Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 48

Fréttablaðið - 04.06.2003, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Forseti Bandaríkjanna er valda-mesta persóna á jörðinni. Og þess vegna skiptir miklu máli að í það starf veljist víðsýnn og vitur maður með gott hjartalag. Síðan Bush réðst á Írak hefur maður stundum efast um hið fyrst- og síð- astnefnda. Og ef maður skoðar sig um á Netinu og athugar þær gráu gamansögur sem þar ganga um nú- verandi forseta Bandaríkjanna er ekki laust við að maður fari að hafa áhyggjur af því hvort framtíð heimsmála sé í öruggum höndum. EIN SAGAN segir frá því að nokkru áður en Bush tók við emb- ætti (en eftir að Jeppi, bróðir hans, var búinn að tilkynna um niðurstöðu atkvæðatalningar í Flórída) hafi Clinton, fráfarandi forseti, boðið honum í kynnisferð um Hvíta húsið. Þeir sátu lengi dags og spjölluðu saman og þar kom að Bush þurfti að bregða sér á klóið. Þar inni sá hann ekki betur en salernisskálin væri úr skíra gulli. Þegar hann kom heim sagði hann Láru konu sinni frá þess- um lúxus og fannst mikið til koma. NÆSTA DAG bauð Hillary Clinton frú Láru Bush til tedrykkju í Hvíta húsinu og áttu þær konurnar góða stund saman, og frú Lára sagði Hill- ary frá því hversu mjög eiginmanni sínum hefði fundist til um glæsileik- ann hjá Clinton. Um kvöldið þegar þau Bill og Hillary voru að búa sig í háttinn spurði Bill konu sína hvort eitthvað hefði borið til tíðinda um daginn. „Nei, ekki er það nú,“ sagði frú Hillary, „nema hvað ég er búin að komast að því hver pissaði í saxó- fóninn þinn.“ ÖNNUR SAGA sem einnig veldur manni nokkrum kvíða segir frá því að Bush hafi dreymt tvo af hæfileik- aríkustu fyrirrennurum sínum, þá George Washington og Abraham Lincoln. Hann notaði tækifærið og spurði þá hvað hann gæti gert til að standa sig sem best í hinu erfiða starfi forsetans. Hinn heiðarlegi George Washington ráðlagði honum eindregið að segja alltaf satt. Abra- ham Lincoln hugsaði sig hins vegar lengi um og sagði svo: „Þú ættir endilega að gefa þér tíma til að skreppa í leikhús.“ ■ Gráar gamansögur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.