Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 46
Sumir dansa til að gleyma. Égdansa til að muna,“ segir Pétur
Blöndal alþingismaður, sem kem-
ur fram á sviði Borgarleikhússins
á laugardaginn í danskeppni sem
Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski
dansflokkurinn standa að. Níu
frumsamin dansverk keppa til úr-
slita og má ekkert þeirra vera
lengra en tíu mínútur í flutningi.
Verkið sem Pétur Blöndal dansar í
er samið af sjónvarpskonunni Evu
Maríu Jónsdóttur, Mörtu Nordal
og Valgerði Rúnarsdóttur.
„Þetta er mjög sérstakt verk,
nútímaleg hópvinna og í raun leik-
verk þar sem marg-
ir koma við sögu,“
segir Pétur Blöndal
og tekur fram að
þátttaka hans krefj-
ist ekki danskunn-
áttu. Hann líti frek-
ar á þetta sem hluta
af líkamsrækt. Pét-
ur hefur áður dans-
að til að halda sér í
formi og komst á
forsíður dagblaða
þegar hann dansaði
afró-dans í Kram-
húsinu hér um árið.
Sem barn sótti Pét-
ur danstíma í dans-
skólum í Reykjavík
en aldrei af neinni
alvöru.
Eva María Jóns-
dóttir er ánægð
með þátttöku Pét-
urs í dansverki sínu svo og ann-
arra sem við sögu koma: „Verkið
gæti heitið Beðið eftir strætó og
fjallar um fólk sem hittist á stað
sem enginn á,“ segir hún.
Dansverk Evu Maríu með Pétri
Blöndal verður frumsýnt ásamt
öðrum verkum í Borgarleikhús-
inu á laugardagskvöldið. Sérstök
dómnefnd fagmanna hefur verið
skipuð og er þar fremstur í flokki
Samuel Wuersten, rektor
dansakademíunnar í Rotterdam
og stjórnandi Holland Dance
Festival. Að lokinni keppni verður
gestum boðið að stíga diskódans á
stóra sviði Borgarleikhússins við
undirleik hljómsveitar.
eir@frettabladid.is
Hrósið 26 4. júní 2003 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL „Ég er Reykvíkingur en
bjó um tíma á Seyðisfirði. Ég flutti
aftur suður þegar ég komst á
barnaskólaaldur, settist að í Vest-
urbænum og gekk hinn hefð-
bundna menntaveg Vesturbæinga.
Byrjaði í Melaskóla, fór svo í
Hagaskóla og áfram í MR,“ segir
Sæunn Stefánsdóttir, sem tók við
starfi aðstoðarmanns Jóns Krist-
jánssonar heilbrigðisráðherra í
fyrradag og er í óða önn að koma
sér fyrir í ráðuneytinu.
Sæunn er vitaskuld KR-ingur
og spilaði handbolta með félaginu
um árabil en hætti fyrir tveimur
árum. „Það vill loða við kvenna-
handboltann að við byrjum ungar
og hættum því oft snemma. Ég hef
mikinn áhuga á íþróttum, pólitík
og útiveru en ákvað að hætta þeg-
ar ég sá að það er meira í lífinu en
handbolti.“
Sæunn er 25 ára gömul og er í
sambúð með Kjartani Haralds-
syni jarðfræðingi. Hún er að ljúka
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla
Íslands í haust. „Ég fór og lærði
frönsku í háskóla í Suður-Frakk-
landi í eitt ár að loknu stúdents-
prófi en síðan lá leiðin í Háskól-
ann.“ Þar tók hún virkan þátt í
stúdentapólitíkinni, sat í tvö ár í
Stúdentaráði fyrir Röskvu og var
um tíma fulltrúi stúdenta í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
„Ég á bara eftir að skila loka-
ritgerðinni en hún tafðist vegna
anna í kosningabaráttunni,“ segir
Sæunn, sem var í framboði fyrir
Framsóknarflokkinn.
Sæunn vísar öllum vangavelt-
um um það að ungt fólk eigi ekkert
erindi í Framsóknarflokkinn til
föðurhúsanna. „Ég held að svona
spurningar hljóti að fara að bein-
ast að þátttöku ungs fólk í öðrum
stjórnmálaflokkum og spyr bara
af hverju ekki Framsókn? Þetta
eru gríðarlega spennandi tímar og
það er mikið af ungu fólki bæði í
flokknum og að ganga til liðs við
hann. Það sást líka best á fram-
boðslistum okkar að ungt fólk á
fullt erindi í flokkinn og svo bendi
ég bara á að nú eigum við bæði
yngsta þingmanninn og yngstu
þingkonuna.“ ■
Persónan
SÆUNN
STEFÁNSDÓTTIR
■ er nýtekin við starfi aðstoðarmanns heil-
brigðisráðherra. Hún hefur mikinn áhuga á
íþróttum og stjórnmálum og spilaði hand-
bolta með KR um árabil en mun nú láta
heilbrigðismálin njóta óskiptra krafta sinna.
