Fréttablaðið - 13.11.2003, Blaðsíða 4
4 13. nóvember 2003 FIMMTUDAGUR
Ertu búinn að setja nagla- eða
vetrardekk undir bílinn?
Spurning dagsins í dag:
Tekst einhvern tímann að leysa vanda
sauðfjárbænda?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
48%
41%
Nei
11%Á ekki bíl
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
WASHINGTON, AP Öldungadeild
Bandaríkjaþings hefur afgreitt
lagafrumvarp sem felur í sér
hertar refsiaðgerðir gegn Sýr-
landi vegna meintra tengsla sýr-
lenskra yfirvalda við hryðju-
verkamenn. Frumvarpið var
samþykkt með 89 atkvæðum
gegn fjórum. Sams konar laga-
frumvarp var samþykkt af full-
trúadeildinni í október með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða.
Frumvarpið gefur Bandaríkja-
forseta heimild til að setja við-
skiptaþvinganir á Sýrland ef
stjórnvöld verða uppvís að því að
styðja við bakið á hryðjuverka-
mönnum eða koma sér upp ger-
eyðingavopnum. Forsetinn hefur
einnig vald til að afnema refsiað-
gerðirnar ef talið er að þær ógni
þjóðaröryggi. George W. Bush
hefur þegar lýst því yfir að hann
telji að viðskiptaþvinganir séu
nauðsynlegar til að þrýsta á sýr-
lensk stjórnvöld og er því búist
við því að hann muni samþykkja
frumvarpið.
Viðskipti Bandaríkjanna og
Sýrlands eru óveruleg og að
sögn sérfræðinga BBC eiga
refsiaðgerðir Bandaríkjanna að
öllum líkindum eftir að koma
verst niður á bandarískum fyrir-
tækjum. ■
KEÐJUSALA „‘Eg hef ekki trú á því að
eigendur SprinkleNetwork geti
endurgreitt eftir þrjú ár eins og
lofað er. Þá munu þúsundir manna
eiga um sárt að binda og ég við
gera mitt til að vara það við því
sem er að ég held að sé að gerast,“
segir Mark Ashley Wells, fyrrver-
andi aðalstalsmað-
ur sænska píramíd-
ans Sprink-
leNetwork.
Mark kom fyrst
til Íslands á fyrri-
hluta þessa árs til
að tala fyrir því að
fólk gengi til liðs við sölukeðjuna
og keypti afsláttarkort. Árangur-
inn var góður því um 300 manns
gerðust þátttakendur. En í haust
kom Mark aftur til landsins en að
þessu sinni til að vara þá sem
gengið höfðu til liðs við píramíd-
ann við því að hann teldi óhugsandi
að hægt yrði að endurgreiða þeim
fjölmörgu sem höfðu hver um sig
upp á vasann pappírslaus loforð
um að fá til baka 1,9 milljónir sem
það kostaði þá að gerast
„shareholders“ eða hluthafar.
Þetta varð til þess að yfir 70 manns
hafa nú krafist endurgreiðslu.
Birna Sigfúsdóttir, talsmaður
SprinkleNetwork á Íslandi, sagði í
þættinum Ísland í dag á Stöð 2 að
Mark hefði með þessu verið að
vinna „hryðjuverk“ á sölukeðj-
unni. Mark segir að þau orð séu
ekki svaraverð. Hann eigi að baki
20 ára flekklausan feril í viðskipt-
um og hafi talið það skyldu sína að
vara fólk við.
Mark Ashley segir að þegar
hann var ráðinn til Sprinkle í árs-
byrjun hafi það verið til að kynna
afsláttarkortin og tryggja fyrirtæk-
inu fótfestu. Hann kveðst hafa ferð-
ast víða í því skyni og svo sannar-
lega trúað á fyrirtækið. Löngu síðar
hafi runnið á hann tvær grímur
þegar hann frétti af því að byrjað
væri að selja eignarhluti en eins og
Fréttablaðið hefur greint frá er
hver hlutur að verðmæti 1,9 milljón
króna. Viðskiptin eru pappírslaus
en fólki var sagt að eftir þrjú ár
fengi það endurgreitt framlagið og
að auki 0,1 prósent eignarhlut í
Sprinkle Network á Íslandi. Þá hafi
hann heyrt af áformum eigendanna
um að opna í 40 löndum til viðbótar.
Mark segir að fyrirtækið verði að
skila ofsagróða strax ef takast eigi
að endurgreiða fjárfestunum.
„Ég vil ekki leggja mitt nafn við
þetta. Það kæmi mér ekki á óvart
að fyrirtækið yrði gert gjaldþrota
áður en þrjú ár verða liðin og þá
ætli menn að afsaka sig með því að
það sé eins og hver önnur óheppni,“
segir Mark.
rt@frettabladid.is
Franskt spillingarmál:
Yfirmenn
í fangelsi
PARÍS, AP Dómstólar í París hafa
dæmt tvo af fyrrum yfirmönnum
franska olíufyrirtækisins Elf í
fimm ára fangelsi fyrir fjárdrátt.
Brotin áttu sér stað þegar fyrir-
tækið var enn í eigu ríkisins.
Loik Le Floch-Prigent fyrrum
stjórnarformanni Elf, var einnig
gert að greiða sem svarar rúmum
33 milljónum íslenskra króna í
sekt. Alfred Sirven, forstjóri fyr-
irtækisins, var sektaður um 88
milljónir. Þriðji maðurinn, Andre
Tarallo, var dæmdur í fjögurra
ára fangelsi og eiginkona Le
Floch-Prigent hlaut þriggja ára
fangelsisdóm fyrir mútuþægni.
