLÁTT LÓN Í MÝVATNSSVEIT
Þingeyingar láta ekki sitt eftir
liggja og bjóða upp á blátt
heilsulón.
Norðurland
eystra