Danskeppni
■ Pétur Blöndal alþingismaður kemur
fram í nýju dansverki sem frumsýnt verður
í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Þar
verða sýnd níu frumsamin dansverk sem
keppa innbyrðis. Að því loknu verður gest-
um boðið að stíga diskódans í stóra sviði
Borgarleikhússins.
Imbakassinn
...fá Þróttarar fyrir að koma
sterkir og ferskir inn í Íslands-
mótið í knattspyrnu.
Fréttiraf fólki
Úr Röskvu í ráðuneyti
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að herjeppi
Alfreðs Þorsteinssonar er ekki málaður í felu-
litunum.
PATTI
PLIXY
SPLIT
KAFFIBOÐ e.f.
Grettisgötu 64
Sími: 5621029 / 8993034
Má bjóða þér sæti?
Mikið úrval stóla
-komdu og skoðaðu!
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Oj bara,
þvílík stybba!
Ráðherrar eru í óða önn aðmanna aðstoðarmannastöð-
urnar. Sigurjón Örn Þórsson, að-
stoðarmaður Árna
Magnússonar, er
stjórnmálafræðingur
og kosningastjóri hjá
Framsóknarflokknum.
Sigurjón var einn eig-
enda og framkvæmda-
stjóri Háess, sem er eitt öflug-
asta fyrirtækið í tískubransanum.
Á og rekur búðir eins og Hanz,
Herragarðinn og Bossbúðirnar.
Gárungar eru á því að hvað sem
öðru líður eigi Árni góðan mögu-
leika með þessu vali að verða
best klæddi ráðherrann, þó ekki
væri annað, með þennan líka fína
dresser sér til halds og trausts.
Einn öflugasti málsvari Sjálf-stæðisflokksins á Netinu, Ak-
ureyringurinn Stefán Friðrik
Stefánsson, hefur opnað nýja
heimasíðu á slóðinni
http://www.stebbifr.com. Þar tí-
undar hann m.a. eftirlætis kvik-
myndirnar sínar, hljómsveitir og
stjórnmálamenn en í þeirri deild
eru Björn Bjarnason og Davíð
Oddsson vitaskuld efstir á blaði.
Lárétt
1 stólar, 6 ái, 7 sukk, 8 beljaka, 9 sjúkdóm,
10 kögur, 12 þáttur, 13 ungfrú,
14 með óværu í hári, 18 úrgangur.
Lóðrétt
1 jarðepli, 2 mikil vissa, 3 tekur sundur,
4 handlegg, 5 kollvarpi 11 fjaðrir,
15 sölumiðstöð, 16 skammstöfun, 17 tveir
eins.
BJÖRK JAKOBSDÓTTIR
Er lögð af stað að sigra heiminn með leik-
ritið sitt Sellófon. Zürich-búar taka verkinu
fagnandi og fyrirhugaðir eru frekari land-
vinningar.
Sellófon slær
í gegn í Sviss
LEIKLIST Nýlega var leikrit Bjarkar
Jakobsdóttur frumsýnt í Zürich í
Sviss og er óhætt að segja að við-
tökur þessarar nýjustu útflutn-
ingsvöru Íslendinga, það er leik-
ritaskrifum, fari fram úr björt-
ustu vonum. Daniele Mucionico
skrifar afar lofsamlega dóma í
dagblaðið Neue Zürcher Zeitung.
Hún talar um höfundinn sem
Björk aðra (“Björk die Zweite“)
og er afar hrifin. Lofar þetta góðu
um áframhaldið en fyrirhugaðir
eru frekari landvinningar víða um
heim – meðal annars er nú verið
að æfa verkið í Madríd en þar fer
þekkt leikkona, sem meðal annars
hefur gert garðinn frægan í kvik-
myndum Almódóvars, með eina
hlutverk verksins. ■
1
6
8
10 11
12
13
14 1615
18
17
2 3 4
7
9
5
Lausn:
Lárétt:1kollar, 6afi,7rú,8rum,9ms,
10traf, 12atriði,13fr, 14lúsugt, 18hrat.
Lóðrétt:1kartafla, 2ofurtrú, 3limar4
arm,5rústi,11fiður, 15sh,16ga17tt.
Skyndilega, á
endasprettinum...
SÆUNN STEFÁNSDÓTTIR
„Ég gekk til liðs við flokkinn um áramótin í
aðdraganda kosninganna og er hluti af
þeim hópi ungs fólks sem er að láta að
sér kveða innan Framsóknarflokksins.“
Þingmaður dansar
í Borgarleikhúsinu
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR
Ókunnugt fólk hittist á biðstöð strætisvagna.
PÉTUR BLÖNDAL
Lítur á dans sem líkamsrækt.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Þorsteinn Már Baldvinsson.
Í Evian í Frakklandi.
Engill í Vesturbænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT