Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 31

Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 31
Í Laugardalshreppi eru einstakirstaðartöfrar og mikil veður-sæld. Byggðakjarni hefur myndast á Laugarvatni í kringum þjónustu við skólana þar og ferða- fólk. Ferðamenn sem leita kyrrðar og friðsældar sækja í auknum mæli í héraðið. Hótel Edda rekur tvö hót- el, í Menntaskólanum og Íþrótta- kennaraskóla Íslands. Íþróttamið- stöðin tekur á móti hópum í svefn- pokagistingu og uppbúin rúm og þá einkum íþróttahópum sem dvelja við æfingar og leiki. Gott tjald- stæði er á Laugarvatni. Á Laugarvatni er frábær að- staða fyrir íþrótta- og ferðamenn. Þar eru göngu- og skokkleiðir, fög- ur náttúra og stuttar leiðir til ann- arra eftirsóttra ferðamannastaða. Báta- og seglbrettaleiga er við vatnið. Þar er 25 metra útisundlaug með heitum pottum og góðri sól- baðsaðstöðu. Gufubaðið, þar sem bullandi hverinn veitir gufunni upp gegnum gólfið, hefur létt þreytu af mörgum ferðamanninum. Verslunin H-Sel og Tjaldmið- stöðin veita gestum og gangandi þjónustu sína. Í Miðdal, og um 5 km innan við Laugarvatn, er 9 holu golfvöllur og hestaleiga í Efstadal. Eina límtrésverksmiðjan á landinu Biskupstungur liggja milli Brú- arár og Hvítár, en Tungufljót renn- ur um miðja sveit. Landslag í sveit- inni er afar fjölbreytilegt og skóg- arkjarr víða í fjallshlíðum og á und- irlendi. Í sveitinni er margt þekktra staða. Helstir eru Gullfoss, Geysir, Haukadalur og Skálholt. Brúarárskörð eru á sveitarmörkum til fjalla og Hagavatn við Langjök- ul. Í Biskupstungum eru Gullfoss og Geysir, báðir friðaðir. Hefð- bundinn landbúnaður og garðyrkja eru helstu atvinnugreinar. Þjónusta við ferðamenn er vaxandi atvinnu- grein. Þéttbýli hefur myndast í Laugarási og Reykholti. Á báðum stöðum er mikill jarðhiti og því fjöldi garðyrkjubýla. Verslanir eru á báðum stöðum. Kirkjur eru á Torfastöðum, í Bræðratungu, Haukadal og Skálholti. Mikill jarð- hiti er í sveitinni og háhiti á tveim- ur stöðum. Um 90% íbúa hita híbýli sín með jarðhita. Hann er einnig notaður við ræktun og iðnað. Leiðin norður Kjöl liggur um sveitina, einnig „Línuvegurinn“ til Borga- fjarðar. Flúðir eru ungt þéttbýlishverfi á austurbakka Litlu-Laxár í Hruna- mannahreppi, miðsvæðis í hreppn- um. Landbúnaður er aðalatvinnu- vegur sveitarinnar, en allmargir garðyrkjubændur hafa sest að á Flúðum og rækta bæði úti sem og í gróðurhúsum. Þjónusta og iðnaður ásamt garðyrkju einkenna atvinnu- lífið á Flúðum, til dæmis límtrés- verksmiðjan, Límtré hf., sú eina sinnar tegundar á landinu. Flúðir hafa löngum verið þekkt- ar fyrir þjónustu sína við ferða- menn. Þar er í boði öll hugsanleg þjónusta eins og verslanir, veit- ingasala, sundlaug, gisting, tjald- stæði við ferðamiðstöðina, golfvöll- ur, banki, pósthús og flugvöllur. Hótel Flúðir er heilsárshótel með 32 tveggja manna gistiherbergjum með sérbaði. Dansinn í Hruna Norðan Flúða er brú á Hvítá hjá Brúarhlöðum, skammt fyrir sunn- an Gullfoss. Í nágrenni Flúða er prestssetrið og kirkjustaðurinn Hruni. Þar gerðist þjóðsagan al- kunna Dansinn í Hruna, sem fjallar um prestinn sem hafði dansleik í kirkjunni í stað guðsþjónustu á jólanótt. Móðir prestsins reyndi að fá son sinn til að hætta þessum ósið, en hann skeytti engu um ráð henn- ar. Endaði þetta svo með þeim ósköpum að kirkjan sökk niður í jörðina með presti og öllum sem með honum voru. Sést enn þann dag í dag djúpur slakki þar sem kirkjan stóð áður. Hella er á austurbakka Rangár. Íbúarnir byggja afkomu sína á þjónustu við sveitina og í auknum mæli við ferðamenn. Kennileiti sveitarinnar er ugglaust Hekla, frægust eldfjalla á Íslandi, sem lað- ar marga ferðamenn til sín. Þá má segja að í sveitinni séu fjölförnustu ferðamannastaðir landsins, Þórs- mörk og Landmannalaugar, og milli þeirra hinn rómaði „Laugavegur“ sem laðar til sín marga göngumenn árlega. Sveitin í kring er eitt mesta hestasvæði landsins. Á Hellu hefur