Fréttablaðið - 04.06.2003, Side 33
4. júní 2003 Ferðalög innanlands 19
Gönguferðir um íslensk fjöll eruspennandi kostur þegar menn
vilja njóta náttúrunnar. Jón Gauti
Jónsson hjá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum segir meginpunktinn
hjá þeim að Íslendingum sé boðið
upp á faglega leiðsögn á fjöll. „Þá er
ég alls ekki að gera lítið úr öðrum
ferðafélögum, en við erum að bjóða
fólki upp á það sem útlendingum
hefur hingað til helst staðið til boða.
Nú fjölgar óðum Íslendingunum í
þessum ferðum. Við sjáum um allt
sem tilheyrir, fólk þarf ekki annað
en gönguskó, svefnpoka, bakpoka
og dýnu, en við sjáum um allan sér-
útbúnað svo ferðin verði skemmti-
legri og byrðarnar léttari, sköffum
tjöld og allan eldunarbúnað. Fólk er
svo bara með í að elda, sem skapar
skemmtilega stemningu.“ Leiðsögu-
mennirnir eru allir vanir fjalla-
menn.
Jökullinn er undraveröld
„Við viljum opna fólki nýjar
leiðir eins og til dæmis að fara
upp á skriðjöklana og skoða
undrin sem þar blasa við,“ segir
Jón Gauti.
„Aðalbúðirnar okkar eru í
Skaftafelli og þaðan bjóðum við
upp á dagsferðir á jökla, til dæmis
tveggja og hálfs tíma ferð sem er
sniðin fyrir alla, allt frá ungum
börnum upp í 70-80 ára. Við erum
ekkert að gera út af við fólk held-
ur kynna því eitthvað nýtt og
spennandi og benda á öll ótrúlegu
smáatriðin sem skipta svo miklu
máli.“
Jón Gauti segir ekki skipta
máli þegar kemur að jöklaferðum
hvort skyggni er gott eða ekki. „Í
litlu skyggni er fókusinn bara á
jökulinn sjálfan, þessa undaver-
öld, eins og til dæmis jöklamýsnar
sem eru mjög sérkennilegt nátt-
úrufyrirbæri.“
Jón Gauti útskýrir að jöklamús
sé mosi sem þrífst einungis á jökl-
um.
Dagsferðir frá Reykjavík
Í Skaftafelli er hægt að detta
fyrirvaralaust inn í ferðir fjalla-
leiðsögumannanna og Jón Gauti
leggur áherslu á að fjallgöngur
eru ekki íþróttaviðburður. „Auð-
vitað erum við líka með ferðir
sem henta fólki í góðri þjálfun,
en perlur eins og göngur frá
Núpstaðaskógi yfir í Skaftafell,
eða frá Laka í Núpstaðaskóg, og
Skaftáreldaganga, verða æ vin-
sælli. Það eru svokallaðar trúss-
ferðir, við göngum dagleiðir
milli áfangastaða, og skutlum
farangri milli staða. Ég hef sjálf-
ur farið í trússferð með átta ára
gamalli dóttur minni og það var
ekkert mál.“ Þá bendir Jón Gauti
á dagsferðir frá Reykjavík á
hverjum morgni klukkan 9, en
þar má nefna tíu tíma ferð upp á
Sólheimajökul, gönguferð á
Hengil og gönguferð um Heið-
mörk.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn
eru á Vagnhöfða 7b í Reykjavík
og veffangið er www.mount-
ainguide.is Síminn er 587 9999. ■
Að ganga á fjall:
Er ekki íþrótta-
viðburður
GLEÐI OG GAMAN
Það er endurnærandi fyrir sálina að
ganga á fjöll og greinilegt að þátttakend-
ur í þessari ferð njóta lífsins til fulls.
ÁÐ Á TINDINUM
Íslensk fjallasýn er engu lík og um að gera fyrir alla sem vettlingi geta valdið að
skunda á fjöll.