Fréttablaðið - 04.06.2003, Qupperneq 44
Fjölmargir fatlaðir leggja sittaf mörkum til verðmæta-
sköpunar í samfélaginu. Alþjóð-
leg ráðstefna um atvinnumál
fatlaðra hér á landi sendi frá sér
yfirlýsingu, svonefnda Reykja-
víkuryfirlýsingu, sem afhent
var félagsmálaráðherra. Þar er
áréttuð sú sýn að réttur fatlaðra
til atvinnu verði gerður að veru-
leika. Kristján Valdimarsson,
formaður samtaka um vinnu og
verkþjálfun, segir alla sem það
geta eiga jafnan rétt til vinnu á
almennum vinnumarkaði. „Við
hvetjum ríkisstjórnir til að setja
sér markmið um að hlutfall at-
vinnulausra meðal fatlaðra
verði innan tíu ára það sama og
meðal ófatlaðra.“
Kristján segir marga hafa
haldið því fram að staða fatlaðra
á vinnumarkaði haldist í hendur
við almennt ástand. „Þetta er
ekki alls kostar rétt. Það sýnir sig
að þar sem unnið hefur verið
markvisst að þessum málum er
ástandið mun betra en annars
staðar óháð ytri aðstæðum.“
Hann leggur áherslu á að átak
þurfi að gera varðandi almennan
vinnumarkað. Fjöldi fatlaðra geti
lagt sitt af mörkum í fyrirtækjum
fái þeir til þess nauðsynlegan
stuðning og undirbúning.
Þjóðhagslegur ávinningur af
því að aðstoða fatlaða við að kom-
ast út á vinnumarkað er drjúgur,
án þess að það hafi verið reiknað
í þaula. „Svo bætast við huglæg-
ari þættir um líðan og tilfinn-
ingu. Það segir sig sjálft að bara
það að menn fara út á morgnana
á vinnustað þýðir allt. Maður er
með allt annan stimpil og allt
annan hatt á hausnum en ef mað-
ur gerir það ekki.“ Kristján segir
mikilvægt að einblína ekki á fötl-
unina heldur að setja getuna í
forgrunn. „Öll erum við fötluð
hvað varðar atvinnu á mismun-
andi hátt. Ekki gæti ég orðið
stærðfræðingur uppi í Háskóla
eða flogið stórri flugvél.“
haflidi@frettabladid.is
24 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ungur maður sem réð sig sem leið-beinanda í gagnfræðaskóla var orð-
inn ansi þreyttur á nemendum sínum eft-
ir fyrstu vikuna. Í einum tímanum, þeg-
ar honum þótti börnin sýna takmarkaða
færni, sagði hann: „Mig langar að biðja
alla þá sem eru heimskir að standa
upp.“ Enginn stóð upp og eftir mínútu
þögn sagði leiðbeinandinn: „Hvað er að
ske, eruð þið öll vitringar?“ Þá stóð einn
ungur piltur upp og kennarinn spurði:
„Svo þú telur þig heimskan?“ Drengur-
inn svaraði: „Nei, ég bara vorkenndi þér
að standa þarna einn.“
Með súrmjólkinni
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
06
. 2
00
3
Mikið úrval af reiðhjól
hjálmum,
barna og fullorðins,
einföld stilling.
CE merktir og íslenskur
leiðarvísir.
Verð frá kr. 2.200 barna
og 2.900 fullorðins
GSR AluxX F/S 24” og 26”
Ál stell, demparagaffall, álgjarðir, V-bremsur.
Frábært fjallahjól á vegi sem vegleysur.
24” aðeins
kr. 27.455
stgr.
26” aðeins
kr. 29.925
stgr.
FREESTYLE
Vönduð hjól með
styrktum gjörðum,
pinnum og rotor.
Verð frá
kr. 21.850
stgr.
Windermere 28”
Ekta dömuhjól, 28“ dekk, 21 gír,
ál stell, breiður
hnakkur
með dempara,
stillanlegt
stýri,
verð kr.
32.775
stgr.
Terminator 24” og 26”
21 gíra tveggja dempara
hjól, Shimano gírar,
V-bremsur og álgjarðir.
24” kr. 26.505
stgr.
26” kr. 27.455
stgr.
Apollo 26”
21 gíra
demparahjól
á mjög góðu
verði.
Shimano gírar,
V-bremsur
og álgjarðir.
Verð aðeins
kr. 25.555
stgr.
Barnastólar
Verð frá
kr. 7.410 stgr.
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stillt á fullkomnu
reiðhjólaverkstæði. Ábyrgð og frí
upphersla eftir einn mánuð.
Vandið valið og verslið í sérverslun.
5% staðgreiðslu afsláttur. Upplýsingar
um raðgreiðslur veittar í versluninni
Frábær fjallahjól frá Scott,
Alls konar
útfærslur,
verð kr
34.105 til
123.405
stgr.
Atvinna
■ Öll höfum við takmarkanir þegar kem-
ur að vinnu. Enginn getur gert allt, en all-
ir geta gert eitthvað. Nokkuð skortir á að
fatlaðir fái réttmæt tækifæri til að leggja
sitt af mörkum til efnahagslífsins.
Stefnt að jöfnu hlut-
falli á vinnumarkaði
ÞARF ÁTAK
Kristján Valdimarsson, formaður Samtaka um vinnu og verkþjálfun, segir stöðu fatlaðra
á vinnumarkaði ráðast fremur af því hvort markvisst sé unnið í málinu en af almennu
atvinnuástandi.
HJARTANU NÆST
Það sem brennur á hverjum og einum er misjafnt. Félag íslenskra teiknara bauð félags-
mönnum sínum upp á það að tjá hug sinn í veggspjaldasamkeppni sem haldin var í sam-
vinnu við pokasjóð. Viðfangsefnið var frjálst svo fremi sem það snerti almannaheill. Dóm-
nefnd treysti sér ekki til að gera upp á milli tveggja veggspjalda og deildu þau því fyrstu
verðlaunum. Voru það veggspjöldin Nauðungarsala eftir Stefán Einarsson og Önnu Stein-
unni Ágústsdóttur og Ekur þú reglulega yfir mann í hjólastól? eftir Halldór R. Lárusson.
Verðlaunaveggspjöldin og tíu önnur eru til sýnis í Smáralind og getur fólk barið augum
það sem brann á hjarta félagsmanna.
44 ÁRA „Við ætlum bara að skreppa
í bíltúr í dag hjónin og kaupa af-
mælisgjöf hvort handa öðru,“ seg-
ir Stefán Sturla Sigurjónsson leik-
ari, sem á afmæli í dag. Hann er
ekki einn um það því Petra Högnäs
kona hans á einnig afmæli í dag.
Samtals eru þau áttræð í dag. „Við
ætlum svo að dvelja í sumarbústað
Félags íslenskra leikara á Snorra-
stöðum um helgina. Þangað eru all-
ir vinir og vandamenn velkomnir á
sunnudaginn þegar við höldum
upp á sameiginlegt afmæli.“
Stefán Sturla segist ekki hafa
gert mikið af því að halda upp á af-
mælið sitt þegar hann var yngri.
„Ég var svo mikill sveitakall að ég
fór alltaf beint í sveitina þegar
skólinn var búinn. Venjulega var
ég að aðstoða einhverja rolluna við
að bera þennan dag. Í seinni tíð
breyttist þetta. Ég hef verið að
vinna upp tapaða afmælisdaga.“
Sameiginlegur afmælisdagur
hjónanna gefur tækifæri á að
halda upp á sameiginleg stór-
afmæli milli hinna eiginlegu
stórafmæla.
Það er ekki nóg með að tækifær-
in til afmælisveislu sé gripið hér á
landi. „Konan mín er sænskumæl-
andi Finni og við förum til Finn-
lands á sumrin. Þar gefst okkur
tækifæri á að halda aftur upp á af-
mælið með fjölskyldunni hennar.“
Stefán Sturla og Petra eru í tví-
buramerkinu, en tvíburar þykja fé-
lagslynt fólk. „Við erum töluvert lík
og mikið líf og fjör þar sem tveir
tvíburar eru á heimili.“
STEFÁN STURLA SIGURJÓNSSON
Ætlar að taka á móti vinum og vanda-
mönnum í sumarbústað Félags ís-
lenskra leikara á sunnudaginn.
Afmæli
STEFÁN STURLA
SIGURJÓNSSON
■ og eiginkona hans eiga afmæli í dag.
Þau eru samtals áttræð og ætla að halda
upp á það um helgina. Stefán Sturla er
að vinna upp tapaða afmælisdaga
bernskunnar. Hann fór í sveitina og var
venjulega að taka á móti lömbum á
afmælisdaginn.
Tvöföld ástæða til veisluhalda
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M