Alls hafa 37 manns verið
ákærðir fyrir að hafa stolið sem
svarar tæpum 27 milljörðum
króna frá fyrirtækinu. Féð var
meðal annars notað til að greiða
mútur. ■
LAILA FREIVALDS
Laila er fædd í Riga í Lettlandi
Utanríkisráðherra Svía:
Heimsótti
fæðingar-
landið
LETTLAND, AP Laila Freivalds, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar og fyrr-
um dómsmálaráðherra, hélt í gær
í opinbera heimsókn til fæðingar-
lands síns, Lettlands, í fyrsta sinn
síðan hún tók við embætti utan-
ríkisráðherra eftir morðið á Önnu
Lindh.
Freivalds, sem fæddist í Riga
árið 1942, hitti Vairu Vike-
Freiberga, forseta Lettlands og
aðra forystumenn á fundi í gær,
en þar var meðal annars rætt um
undirbúning að inngöngu Letta í
Evrópusambandið í maí nk.
„Það er mjög sérstakt fyrir
mig að koma hingað þar sem ég er
fædd hér,“ sagði Freivalds eftir
að hafa hitt Freiberga forseta. ■
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta hefur
keypt fasteignina Eyrarveg 2 á
Selfossi þar sem Hótel Selfoss
er til húsa. Seljandi er þrotabú
eignarhaldsfélagsins Brúar ehf.
sem nú er í gjaldþrotameðferð.
Kaupverð er ekki gefið upp en
heimildir herma að það sé rúmar
200 milljónir króna. Þá hefur
hlutafélagið Brúnás tekið við
rekstri Hótels Selfoss. Fyrrum
rekstraraðili hótelsins var Kaup-
félag Árnesinga sem þar með
hættir öllum afskiptum af hótel-
inu.
Hópur fjárfesta stendur að
Brúnási, meðal annars þeir Gísli
Steinar Gíslason, Ólafur Auð-
unsson og Jón Gunnar Aðils.
Brúnás hefur samið við Flug-
leiðahótel hf. um viðskiptasér-
leyfi sem felur í sér að Hótel
Selfoss verður hluti af hótel-
keðjunni.
Hótelið verður lokað í tvo
mánuði þar sem farið verður í
framkvæmdir til að bæta veit-
ingaaðstöðu og afþreyingar-
möguleika á hótelinu.
Stefnt er að því að opna Hótel
Selfoss að nýju 15. janúar á
næsta ári. ■
SELT
Hópur fjárfesta hefur keypt Hótel Selfoss af þrotabúi Brúar ehf. sem nú er í gjaldþrota-
meðferð. Kaupverð er rúamr 200 milljónir króna.
Hótel Selfoss selt:
Brúnás
keypti
VÖRUHÚS PÍRAMÍDANS
Örfáar vörutegundir í vöruskemmu Jóna hf. í Sundahöfn er allt og sumt sem Sprink-
leNetwork býður viðskiptavinum sínum og eigendum.
Segir píramídann
stefna til 40 landa
Mark Ashley Wells segir ásakanir á hendur sér um hryðjuverk gagnvart
sænska píramídanum ekki vera svaraverðar. Hann spáir hruni Sprink-
leNetwork og segist ekki hafa vitað að stjórnendurnir seldu eignarhluti
■
Það kæmi mér
ekki á óvart að
fyrirtækið yrði
gert gjaldþrota
áður en þrjú ár
verða liðin.
FORSETI SÝRLANDS
Bashar Assad, forseti Sýrlands, fundar með
Jeremy Greenstock, æðsta embættismanni
Breta í Írak.
Öldungadeild Bandaríkjaþings:
Refsiaðgerðir gegn
Sýrlandi samþykktar
Verðbólgan síðasta ár:
Á verð-
bólgumark-
miðinu
VÍSITALA Vísitala neysluverðs hækk-
aði um 1,3% í nóvember. Hækkun
vísitölunnar er í samræmi við
væntingar fjármálafyrirtækja sem
spáð höfðu hækkun á bilinu 0,1 til
0,2%. Vísitala neysluverðs án hús-
næðis hækkaði um 0,18% eða að-
eins meira en vísitalan í heild.
Verðbólga síðustu tólf mánuði
mælist 2,5% eða á verðbólgumark-
miðum Seðlabankans, en verðbólga
án húsnæðist er 1,1% á sama tíma-
bili. Vísitalan stendur nú í 229,3
stigum. ■
Slys í Breiðholtslaug:
Haldið
sofandi
SLYS Fjórtán ára pilti, sem fannst
liggjandi á botni Breiðholtslaugar
síðdegis í fyrradag, er enn haldið
sofandi á gjörgæsludeild Land-
spítalans.
Starfsmaður laugarinnar kom
auga á piltinn og sá strax að ekki
var um leik að ræða. Hann fór því
úti í laugina og dró piltinn upp og
hóf strax lífgunartilraunir. Strax
var kallað á sjúkrabíl og kom
hann eftir nokkrar mínútur og
flutti drenginn á gjörgæslu. ■
Samkeppnisráð:
Hafnaði
kæru frá
SPRON
ATHAFNALÍF Samkeppnisráð hef-
ur hafnað erindi Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis vegna
notkunar Búnaðarbankans á list-
um yfir stofnfjáreigendum.
Sparisjóðurinn hélt því fram að
Búnaðarbankinn hafi notað lista
yfir stofnfjáreigendur með óheið-
arlegum hætti þegar fimm stofn-
fjáreigendur gerðu tilraun til yf-
irtöku í félaginu með stuðningi
Búnaðarbankans.
Samkeppnisráð bendir á að
aðrar stofnanir, svo sem Persónu-
vernd og Fjármálaeftirlitið, hafi
áður vísað sambærilegum kvört-
unum Sparisjóðsins frá. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M