undanfarin ár aukist framboð á þjónustu við ferðamenn. Þar er til dæmis hægt að leigja „heilt þorp“ undir hvers kyns mannfagnaði og ættarmót, sem og annað. Góð sundlaug er á Hellu og stutt í 18 holu golfvöll. Þá eru seld veiðileyfi í Rangárnar, en þær eru orðnar meðal eftirsóttustu veiðiáa á landinu. Handverk og syðsta þorp landsins Hvolsvöllur er á fallegum stað með mikið útsýni yfir Suðurland og er þjónustumiðstöð Hvolhrepps. Þéttbýli fór að myndast þegar Kaupfélag Hallgeirseyjar stofnaði þar útibú árið 1930. Afkoma íbú- anna byggist að mestu á iðnaði, verslun og þjónustu við nágranna- byggðarlögin. Þjónusta við ferða- menn er góð. Hótel er á Hvolsvelli og tjaldsvæði við Austurveg. Hand- verk í heimabyggð í Sæluverinu og upplýsingaþjónusta fyrir ferða- menn í sælubúinu Hlíðarenda. Góð- ur golfvöllur er rétt vestan við Hvolsvöll, minigolf á svæðinu, reið- hjólaleiga, lax- og silungsveiðileyfi seld hjá Sælubúinu og ýmislegt fleira er þar á seyði. Á Skógum er hægt að skyggnast aftur í aldir á einu merkasta byggðasafni landsins þar sem með- al annars hafa verið endurbyggð mörg gömul hús. Skógafoss, einn fegursti foss landsins, og Kvernu- foss eru í göngufæri en auk þess er hægt að fara upp á Sólheimajökul á snjósleðum. Skógar eru vinsæll áfangastaður göngugarpa því það- an liggur leiðin yfir Fimmvörðu- háls í Þórsmörk. Á Skógum er einnig innisundlaug sem hefur ver- ið endurbætt og heitir pottar í litl- um afgirtum garði. Vík í Mýrdal er syðsta þorp á Ís- landi. Vík er eina þorpið á landinu sem stendur við sjó en er án hafnar. Mikil náttúrufegurð er við Vík og óvíða jafn fjölskrúðugt fugla- og gróðurlíf. Dyrhólaey er 120 m hár klettahöfði vestan Víkur og er hún talin syðsti oddi landsins. Yfir byggðinni gnæfir Mýrdalsjökull með Kötlu sem síðast gaus árið 1918. Góð og fjölbreytt gistiaðstaða er í Vík, sem og margvísleg önnur þjónusta við ferðamenn. Þar sem lundinn er fegurstur fugla Kirkjubæjarklaustur er þéttbýl- is- og þjónustukjarni Skaftár- hrepps. Kirkjubæjarklaustur er rómað fyrir náttúrufegurð og veð- ursæld. Þar er boðið upp á margvís- lega ferðaþjónustu, hótel starfandi allt árið, hægt að velja um bænda- gistingu, góð verslun er á staðnum, veitingasala, bankar og pósthús. Dægrastytting er margs konar, svo sem sundlaug við hótelið, 9 holu golfvöllur er skammt frá, veiðileyfi fást víða bæði í ár og vötn, skipu- lagðar skoðunarferðir eru á Laka- svæðinu, auk þess hægt að velja um margar styttri gönguleiðir á svæðinu. Daglegar ferðir eru í Núpsstaðarskóg. Margt fallegra staða er í Skaftárhreppi og því um margt að velja fyrir þann sem kýs að dvelja á svæðinu. Í Vestmannaeyjum er boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika, hótel, gistiheimili og tjaldstæði ásamt úr- vali veitinga- og skemmtistaða. Í boði eru einnig fjölmargar skoðun- arferðir á sjó, í lofti og á landi. Stórkostlegt útsýni, fjölskrúðugt fuglalíf, til dæmis stærsta lunda- byggð í heimi. Eldgosið 1973 lagði Vestmanneyjabæ næstum í eyði en þrátt fyrir það er þar í dag ein stærsta verstöð landsins. Gosið er ekki aðeins nálægt öllum í minning- unni, heldur eru minnisvarðar þess um allan bæ. Á Byggðasafninu í Eyjum er að finna lifandi sýningu um gosið og í bíóinu eru daglega sýndar myndir frá þessum atburð- um. Í Vestmannaeyjum er auk þess að finna einstætt sædýrasafn, það eina á Íslandi. Í Eyjum er glæsileg- ur 18 holu golfvöllur. Auk þess er alltaf spennandi að fara í fugla- skoðun um eyjarnar. Einnig eru í boði óvenjulegar gönguferðir, hestaleiga og sjóstangaveiði. Greið- ur aðgangur er að íþróttasölum og sundlaug með heitum pottum og gufubaði. Upplýsingamiðstöð ferðamanna er á staðnum. ■ 4. júní 2003 17 VIÐ ÞINGVALLAVATN Alltaf vinsæll áningarstaður ferðamanna á Suðurlandi. Ferðalög innanlands/Suðurland Suðurland: Fjölbreyttir ferðamöguleikar GULLFOSS Fossinn í allri sinni tign er sífelld gleði ferðamanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.